Fréttablaðið - 04.01.2018, Síða 40

Fréttablaðið - 04.01.2018, Síða 40
landamæri. Þær geta ferðast hvert sem er – við þekkjum þær öll.“ Ása Helga viðurkennir að það verði stór stund að frumsýna mynd- ina hér á landi. Alltaf sé erfiðara að troða upp fyrir framan fjölskyldu sína en ókunnuga. Kveðst þó hlakka til í aðra röndina, til dæmis að leyfa fólki að heyra tónlistina eftir strák- ana í Múm. „Svo er sveitaball í mynd- inni og þar spilar alvöru hljómsveit, mæðgurnar Kristjana Arngríms- dóttir og Ösp Eldjárn og líka Krist- ján Eldjárn Hjartarson og Daníel Þorsteinsson. Svo er alls konar önnur tónlist í myndinni, til dæmis tvö lög eftir hljómsveitina East of My Youth, þær Herdísi Stefánsdóttur og Thelmu Marín Jónsdóttur.“ Ása Helga var nýlega útnefnd besti leikstjórinn á stórri alþjóðlegri kvikmyndahátíð á Indlandi þar sem Svanurinn var til sýningar. Hvernig tilfinning var það? „Það var stórkostlegt og kom mér rosa- lega á óvart. Ég var því miður ekki á staðnum, heldur á kvikmyndahátíð annars staðar í heiminum, og fékk bara símtal frá Þorvaldi Davíð leik- ara sem hafði farið til Indlands fyrir hönd myndarinnar. Þetta var ótrú- lega skemmtilegt og gífurlega mikill heiður. Ég tók ákvarðanir varðandi leikstjórnina á þessari mynd sem voru kannski óvenjulegar og þurfti að sannfæra aðra og það er erfiðara þegar um frumraun með stórt verk- efni er að ræða. En ég fylgdi mínu innsæi og þess vegna var mjög dýr- mætt að fá svona viðurkenningu.“ Myndin fjallar um Sól, níu ára stúlku sem send er í sveit til fjar- skyldra ættingja, bæði vegna þess að hún er pínu vandræðabarn en líka til að þroskast, kynnast náttúrunni og vissum aga. Hún gerir það en flækist líka inn í líf fullorðna fólksins og verður þátttakandi í atburðarás sem hún skilur ekki alveg sjálf. „Svanur- inn er að einhverju leyti mynd um það sem við lærum öll þegar við erum að vaxa úr grasi, að til þess að geta fúnkerað í samfélagi fullorðinna þurfum við setja upp grímu sem þróast og breytist með okkur sjálfum gegnum árin. Það er sársaukafullt en á köflum líka nauðsynlegt til að lifa af,“ segir Ása Helga og bætir við: „Það er kannski ekki algjör tilviljun að aðalleikona myndarinnar heitir Gríma!“ En var ekki mikil áskorun að leik- stýra svo ungri manneskju? „Jú, Gríma er nánast í hverri einustu senu myndarinnar og ber hana því í raun uppi. En hún er svo hæfileikarík og með svo mikla tilfinningagreind að í sjálfu sér varð aldrei erfitt að leik- stýra henni. Við höfðum líka gert eina stuttmynd saman áður sem heitir Þú og ég og gátum byggt á því trausti sem hafði skapast þar milli okkar. Þá mynd gerði ég einmitt til að leita að stúlku fyrir Svaninn, að hluta til. Ég er ekki síður þakklát foreldrum hennar því fjölskyldan þurfti jú nánast öll að vera í Svarf- aðardalnum á tökutímanum til að Gríma gæti leikið í myndinni.“ Lokaspurning: Er alvöru svanur? „Fólk verður að koma í bíó til að fá svarið.“ ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813 Svanurinn er fyrsta mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur í fullri lengd, en áður hefur hún gert stuttmyndir sem hlotið hafa athygli. „Myndin byrjaði sem skólaverkefni þegar ég var í kvik- myndanámi í New York í Columbia- háskóla. Þá var ég í áfanga sem hét kvikmyndaaðlögun og snerist um að laga bækur að bíómyndum. Þá varð þessi bók eftir Guðberg Bergsson fyrir valinu hjá mér, ég hafði lesið hana nokkrum árum áður og alger- lega kolfallið fyrir henni. Án þess að ég fattaði það þá var eitthvað við lesturinn á þessari bók sem byrjaði að láta mig hugsa myndrænt, hugsa í kvikmyndagerð. Fljótlega varð mér líka ljóst að myndin yrði meira en skólaverkefni. Þetta var 2010 og margt hefur gerst í millitíðinni því ferlið er búið að vera langt.“ Hvernig gekk svo að selja hug- myndina, útvega fjármagn og fá aðra til liðs? „Það var erfitt í fyrstu en fljótlega fékk ég þær Hlín Jóhannes- dóttur og Birgittu Björnsdóttur í fyrirtækinu Vintage pictures sem framleiðendur. Það skipti sköpum. En margar hindranir hafa verið á leiðinni því þó fólk hafi haft trú á verkefninu skynjuðum við líka hræðslu við söguna. Hún er öll svo huglæg og gerist að miklu leyti inni í höfðinu á aðalpersónunni sem er níu ára stelpa, margir efuðust um að þetta gæti orðið að spennandi myndefni. Það merkilega er að núna, þegar ég sýni myndina á kvikmynda- hátíðum, er þetta takmarkaða en um leið skapandi sjónarhorn stelpunnar eitt af því sem heillar fólk mest.“ Höfundur sögunnar, Guðbergur Bergsson, var hann strax jákvæður? „Já, hann hefur sýnt mér mikinn stuðning og það skipti mig öllu máli. Hann las fyrstu drög að hand- ritinu og horfði líka á brot en hefur gefið mér fullkomið listrænt frelsi í þessu ferli öllu saman. Honum – eins og mér – er annt um að kvik- myndin sé sjálfstætt verk en ekki bara myndskreyting við bókina.“ Svanurinn var tekinn upp norður í Svarfaðardal þar sem Ása Helga dvaldi sjálf mikið sem barn og stór hluti föðurfjölskyldu hennar býr. Hún kveðst hafa verið í miklu og góðu samstarfi við Svarfdælinga og Dalvíkinga við gerð myndarinnar og einmitt haldið forsýningu á henni á Dalvík núna rétt fyrir áramótin. Annars var myndin heims- frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Torontó í september, síðan hefur hún farið út um allt og heldur því áfram á þessu ári. „Það hefur gengið ótrúlega vel,“ segir Ása Hlín. „Mér finnst svo gaman að manneskjur á fjarlægum menningarsvæðum skuli tengja svona mikið við þessa sögu sem gerist í sveit á Íslandi. Maður heyrir alltaf að sögur séu alþjóðlegar en ég held að kannski sé réttara að segja að tilfinningar séu handan við Tilfinningar eru handan við öll landamæri Kvikmyndin Svanurinn, eftir samnefndri bók Guðbergs Bergssonar, verður frumsýnd í Smárabíói í kvöld. Hún fjallar um níu ára stúlku sem dregst inn í óvænta atburðarás. Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstýrir. „Án þess að ég fattaði það, þá var eitthvað við lesturinn á þessari bók sem byrjaði að láta mig hugsa myndrænt, hugsa í kvikmyndagerð,“ segir Ása Helga um Svaninn, verðlaunabókina hans Guðbergs. Fréttablaðið/Ernir Þuríður blær, Þorvaldur Davíð og aðalleikkonan Gríma Valsdóttir. Það var greinilega ekki alltaf leiðinlegt í sveitinni. Gríma í hlutverki Sólar. NoKKrar upplýSiNGar um SvaNiNN n Handrit er eftir Ásu Hjörleifs- dóttur og Guðberg Bergsson. n Birgitta Björnsdóttir og Hlín Jó- hannesdóttir eru aðalframleið- endur en myndin er samvinnu- verkefni Íslands, Þýskalands og Eistlands. n Gríma Valsdóttir leikur aðalhlutverkið, með önnur aðalhlutverk fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Ingvar E. Sigurðarson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. n Tónlist er aðallega eftir Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason. n Myndin er búin að fara á yfir 20 kvikmyndahátíðir víða um heim og hefur unnið til verð- launanna „besti leikstjórinn“ á Kolkata International Film Festival og „besta myndin“ á Cairo International Film Festival. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 4 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r32 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð menning 0 4 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 4 -8 C B 0 1 E A 4 -8 B 7 4 1 E A 4 -8 A 3 8 1 E A 4 -8 8 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.