Fréttablaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 40
landamæri. Þær geta ferðast hvert
sem er – við þekkjum þær öll.“
Ása Helga viðurkennir að það
verði stór stund að frumsýna mynd-
ina hér á landi. Alltaf sé erfiðara að
troða upp fyrir framan fjölskyldu
sína en ókunnuga. Kveðst þó hlakka
til í aðra röndina, til dæmis að leyfa
fólki að heyra tónlistina eftir strák-
ana í Múm. „Svo er sveitaball í mynd-
inni og þar spilar alvöru hljómsveit,
mæðgurnar Kristjana Arngríms-
dóttir og Ösp Eldjárn og líka Krist-
ján Eldjárn Hjartarson og Daníel
Þorsteinsson. Svo er alls konar
önnur tónlist í myndinni, til dæmis
tvö lög eftir hljómsveitina East of My
Youth, þær Herdísi Stefánsdóttur og
Thelmu Marín Jónsdóttur.“
Ása Helga var nýlega útnefnd
besti leikstjórinn á stórri alþjóðlegri
kvikmyndahátíð á Indlandi þar sem
Svanurinn var til sýningar.
Hvernig tilfinning var það? „Það
var stórkostlegt og kom mér rosa-
lega á óvart. Ég var því miður ekki á
staðnum, heldur á kvikmyndahátíð
annars staðar í heiminum, og fékk
bara símtal frá Þorvaldi Davíð leik-
ara sem hafði farið til Indlands fyrir
hönd myndarinnar. Þetta var ótrú-
lega skemmtilegt og gífurlega mikill
heiður. Ég tók ákvarðanir varðandi
leikstjórnina á þessari mynd sem
voru kannski óvenjulegar og þurfti
að sannfæra aðra og það er erfiðara
þegar um frumraun með stórt verk-
efni er að ræða. En ég fylgdi mínu
innsæi og þess vegna var mjög dýr-
mætt að fá svona viðurkenningu.“
Myndin fjallar um Sól, níu ára
stúlku sem send er í sveit til fjar-
skyldra ættingja, bæði vegna þess að
hún er pínu vandræðabarn en líka til
að þroskast, kynnast náttúrunni og
vissum aga. Hún gerir það en flækist
líka inn í líf fullorðna fólksins og
verður þátttakandi í atburðarás sem
hún skilur ekki alveg sjálf. „Svanur-
inn er að einhverju leyti mynd um
það sem við lærum öll þegar við
erum að vaxa úr grasi, að til þess að
geta fúnkerað í samfélagi fullorðinna
þurfum við setja upp grímu sem
þróast og breytist með okkur sjálfum
gegnum árin. Það er sársaukafullt
en á köflum líka nauðsynlegt til að
lifa af,“ segir Ása Helga og bætir við:
„Það er kannski ekki algjör tilviljun
að aðalleikona myndarinnar heitir
Gríma!“
En var ekki mikil áskorun að leik-
stýra svo ungri manneskju? „Jú,
Gríma er nánast í hverri einustu senu
myndarinnar og ber hana því í raun
uppi. En hún er svo hæfileikarík og
með svo mikla tilfinningagreind að
í sjálfu sér varð aldrei erfitt að leik-
stýra henni. Við höfðum líka gert
eina stuttmynd saman áður sem
heitir Þú og ég og gátum byggt á því
trausti sem hafði skapast þar milli
okkar. Þá mynd gerði ég einmitt til
að leita að stúlku fyrir Svaninn, að
hluta til. Ég er ekki síður þakklát
foreldrum hennar því fjölskyldan
þurfti jú nánast öll að vera í Svarf-
aðardalnum á tökutímanum til að
Gríma gæti leikið í myndinni.“
Lokaspurning: Er alvöru svanur?
„Fólk verður að koma í bíó til að fá
svarið.“
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813
Svanurinn er fyrsta mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur í fullri lengd, en áður hefur hún gert stuttmyndir sem hlotið hafa athygli. „Myndin byrjaði sem
skólaverkefni þegar ég var í kvik-
myndanámi í New York í Columbia-
háskóla. Þá var ég í áfanga sem hét
kvikmyndaaðlögun og snerist um að
laga bækur að bíómyndum. Þá varð
þessi bók eftir Guðberg Bergsson
fyrir valinu hjá mér, ég hafði lesið
hana nokkrum árum áður og alger-
lega kolfallið fyrir henni. Án þess að
ég fattaði það þá var eitthvað við
lesturinn á þessari bók sem byrjaði
að láta mig hugsa myndrænt, hugsa
í kvikmyndagerð. Fljótlega varð
mér líka ljóst að myndin yrði meira
en skólaverkefni. Þetta var 2010 og
margt hefur gerst í millitíðinni því
ferlið er búið að vera langt.“
Hvernig gekk svo að selja hug-
myndina, útvega fjármagn og fá
aðra til liðs? „Það var erfitt í fyrstu en
fljótlega fékk ég þær Hlín Jóhannes-
dóttur og Birgittu Björnsdóttur í
fyrirtækinu Vintage pictures sem
framleiðendur. Það skipti sköpum.
En margar hindranir hafa verið á
leiðinni því þó fólk hafi haft trú
á verkefninu skynjuðum við líka
hræðslu við söguna. Hún er öll svo
huglæg og gerist að miklu leyti inni
í höfðinu á aðalpersónunni sem er
níu ára stelpa, margir efuðust um
að þetta gæti orðið að spennandi
myndefni. Það merkilega er að núna,
þegar ég sýni myndina á kvikmynda-
hátíðum, er þetta takmarkaða en um
leið skapandi sjónarhorn stelpunnar
eitt af því sem heillar fólk mest.“
Höfundur sögunnar, Guðbergur
Bergsson, var hann strax jákvæður?
„Já, hann hefur sýnt mér mikinn
stuðning og það skipti mig öllu
máli. Hann las fyrstu drög að hand-
ritinu og horfði líka á brot en hefur
gefið mér fullkomið listrænt frelsi
í þessu ferli öllu saman. Honum –
eins og mér – er annt um að kvik-
myndin sé sjálfstætt verk en ekki
bara myndskreyting við bókina.“
Svanurinn var tekinn upp norður
í Svarfaðardal þar sem Ása Helga
dvaldi sjálf mikið sem barn og stór
hluti föðurfjölskyldu hennar býr.
Hún kveðst hafa verið í miklu og
góðu samstarfi við Svarfdælinga og
Dalvíkinga við gerð myndarinnar og
einmitt haldið forsýningu á henni á
Dalvík núna rétt fyrir áramótin.
Annars var myndin heims-
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Torontó í september, síðan hefur
hún farið út um allt og heldur því
áfram á þessu ári. „Það hefur gengið
ótrúlega vel,“ segir Ása Hlín. „Mér
finnst svo gaman að manneskjur á
fjarlægum menningarsvæðum skuli
tengja svona mikið við þessa sögu
sem gerist í sveit á Íslandi. Maður
heyrir alltaf að sögur séu alþjóðlegar
en ég held að kannski sé réttara að
segja að tilfinningar séu handan við
Tilfinningar eru handan við öll landamæri
Kvikmyndin Svanurinn, eftir samnefndri bók Guðbergs Bergssonar, verður frumsýnd í Smárabíói í kvöld.
Hún fjallar um níu ára stúlku sem dregst inn í óvænta atburðarás. Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstýrir.
„Án þess að ég fattaði það, þá var eitthvað við lesturinn á þessari bók sem byrjaði að láta mig hugsa myndrænt, hugsa í
kvikmyndagerð,“ segir Ása Helga um Svaninn, verðlaunabókina hans Guðbergs. Fréttablaðið/Ernir
Þuríður blær, Þorvaldur Davíð og aðalleikkonan Gríma Valsdóttir.
Það var greinilega ekki alltaf leiðinlegt í sveitinni. Gríma í hlutverki Sólar.
NoKKrar upplýSiNGar
um SvaNiNN
n Handrit er eftir Ásu Hjörleifs-
dóttur og Guðberg Bergsson.
n Birgitta Björnsdóttir og Hlín Jó-
hannesdóttir eru aðalframleið-
endur en myndin er samvinnu-
verkefni Íslands, Þýskalands og
Eistlands.
n Gríma Valsdóttir leikur
aðalhlutverkið, með önnur
aðalhlutverk fara Þorvaldur
Davíð Kristjánsson, Þuríður
Blær Jóhannsdóttir, Ingvar E.
Sigurðarson og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir.
n Tónlist er aðallega eftir Gunnar
Örn Tynes og Örvar Smárason.
n Myndin er búin að fara á yfir
20 kvikmyndahátíðir víða um
heim og hefur unnið til verð-
launanna „besti leikstjórinn“
á Kolkata International Film
Festival og „besta myndin“
á Cairo International Film
Festival.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
4 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r32 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
menning
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
4
-8
C
B
0
1
E
A
4
-8
B
7
4
1
E
A
4
-8
A
3
8
1
E
A
4
-8
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K