Fréttablaðið - 04.01.2018, Síða 4
LögregLumáL „Ég er algjörlega
miður mín,“ segir Þorvaldur
Gissurarson, forstjóri og eigandi
ÞG Verks, sem var handtekinn af
bandarískum lögregluyfirvöldum
í Los Angeles í síðustu viku eftir
að hafa sýnt af sér ofbeldisfulla
hegðun í flugi Wow air frá Íslandi
til Los Angeles.
„Í fluginu missti ég tök á aðstæð-
um vegna ofdrykkju eftir tæp tvö ár
án áfengis. Ég hef áður undirgengist
áfengismeðferð og mun leita mér
hjálpar vegna þessa atviks,“ segir
Þorvaldur í yfirlýsingu sem hann
sendi Fréttablaðinu.
Þorvaldur er af sjónarvottum
sagður hafa sýnt áhöfn vélarinnar
mjög ógnandi hegðun en hann sat
á fyrsta farrými og urðu farþegar
í almennu rými vélarinnar, sem
langflestir voru Bandaríkjamenn,
varir við mikinn skarkala á fyrsta
farrými og að sögn sjónarvotta
gekk mikið á. Þorvaldur var yfir-
bugaður af tveimur karlkyns flug-
þjónum meðan vélin var enn á flugi
en hann var svo handtekinn strax
við lendingu í Los Angeles. Banda-
ríska alríkislögreglan (FBI) fer með
rannsókn málsins, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
„Ég bið starfsfólk um borð í þotu
WOW og aðra farþega í fluginu
innilega afsökunar á framferði
mínu,“ segir Þorvaldur. „Þá vil ég
þakka öllum þeim sem veittu mér
liðsinni í þessum erfiðu aðstæð-
um.“
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, vildi ekki tjá sig
um atvikið að öðru leyti en að stað-
festa að alvarlegt atvik hefði komið
upp í umræddu flugi.
„Upp kom atvik á flugi WOW air
FBI með mál íslensks forstjóra
á borði sínu eftir flugferð til LA
Þorvaldur Gissurarson, eigandi og forstjóri ÞG Verks, er miður sín eftir atvik í flugi WOW air frá Íslandi til
Los Angeles í síðustu viku. Hann var handtekinn á flugvellinum í LA af þarlendum lögregluyfirvöldum.
„Ég bið starfsfólk um borð í þotu WOW og aðra farþega í fluginu innilega afsökunar á framferði mínu.“
til Los Angeles í síðustu viku þar sem
farþegi um borð sýndi ofbeldisfulla
hegðun og fór ekki að fyrirmælum
áhafnar. Var í framhaldi tekið á því í
samræmi við verkferla WOW air og
öryggi farþega, áhafnar og loftfars
var tryggt. Við lendingu í Los Angeles
tóku bandarísk lögregluyfirvöld við
farþeganum og rannsókn málsins,“
segir Svanhvít.
Þorvaldur er eigandi ÞG Verks,
sem er eitt stærsta verktakafyrirtæki
landsins sem stendur meðal annars
að framkvæmdum við Hafnartorg
í miðbæ Reykjavíkur. Fyrirtækið
hefur verið umsvifamikið á undan-
förum tveimur áratugum, til dæmis
sem aðalverktaki við fyrstu áfanga
Hellisheiðarvirkjunar og stækkun
Nesjavallavirkjunar. Meðal fyrri
verkefna ÞG Verks er bygging höfuð-
stöðva Orkuveitu Reykjavíkur en
Orkuveitan íhugar nú málsókn gegn
verktakanum og öðrum sem komu að
byggingu hússins sem er ónýtt vegna
rakaskemmda. adalheidur@frettabladid.is
mannfagnaður „Það varð allt vit-
laust hér eftir gamlárskvöld,“ segir
Sigríður Klara Árnadóttir, hita-
veitustjóri í Kjós, þar sem hreppur-
inn hefur ákveðið að breyta út af
venjunni og vera ekki með flug-
eldasýningu á þrettándafagnaði á
laugardaginn.
Sigríður segir fjölmenni hafa
verið í sumarhúsum við Meðal-
fellsvatn þegar nýja árið gekk í garð,
bæði Íslendingar og ferðamenn
í Airbnb-gistingu. Ekki gerðu sér
allir grein fyrir áhrifum háværra
sprenginga á dýrin á svæðinu.
„Það voru hross hér í haga sem
urðu tryllt og fólk var á nýársdag
að leita að hestum úti um allt og
hundarnir voru alveg skjálfandi,“
segir Sigríður.
Hrossin hafi hlaupið undan
mestu skothríðinni austur í átt að
Þingvöllum. „Það er ferlegt þegar
þau eru komin á veginn. Það bjarg-
aði reyndar að það var tunglsljós
svo það var enginn sem keyrði á
hross þótt það hafi næstum því
gerst.“
Þrettándagleði Kjósverja fer
þannig fram að fólk er hvatt til að
koma með afganginn af jólamatn-
um að Félagsgarði og leggja með sér
á sameiginlegt veisluborð. Kveikt
verður í stórri brennu.
„Svo eru stjörnuljós líka vel-
komin,“ tekur Sigríður fram. Þá eru
veislugestir hvattir til að lífga upp á
gleðina með því að koma uppdubb-
að sem álfakóngar og -drottningar
eða púkar og vættir. – gar
Engir flugeldar á þrettándanum því hestar trylltust um áramótin
Það voru hross hér í
haga sem urðu tryllt
og fólk var á nýársdag að
leita að hestum úti um allt og
hundarnir voru alveg skjálf-
andi.
Sigríður Klara Árnadóttir,
hitaveitustjóri í Kjós
SVÍÞJÓð Nokkrir tugir eldri borgara
skráðu sig strax þegar sveitarfélagið
þeirra, Hörby á Skáni í Svíþjóð,
bauðst til að greiða líkamsrækt fyrir
75 ára og eldri.
Um er að ræða fyrirbyggjandi
aðgerð. Öldruðum einstaklingum
fjölgar og með því að sjá til þess að
þeir styrkist líkamlega og um leið
andlega þurfa þeir ekki jafnmikla
umönnun hins opinbera.
Samkvæmt frétt sænska ríkisút-
varpsins ríkir mikil ánægja meðal
aldraðra með framtakið. Stefnt er að
því að bjóða einnig þeim sem ekki
komast út af hjúkrunarheimilum
endurgjaldslausa líkamsrækt. – ibs
Borga í ræktina
fyrir aldraða
OrkumáL Raforkuframleiðsla getur
annað eftirspurn hér á landi til árs-
ins 2022 en framboð á því ári verður
einu prósenti meira en orkuþörfin.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Landsnets um afl- og orkujöfnuð
fyrir landið. Líkur á skorti á raf-
magni eru lægri en í fyrri útreikn-
ingum Landsnets.
„Þessi árlega skoðun okkar er
fyrst og fremst til að gefa heildar-
mynd af Íslandi án þess að taka á
staðbundnum þáttum í flutnings-
kerfinu. Þarna reynum við að varpa
ljósi á hvort það vanti afl á Íslandi
og hvers við getum vænst næstu
fimm árin,“ segir Sverrir Jan Norð-
fjörð, framkvæmdastjóri tækni-
sviðs Landsnets. „Við skoðum
hversu mikið afl er til reiðu og sam-
kvæmt útreikningum okkar getum
við mætt aflþörfinni. Fyrir þremur
árum var staðan til að mynda mun
verri.“
Miðað var við núverandi orku-
notkun og þá þróun sem sést í raf-
orkuspá. Einnig nær spá Landsnets
yfir nýja stórnotendur þar sem
samningar liggja fyrir og einnig
horft til aukinna framleiðslu sem
kemur inn á næstu árum með til-
komu Þeistareykjavirkjunar og
stækkunar í Búrfelli.
„Hins vegar er alveg ljóst að lítið
má út af bregða svo að myndin
breytist nokkuð mikið. Til að
mynda við nýja stórnotendur eða
stækkun núverandi stórnotenda er
svigrúmið farið. Því er mikilvægt að
yfirfara þetta árlega,“ segir Sverrir
Jan.
Í spám Landsnets er horft fram
hjá staðbundnum vandamálum
við dreifingu raforku um landið. Til
að mynda er Blöndulína ekki á dag-
skrá fyrr en á næsta áratug og Hóla-
sandslína 3, sem flytur rafmagn frá
Þeistareykjum til Akureyrar, í fyrsta
lagi tilbúin 2021. Því gæti rafmagn
verið uppurið á Eyjafjarðarsvæðinu
aðeins af þeim ástæðum að erfitt er
að flytja orku inn á svæðið. – sa
Landsnet segir orku anna eftirspurn
Stækkun Búrfellsvirkjunar bætir 100
MW af afli inn á kerfi Landsnets.
FréttaBLaðið/SteFán
Þorvaldur var handtekinn við komuna til Los angeles og er málið á borði alríkislögreglunnar. nordicphotoS/Getty
Í fluginu missti ég
tök á aðstæðum
vegna ofdrykkju eftir tæp
tvö ár án áfengis.
Þorvaldur
Gissurarson,
forstjóri og
eigandi ÞG Verks
Danmörk Lögreglan í Kaupmanna-
höfn leitar nú þjófa sem höfðu verð-
mætustu vodkaflösku heims á brott
með sér af bar þar í borg. Flaskan er
metin á 1,3 milljónir dollara, andvirði
tæplega 136 milljóna íslenskra króna.
Lögreglunni var gert viðvart um
þjófnaðinn í fyrradag. Flaskan var til
sýnis á stað sem heitir Cafe 33. Ekki
liggur fyrir hvort þjófarnir höfðu lykil
að staðnum undir höndum eða hvort
þeir brutust inn í húsið með öðrum
aðferðum.
Eigandi kaffihússins, Brian Ing-
berg, segir í samtali við Ekstra Bladet
að flaskan sé sambærileg við fágæta
fornbíla. Hún sé gerð úr um þremur
kílógrömmum af gulli og öðru eins af
silfri. Þá er tappi hennar meðal ann-
ars skreyttur demöntum. Flaskan,
sem kaffihúsið hafði að láni frá rúss-
neskum auðjöfri, var ótryggð. – jóe
Dýrustu
vodkaflösku
heims stolið
136
milljónir íslenskra króna er
áætlað verðmæti flöskunnar.
4 . J a n ú a r 2 0 1 8 f I m m T u D a g u r4 f r é T T I r ∙ f r é T T a B L a ð I ð
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
4
-8
7
C
0
1
E
A
4
-8
6
8
4
1
E
A
4
-8
5
4
8
1
E
A
4
-8
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K