Fréttablaðið - 04.01.2018, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 4 . j a n ú a r 2 0 1 8
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Ólafur Stephensen
skrifar um tolla á franskar. 18
Menning Kvikmyndin Svanur-
inn, eftir samnefndri bók Guð-
bergs Bergssonar, verður frum-
sýnd í Smárabíói í kvöld. 32
lÍFið Lilja Þorvarðardóttir vekur
athygli á að létt er að kaupa fylgj-
endur á samfélagsmiðlum. 42
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Ú T S A L A
OPIÐ TIL
21
Í KVÖLD
Skökku turnarnir á Akranesi standa enn eftir misheppnað niðurrif. Verið er að undirbúa næstu atlögu að sílóunum enda þykir hætta stafa af þeim.
Bæjarstjóri Akraness segir verktakann ekki hafa gert bæjaryfirvöldum kleift að sinna upplýsingaskyldu sinni við bæjarbúa. Sjá síðu 6 Fréttablaðið/anton
stjórnsÝsla Umsækjendur um átta
lausar stöður dómara við Héraðs-
dóm Reykjavíkur og Héraðsdóm
Vestfjarða segja víða pott brotinn í
umsögn dómnefndar um hæfi hér-
aðsdómara. Settur ráðherra í málinu
hefur nú til skoðunar hvort tilefni sé
til að hvika frá mati nefndarinnar.
Dómnefndin skilaði mati sínu
22. desember síðastliðinn en skipa
átti í stöðurnar frá og með ára-
mótum. Viku síðar sendi Guðlaugur
Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og
settur dómsmálaráðherra í málinu,
nefndinni bréf með athugasemdum
um umsögnina.
Fréttablaðið hefur rætt við hóp
umsækjenda um stöðurnar. Stærst-
ur hluti þeirra tekur undir gagnrýni
ráðherra á mat nefndarinnar. Matið
virðist til að mynda að hluta í ósam-
ræmi við fyrri möt sem nefndin
hefur sent frá sér.
„Það sem áður fékk mikið vægi
fær minna vægi nú. Þannig virðist
sem sérstaklega hafi átt að toga ein-
hverja umsækjendur upp umfram
aðra,“ segir einn umsækjenda.
Hluti umsækjenda hafði á orði
að ósamræmi hefði verið innan
núverandi umsagnar. Meðal ann-
ars hefur það þótt skjóta skökku
við að Jónas Jóhannsson, sem var
skipaður dómari í tuttugu ár, hafi
skorað lægra í matsliðnum reynsla
af dómstörfum en umsækjandi sem
hefur verið settur dómari í átta ár.
Þá þykir mörgum það undarlegt að
tveir umsækjendur, með samtals 29
mánaða reynslu sem settir dómarar,
skyldu metnir jafnsettir honum í
þeim matslið.
„Það áttu held ég allir von á að
Jónas og sjö önnur myndu hreppa
hnossið,“ segir einn umsækjenda.
Matsnefndin svaraði athuga-
semdum setts dómsmálaráðherra
með bréfi í gær. Þar er töluliðunum
tíu, sem fram komu í bréfi ráðherra,
svarað lið fyrir lið. Kemur þar meðal
annars fram að „reynslan af fyrstu
starfsárunum í hverju starfi [vegi]
tiltölulega þyngst, þannig að síður
er ástæða til að gera upp á milli
umsækjenda með langa starfs-
reynslu að baki þótt einn þeirra
hafi gegnt starfi nokkru lengur en
annar“.
Meðan ekki hefur verið skipað í
stöðurnar vantar tæpan fimmtung
upp á það að héraðsdómarar lands-
ins séu jafn margir og lögmælt er.
Slíkt getur haft þau áhrif að frestun
verði á meðferð mála fyrir dómi.
Borgar Þór Einarsson, aðstoðar-
maður setts dómsmálaráðherra,
segir að allt tiltækt starfslið ráðu-
neytisins muni fara yfir svarbréf
nefndarinnar eins fljótt og kostur
er. Framhald málsins ráðist á næstu
dögum en ljóst sé að hafa þurfi
hraðar hendur. – jóe
Setja út á ósamræmi í
mati dómaranefndar
Hluti umsækjenda um lausar stöður við héraðsdómstóla landsins segir að sums
staðar í mati hæfnisnefndar virðist sem hífa hafi átt umsækjendur upp á kostn-
að annarra. Unnið er af kappi að málinu í ráðuneyti setts dómsmálaráðherra.
Dómnefndin svaraði
bréfi ráðherra í gær. Starfs-
fólk utanríkisráðuneytisins
mun á næstu dögum fara yfir
það hver næstu skref ráð-
herra í málinu ættu að vera.
lögregluMál Þorvaldur Gíslason,
forstjóri ÞG Verks, harmar atvik sem
átti sér stað í flugi WOW air til Los
Angeles í síðustu viku en hann var
handtekinn á flugvellinum í borginni
eftir að hafa sýnt af sér ofbeldisfulla
hegðun. Hann var yfirbugaður af
tveimur flugþjónum.
„Ég er algjörlega miður mín,“ segir
Þorvaldur. „Í fluginu missti ég tök
á aðstæðum vegna ofdrykkju eftir
tæp tvö ár án áfengis.“ Bandaríska
alríkislögreglan (FBI) fer með rann-
sókn málsins, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. – aá / sjá síðu 4
Miður sín eftir
handtöku í LA
landbúnaður Magnús Karl Magn-
ússon, prófessor í lyfja- og eiturefna-
fræði, gagnrýnir auglýsingaherferð
sauðfjárbænda um bann við erfða-
breyttu fóðri harðlega. Hann telur
auglýsingarnar ala á tortryggni í
garð vísindalegrar aðferðar sem sé
ekki slæm.
Svavar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri markaðsráðs kinda-
kjöts, segir að íslenskir sauðfjár-
bændur vilji tryggja að afurðir úr
„eiturefnalandbúnaði rati ekki inn
í íslenska sauðfjárrækt“.
„Fræðaheimurinn er á einu máli
um að þessi aðferð er örugg og við
eigum ekki að berjast gegn henni,“
segir Magnús Karl. – sa / sjá síðu 10
Sauðfjárbændur
ali á tortryggni
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
4
-6
F
1
0
1
E
A
4
-6
D
D
4
1
E
A
4
-6
C
9
8
1
E
A
4
-6
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K