Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  172. tölublað  105. árgangur  FANNST VANTA KRYDDTEGUND Í TÓNLISTINA MAÐUR ÞARF AÐ TREYSTA LESANDANUM GLÆPASÖGUR OG GIN Í MIKLU UPPÁHALDI JÓHANNA MARÍA 31 ELÍSABET DROTTNING 12TÓMAS R. 30 Ísland tapaði naumlega fyrir einu allra besta liði heims, því franska, í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu í Tilburg í Frakklandi í gær- kvöld. Eugénie Le Sommer skoraði sig- urmark Frakka úr umdeildri vítaspyrnu rétt fyrir leikslok og lokatölur urðu því 1:0. Ís- lenska liðið hafði áður gert tilkall til víta- spyrnu í leiknum þegar brotið virtist á Fanndísi Friðriksdóttur í vítateig Frakka. „Þjálfarinn þeirra var orðinn alveg froðu- fellandi í fyrri hálfleik. Þær höfðu engin svör við því sem við vorum að gera. Við viss- um að þær yrðu pirraðar ef við myndum spila fast gegn þeim, eins og raunin varð, og það er bara þetta andskotans víti í restina sem skilur liðin að,“ sagði Fanndís við Morgunblaðið eftir leikinn í Tilburg. Austurríki vann óvæntan sigur á Sviss, 1:0, í sama riðli og það verður því mikið undir á laugardaginn kemur þegar Ísland mætir Sviss í Doetinchem. Stelpurnar geta náð langt Á EM-torginu á Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur fylgdust spenntir fótboltaunn- endur með leiknum, þrátt fyrir leiðinda- veður og vætu. Voru þeir allir sammála um að lið Íslands væri sterkt í ár og að stelp- urnar ættu góða möguleika á að ná langt á mótinu. „Ég hef fulla trú á íslenska liðinu, eins og alltaf,“ segir Kristinn Jónsson, gjaldkeri Tólfunnar, en hann var mættur á EM-torgið ásamt nokkrum félögum sínum. Þá sagðist annar aðdáandi afar ánægður með þann mikla áhuga sem myndast hefur í kringum landsliðið. » 14 og Íþróttir AFP Kraftur Fanndís Friðriksdóttir á fullri ferð í áttina að marki Frakka í leiknum í Tilburg. Hún hefði getað fengið vítaspyrnu og var nærri sloppin framhjá markverði Frakka í seinni hálfleik. Naumt tap gegn einu besta liði heims  „Úrkoma hingað til hefur ekki verið sérlega mikil og sólarleysi ekki áberandi mikið,“ segir Trausti Jónsson veðurfræð- ingur, spurður um veðrið á suðvestur- horni landsins fyrri hluta júlí. Hita hefur þó verið nokkuð misskipt á landinu það sem af er júlí, en hæstur er meðalhitinn hingað til á Torfum í Eyjafirði, eða 11,6 stig. Næst á eftir kemur Kirkjubæjar- klaustur með meðalhita 11,5 stig. Svalinn suðvestanlands er áberandi sé miðað við það sem algengast hefur verið á þessari öld, segir Trausti. Sömu júlí- dagar voru þá aðeins tvisvar kaldari en nú (2013 og 2006) og einu sinni jafnkaldir og nú, eða 2002. Sé miðað við lengri tíma er hitinn hins vegar nær því sem venjulegt má telja. „Í heild- ina verður að teljast að ekki hafi farið illa með veður þótt skortur sé á hlýjum sólardögum,“ segir Trausti. »10 Úrkoman ekki verið sérlega mikil  Langtímaskuldir sveitarfélaga lækka milli áranna 2015 og 2016 um 4,8 millj- arða króna eða sem nemur 2,9 prósent- um. Heildarskuldir, þ.e. bæði til langs tíma og skamms, hafa lækkað um 1,4 pró- sent en þær námu 86,5 prósentum af tekjum ársins 2015, en aðeins 76,1 pró- senti árið 2016. Skuldbindingar hafa á móti aukist tölu- vert eða um 14,3 prósent og eru þar líf- eyrisskuldbindingar fyrirferðarmestar. Afkoma sveitarfélaga var óvenjugóð ár- ið 2016 og mun betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir þróunina ánægjulega. Hann segir helstu skýr- inguna á bættri afkomu sveitarfélaga liggja í auknum út- svarstekjum sem jukust um 11% á milli ára. »18 Bætt afkoma sveitarfélaga Halldór Halldórsson  Heyra mátti á skipverjum Polar Na- noq að þeir þekkja Thomas Møller Ol- sen, sem ákærður er fyrir að hafa myrt Birnu Brjánsdóttur, að góðu einu. Skýrslur voru teknar af sjö manns úr áhöfn grænlenska togarans í Héraðs- dómi Reykjaness í gær. Í ljós kom við skýrslutökurnar að Thomasi bárust textaskilaboð frá blaða- manni, þar sem bæði Birnu og rauðu Kia Rio-bílaleigubifreiðina bar á góma. Við það mun hann hafa ókyrrst mjög og jafnvel enn frekar við önnur skilaboð, þá frá kærustu sinni í Grænlandi, en í þeim sagði: „Þú ert kannski grunaður um þetta.“ Fyrsti vélstjóri Polar Nanoq sagði að gefa hefði þurft Thomasi róandi lyf í kjölfar skilaboðanna og að ekki hefði verið auðvelt að ræða við hann, svo tauga- óstyrkur var hann. »4 „Þú ert kannski grunaður“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.