Fréttablaðið - 04.01.2018, Side 2
Veður
Austan strekkingur í dag, en hvass-
viðri eða stormur syðst á landinu.
Dálítil él um landið austanvert, en
annars bjartviðri. Fremur kalt í veðri.
sjá síðu 30
Litið við á útsölum
Það var margt um manninn í Smáralind í gær. Venju samkvæmt bjóða verslanir landsins upp á útsöluverð á vörum sínum á fyrstu dögum nýs árs.
Líkt og fyrri ár hafa margir landsmenn nýtt sér útsölurnar ýmist til að skila eða skipta jólagjöfum eða til að gera reyfarakaup. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
� Stærð: 149 x 110 x 60 cm
ÚTSALA
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Grillbúðin
25-50
aðeins í nokkra daga
afsláttur
Opið virka daga 11-18 - Laugardag 11-16
www.grillbudin.is
%
sakamál „Það er ekki í okkar anda
að eltast við svona smotterí og erfitt
að eiga við þetta fyrir okkur,“ segir
Hannes Bjarnason, annar forstöðu-
manna Hjálpræðishersins á Akur-
eyri, þegar hann er spurður út í
dóm sem maður fékk fyrir að stela
sex þúsund krónum úr söfnunar-
bauk Hersins á Akureyri í fyrra. Var
maðurinn dæmdur til tveggja mán-
aða fangelsisvistar.
„Það sem gerist er að brotist er
inn í nytjamarkað okkar og þar
er stolið úr söfnunarbauk,“ segir
Hannes. „Þar sem um innbrot er
að ræða þá tilkynntum við það til
lögreglu vegna þess að munir voru
eyðilagðir. Síðan er málið úr okkar
höndum og við getum ekki gert
neitt meira. Lögreglan bað okkur
um að skila skaðabótakröfu en við
vildum það ekki. Það er miklu nær
að aðstoða manninn og ræða við
hann en sækja hann til saka.“
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að karlmaður hefði í mars á síðasta
ári brotist inn í nytjamarkað Hjálp-
ræðishersins og stolið þaðan sex
þúsund krónum. Vegna þess og
fyrri brota hans var talið hæfilegt að
dæma hann til fangelsisvistar í tvo
mánuði. Hannes og Birna Dís segja
það ekki hjálpa mikið. „Við vonum
að yfirvöld girði sig í brók. Lausnin
er ekki fangelsi fyrir svona hóp ef
þeir hafa brotið af sér í langan tíma,
það segir sig sjálft.“
Hjálpræðisherinn hefur um lang-
an tíma aðstoðað fanga á Akureyri
um nauðsynjar, fatnað og jólagjafir,
án endurgjalds og mun halda því
áfram. Þau vonast eftir því að geta
hitt manninn og rætt við hann í þeim
tilgangi að aðstoða hann.
Vildu aðstoða þjófinn
en ekki sækja til saka
Forstöðumenn Hjálpræðishersins á Akureyri vildu ekki elta ólar við þjóf og
skiluðu ekki inn skaðabótakröfu. Vilja aðstoða menn betur en að senda þá í
fangelsi. Þjófurinn hafði á brott með sér 6.000 krónur og fékk fangelsisdóm.
Hannes og Birna eru forstöðumenn Hjálpræðishersins á Akureyri og vilja að-
stoða hinn brotlega með samtölum frekar en fangavist. FRÉTTABLAÐIÐ/AuÐunn
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir að einstaklingar sem hlotið
hafa brot fyrir væg auðgunarbrot
geti afplánað refsingu sína í sam-
félagsþjónustu. Til að mynda fyrir
samtök eins og Rauða krossinn.
Fyrir því eru ákveðin skilyrði hins
vegar. sveinn@frettabladid.is
Páll Winkel,
fagelsismála-
stjóri
Margrét
Guðnadóttir
fallin frá
Margrét
Guðnadóttir
veirufræðingur
lést á Land-
spítalanum
2. janúar. Hún
varð fyrst
kvenna pró-
fessor við Háskóla Íslands árið
1969 og gegndi hún því starfi í
þrjá áratugi eða til ársins 1999.
Margrét gegndi starfi forstöðu-
manns Rannsóknarstofu Háskóla
Íslands í veirufræðum en eftir
hana liggur fjöldi greina á sviði
hæggengra veirusýkinga eins og
visnu og mæðiveiki í sauðfé.
Margrét var sæmd heiðurs-
doktorsnafnnót við læknadeild
Háskóla Íslands árið 2011. Hún
var 88 ára að aldri . – khn
áRBORG Bráðabirgðatölur sýna að
íbúar í Árborg hafi verið 8.998 í
sveitarfélaginu hinn 1. janúar 2018.
Það er því bara dagaspursmál hve-
nær sveitarfélagið nær 9.000 íbúa
markinu. „Það mun gerast á fyrstu
dögum janúar ef að líkum lætur.
Meðalfjölgun á mánuði allt síðasta
ár hjá okkur var um 43-45 manns,“
segir Ásta Stefánsdóttir bæjarstjóri.
Íbúum í Árborg fjölgaði um 523
á nýliðnu ári miðað við fyrstu tölur
eða 6,17%. Fjölgað hefur í öllum
byggðakjörnunum og í dreifbýlinu.
Á Selfossi fjölgar mest, eða um 423,
og á Stokkseyri um 49. Ásta á von á
því að fjölgunin haldi áfram 2018.
„Já, ég á von á því að það muni eitt-
hvað halda áfram að fjölga á næsta
ári, jafnvel þó að eitthvað kunni að
hægja á. Það er mikið af húsnæði
í byggingu hér enn þá og margar
íbúðir munu koma á markaðinn á
árinu 2018“, segir Ásta.
Ásta segir mjög ánægjulegt að
svona margir skuli velja Sveitar-
félagið Árborg sem stað til að búa
á enda standist þjónustan allan
samanburð á landsvísu.
„Það er líka ánægjulegt að það
skuli fjölga fólki alls staðar í sveit-
arfélaginu. Mörg lítil þorp eru í
varnarbaráttu og glíma við fækkun
íbúa, en á Eyrarbakka og Stokks-
eyri fjölgar fólki. Einnig virðast
margir telja það góðan kost að búa
í dreifbýlinu,“ segir bæjarstjórinn í
Árborg. – mhh
Níu þúsundasti
íbúinn í Árborg
kemur í janúar
Það er líka ánægju-
legt að það skuli
fjölga fólki alls
staðar í
sveitarfélag-
inu.
Ásta Stefánsdóttir,
bæjarstjóri í Árborg
4 . j a n ú a R 2 0 1 8 F I m m T u D a G u R2 F R é T T I R ∙ F R é T T a B l a ð I ð
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
4
-7
4
0
0
1
E
A
4
-7
2
C
4
1
E
A
4
-7
1
8
8
1
E
A
4
-7
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K