Fréttablaðið - 04.01.2018, Síða 52
Katrín Brynja Her-mannsdóttir lottó-þula er þjóðinni vel kunn. Líkt og margir er hún ekki einhöm en auk þess að vera
menntaður kennari og með mast-
ersgráður í blaða- og fréttamennsku,
starfar hún sem flugfreyja í fullu
starfi hjá Icelandair.
Hver er galdurinn á bak við góða
húð? Við erum öll með ólíka húð og
svo sannarlega misheppin þar. En til
að ná fram því besta skiptir höfuð-
máli að leggja rækt við húðumhirðu.
Já, ég veit, þetta er eldgömul saga, en
alltaf jafn sönn. Það skiptir máli að
hreinsa húðina að morgni og nota
góðar vörur sem henta húðgerðinni
vel, áður en „andlitið er sett upp“
og sömuleiðis, allt-af fyrir svefninn.
Alltaf ! Það er dauðasynd númer
átta fara með húðina óhreina að
sofa. Sjálfri finnst mér mikilvægt að
„gefa húðinni frí“ endrum og eins og
nota gjarnan tækifærið þegar ég er
ekki að fljúga, er hamingjusamlega
ómáluð, bara með nærandi krem og
varasalva.
Hvaða krem eru best að þínu
mati? Það skemmtilega er að það
dýrasta er ekki endilega alltaf best
og í raun ekki endilega samhengi
þar á milli. Hver og einn þarf að
þræða sig í gegnum þann frumskóg
og jafnvel prófa margt áður en rétta
varan finnst. Mér finnst að það ætti
að vera auðveldara að fá prufur
af kremum og snyrtivörum hér á
Íslandi. Mér líður stundum eins og
ég sé um að biðja sölufólkið um að
gefa mér pening þegar ég spyr hvort
hægt sé að fá prufu. Þessu er þver-
öfugt farið í útlöndum og þar fær
maður prufur afhentar með bros á
vör. Ég hef lengi notað efnin frá Bio-
effect – EGF og þau henta mér mjög
vel. Húðin stútfyllist af raka og mér
líður vel þegar ég ber þau á húðina.
Ég er nýbyrjuð að nota nýja EGF –
2A efnið frá þeim og er virkilega
hrifin. Ég nota líka krem frá Neo-
Strata, en margir húðlæknar mæla
með þeim vörum. Þær eru á góðu
verði og allir ættu að geta fundið
eitthvað sem hentar. Eftir langt flug
er fátt betra en að hreinsa húðina
vel og bera á hana góðan raka, sú
tilfinning toppar kósígallann.
Hversu lengi ertu að taka þig til?
Eftir að hafa „snúsað“ nokkrum
sinnum í morgunsárið er ég orðin
ansi snögg að taka mig til á morgn-
ana. Það lærist fljótt í þessu starfi og
sennilega er ég ekki meira en fimm-
tán mínútur að gera mig klára fyrir
flug og það sama gildir um hárið.
Um leið og maður hefur komist
upp á lag með hentuga greiðslu þá
heldur maður sig bara við hana,
ég held að það hvarfli ekki að
mörgum að fara í tilraunastarfsemi
með hárútfærslur eldsnemma að
morgni þegar tíminn virðist líða
alveg ævintýralega hratt. Svo
er bara að henda sér í gallann,
kyssa ungana laust á ennið og
grípa eitthvað fljótlegt með
sér að borða. Mörg okkar eru
ofur skipulögð og mæta með
snarhollt nesti í vinnuna sem
hefur verið útbúið kvöldið
áður og þá horfi ég öfundar- og
aðdáunaraugum í vel skipulögð
nestisboxin. Jájá, kannski það gerist
oftar hjá manni á nýju ári, magnaðir
hlutir eiga það til að gerast!
Einhver ráð sem virka vel? Hófleg,
náttúruleg förðun er málið og góður
baugahyljari er besti vinur margra
sem vinna óreglulega og á næt-
urnar. Hvað mig varðar, þá hefur
leitin að góðum baugahyljara verið
jafn löng og leitin að bestu galla-
buxunum og besta maskaranum.
Það virðist alltaf vera hægt að gera
örlítið betur.
Hvaða leynitrix virka best til
að fá frísklegt útlit? Ég nota Face
TanWater frá Eco by Sonya og tel
það vera mestu snilld sem fundin
hefur verið upp. Það er hægt að
hressa sig við um þó nokkuð mörg
númer með því að bera þetta á sig
yfir háveturinn og fá þannig smá
gylltan lit í andlitið. Eins og með
annað brúnkukrem sem er ætlað á
kroppinn, þá ber ég það á mig með
flötum förðunarbursta, stórum
bursta fyrir kroppinn og minni
fyrir andlitið. Hvað hárið varðar,
þá skiptir líka máli að sinna því vel.
Ég keypti mér lúxuslínu frá Davines
um daginn, nota hana spari, og veit
eiginlega ekki hvað ég var að bauka
með hárið á mér áður en ég upp-
götvaði það. Svona er maður lengi
að læra. En fyrir utan þetta, þá eru
hreinar tennur og gott bros eitthvað
sem fleytir manni býsna langt!
astahrafnhildur@frettabladid.is
„Ég er ekki
merkja
snobb,
nota það
sem
hentar
mér best.“
„Góð rakakrem skipta öllu máli,
þessar vörur eru alveg ómissandi.“
Vatnsdrykkja er besta fegrunarráðið og er alveg nauðsynleg til að viðhalda góðum raka.
Dauðasynd
númer átta er
að sofna með
óhreina húð
Katrín Brynja Her-
mannsdóttir er
önnum kafin þriggja
drengja móðir og
féllst á að deila
nokkrum hagnýtum
og einföldum húð- og
förðunarráðum með
lesendum Lífsins.
Hitaðu bílinn með fjarstýringu
– Webasto bílahitari
-8°
-6°
-7°
0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 3 27.10.17 14:2
21° Tilfinning
BÍLASMIÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16
SÍMI: 567-2330
www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
SÉRSTAKIR GESTIR:
Kristjana Stefáns
Ragneiður Gröndal
Högni Egilsson
Friðrik Dór
STJÓRNANDI
OG KYNNIR:
Sigurður Flosason 7. JANÚAR KL. 20.00
4 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r44 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
0
4
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
4
-9
6
9
0
1
E
A
4
-9
5
5
4
1
E
A
4
-9
4
1
8
1
E
A
4
-9
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K