Fréttablaðið - 04.01.2018, Síða 42
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
ÚTSALA-ÚTSALA
30%
AÐRAR VÖRUR
20%
TILBOÐ GILDIR TIL SUNNUDAGS
Leikhópurinn Lotta hefur umtalsverða og um margt aðdáunarverða sérstöðu í íslensku leikhúsi. Allt frá stofnun leikhópsins árið 2007 hafa sýningarnar verið utan-dyra, þar af leiðandi háðar árstíð, veðri og vindum, og byggðar á efni sem leikhópurinn semur sjálfur, auk þess sem áherslan hefur verið á sýningar fyrir börn og fjölskyldur. En nú ber svo við næsta laugardag að leikhópurinn Lotta ætlar að frum-sýna Galdrakarlinn í Oz í Tjarnarbíó og Anna Bergljót Thorarensen sem
hefur verið í leikhópnum frá upphafi
segir að það sé óneitanlega sérstök til-
finning að vera að fara að frumsýna í
janúar og vera ekki einu sinni kalt.
Viðbót við leikárið
Anna Bergljót segir að þar sem leik-
hópurinn sé nú að koma inn á sitt
ellefta starfsár hafi verið ákveðið
að horfa aðeins um öxl. „Við erum
í senn að fagna þessum árum sem
við höfum verið starfandi og leyfa
áhorfendum okkar núna, sem
voru ekki einu sinni fæddir þegar
við byrjuðum, að sjá það sem við
höfum verið að gera. Galdrakarlinn
í Oz var frumsýndur í maí 2008 og
því fannst okkur tilvalið að leyfa
honum að snúa aftur núna og þá í
leikhúsinu. Margir af þeim krökkum
sem koma á sýningarnar okkar
núna hafa reyndar verið að hlusta
á þetta á geisladiski sem við gáfum
út á sínum tíma en það var kominn
tími til þess að færa þeim þetta frá-
bæra ævintýri sem alvöru leikhús-
upplifun.“
Anna Bergljót segir að vissulega
feli það í sér ákveðna áskorun að
koma aftur að verki eftir öll þessi
ár. „Við erum svona búin að vera
að dusta rykið af þessu og athuga
hvort að við getum gert þetta betur
en fyrir 10 árum. Við vorum búin að
vera hugsa um hversu blóðugt það
væri að vera alltaf að búa til nýtt
verk fyrir hvert sumar og henda því
svo í ruslið, þannig að við ákváðum
að það væri kominn tími á þessa
þróun. Kominn tími á að verkin
okkar gætu gengið í endurnýjun líf-
daga vegna þess að áhorfendahóp-
urinn endurnýjar sig. En svo ætlum
við að halda okkur við að vera alltaf
með nýjar sýningar á sumrin þannig
að þetta er hrein viðbót við leikárið
hjá okkur. Og nú veit fólk alltaf hvað
verður á vetrardagskránni eftir tíu
ár, það er alltaf það sem var sýnt
utandyra fyrir tíu árum,“ segir Anna
Bergljót og hlær.
Nýjar áskoranir
Anna Bergljót var ein af þeim níu
sem stofnuðu leikhópinn á sínum
tíma og hún segir að svo skemmti-
lega vilji til að þau fjögur sem eru
eftir af þeim hópi séu einmitt þau
fjögur sem leika sömu aðalhlut-
verkin í Galdrakarlinum í Oz. Auk
hennar eru það þau Baldur Ragnars-
son, Rósa Ásgeirsdóttir og Sigsteinn
Sigurbergsson en Huld Óskarsdóttir
er nú í stóru hlutverki í fyrsta sinn
hjá hópnum. Leikstjóri uppruna-
legu sýningarinnar var Ármann
Guðmundsson sem skrifaði leik-
gerðina en Ágústa Skúladóttir sér
nú um leikstjórn.
En skyldi það breyta miklu fyrir
leikhópinn að vera nú að færa þetta
verk upp á svið innandyra? „Já, árið
2008 var ég t.d. líka að leika ljónið og
þá var ósköp gott að vera í þessum
hlýja feldi þó svo það hafi reyndar
verið mjög gott sumar. En núna inni
á sviði í ljósunum hef ég aldrei upp-
lifað annan eins svitapoll og að vera
í þessum blessaða flísbúningi,“ segir
Anna Bergljót en hefur samt greini-
lega gaman af. „En þetta er samt
dásamlegt. Við erum orðin mjög
spennt að taka á móti áhorfendum
því við ætlum að halda þessari hefð-
bundnu Lottu-nálgun að taka á móti
áhorfendum þegar þeir koma og
eins og alltaf býðst áhorfendum að
hitta persónurnar og knúsa þær eftir
sýningu. Þannig að við viljum halda
nándinni. En það er líka gott fyrir
leikhópinn að þroskast og takast á
við nýjar áskoranir.“
Mávurinn úti á túni
Anna Bergljót segir að þau séu
hvað ánægðust með að þau ætli að
ferðast með sýninguna að minnsta
kosti jafn mikið og þau ferðast með
sumarsýningarnar ef ekki meira.
„Við förum af stað í febrúar og
ætlum að vera á yfir 20 stöðum um
allt land. Það virðist því miður fara
minnkandi að leikhópar fari um
landið en við ætlum að bæta úr því
svo um munar og vera með farand-
leikhús bæði að sumri og vetri til.“
Galdrakarlinn í Oz er fyrsta verk-
ið sem leikhópurinn lét semja fyrir
sig sérstaklega eins og hann hefur
gert alla tíð síðan. Anna Bergljót
segir að ástæðan fyrir valinu hafi
einfaldlega ráðist af aðstæðum.
„Þegar við byrjuðum þá vorum við
að sýna með leikhópi sem heitir
Sýnir, nánast sama fólk og tók svo
þátt í að stofna Lottu, að setja upp
Mávinn eftir Tsjékov og það utan-
dyra. Við hreinlega skildum ekki af
hverju við vorum að setja upp svona
stofudrama úti á túni, fannst það
algjörlega úti í hött, þannig að við
snerum okkur að því að setja upp
Dýrin í Hálsaskógi. Þessi ævintýra-
heimur sem náttúran er átti svo líka
vel heima í utanhússleikhúsi þann-
ig að Galdrakarlinn í Oz var svona
eðlilegt næsta skref.“
Við viljum halda nándinni sem felst í útileikhúsinu
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Galdrakarlinn í Oz í Tjarnarbíói á laugardaginn. Það er fyrsta innanhúss
uppfærsla þessa einstaka leikhóps sem hefur starfað utandyra og ferðast um landið í áratug.
Anna Bergljót Thorarensen er ein af stofnendum leikhópsins Lottu en leikhópurinn frumsýnir Galdrakarlinn í Oz í Tjarnarbíói á laugardag. FréTTABLAðið/Eyþór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
4 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r34 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
4
-7
8
F
0
1
E
A
4
-7
7
B
4
1
E
A
4
-7
6
7
8
1
E
A
4
-7
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K