Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Þetta var mjög gagnlegur fundur og varpaði ljósi á ferlið eins og það er núna,“ segir Svandís Svavars- dóttir, þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar græns framboðs, spurð um fund stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar sem haldinn var í gær, en þar voru ræddar reglur um upp- reist æru. „Á fundinum kom fram að þetta ferli er býsna vélrænt, en það virð- ist vera nóg að uppfylla tiltekna formlega þætti til að fá uppreist æru þar sem engin dæmi eru um að svokölluð meðmæli séu ekki tal- in fullnægjandi,“ bætir hún við. Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðu- neytisins sat fyrir svörum á fund- inum og segir Svandís að meðal þess sem spurt var um hafi verið réttur einstaklinga til endurheimt- ar opinberra réttinda á borð við lögmannsréttindi og vísar þar til máls Roberts Downey. Hann fékk nýverið uppreist æru og gat því endurheimt lögmannsréttindi sín, en hann var árið 2008 dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferð- isbrot gegn fjórum stúlkum. „Skilningur Hæstaréttar byggir á túlkun dómsins á lögmannalög- unum um hvað þurfi að uppfylla til að geta fengið að starfa sem lög- maður. Þetta ræddum við líka og hvort eðlilegt væri að nálgast op- inber réttindi með þessum hætti. Rétt er þó að taka fram að Lög- mannafélagið vill þrengja túlk- unina,“ segir Svanhvít. Allir eigi möguleika Brynjar Níelsson, formaður nefndarinnar, sagði í samtali við mbl.is í gær að það þyrfti að hafa skýra verkferla og koma í veg fyr- ir að ferlið væri matskennt. Sum- um þætti skrýtið að eftir ákveðið langan tíma og tvo meðmælendur væri hægt að óska eftir uppreist æru. „Mönnum þykir rétt að skoða hvort eðlilegt sé að gera grein- armun á tíma og skilyrðum eftir alvarleika brota,“ sagði Brynjar og benti á að sjálfum þætti honum alla jafna að menn ættu alltaf rétt á að fá sín borgaralegu réttindi, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. „Allir eigi möguleika á því en það er ekki þar með sagt að allir eigi möguleika á að fá sín starfs- réttindi því þá fer það svolítið eftir eðli brots. Til að mynda ef læknir hefur þuklað á sjúklingum – er þá rétt að hann fái réttindi? Eða lög- maður sem hefur brotið af sér og er að sýsla í slíkum brotum,“ sagði Brynjar og bætti við að þetta þyrfti að fara yfir. „Ég er ekki með svar við þessu núna því ég held að það sé rétt að farið verði nákvæmlega yfir þetta og það náist sátt um hvenær menn eigi að fá borgaraleg réttindi aftur og hvenær menn sem hafa brotið af sér eigi að fá starfsréttindi aft- ur,“ sagði hann. Ferlið sagt vera allt of vélrænt  Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði í gær með ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins um ferl- ið bakvið uppreist æru  Nóg að uppfylla tiltekna formlega þætti til að fá uppreist æru segir Svandís Brynjar Níelsson Svandís Svavarsdóttir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, óskar eftir því að almenningur sendi henni spurningar sem hann vill fá svar við í tengslum við uppreist æru Roberts Downeys, en verði lagt fram lagafrumvarp um breytingar á uppreist æru í haust verður það tekið fyrir í allsherjar- og menntamála- nefnd. Leitar til almennings VILL SPURNINGAR FÓLKS Regnhlífar, kápur, kuldavesti og vatnsheldar flíkur komu sér vel við Geysi í gær, en leiðinda- veður var á sunnanlands með mikilli vætu. Þess- ir erlendu ferðamenn létu veðrið þó ekki skemma fyrir sér upplifunina og fylgdust margir þeirra spenntir með þegar Strokkur sýndi mátt sinn. Voru þeir þá fljótir að grípa myndavél- arnar og snjallsímana í þeirri von að festa nátt- úruundrið á filmu. Fjölmargir erlendir gestir nutu náttúrunnar í vætunni Morgunblaðið/Eggert Vel varðir ferðamenn á göngu um hverasvæði Karlmaður lét lífið eftir fall úr bygg- ingarkrana á vinnusvæði í Hafnar- firði síðastliðinn mánudag. Tilkynn- ing um slysið barst Neyðarlínu síðdegis þann dag og héldu lögregla og sjúkraflutningamenn þegar á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu voru endurlífgunartilraunir gerðar á slysstað. Maðurinn var í kjölfarið fluttur á Landspítalann þar sem hann var úr- skurðaður látinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Vinnueftirlitið vinna nú að rann- sókn slyssins, en ekki var í gær unnt að greina frá nafni hins látna. Banaslys í Hafnarfirði „Það er tvennt sem kemur til greina. Annars vegar að þetta sé hákarl, en hins vegar að þetta sé af- gangur af hval sem hefur lent í skrúfu. Það myndi útskýra þessar reglulegu rákir sem líta út eins og skurðarför. En ég hallast nú frekar að hákarlskenningu,“ segir Sverrir Daníel Halldórsson líffræðingur eft- ir að hafa séð ljósmyndir af stóru og illa leiknu flikki sem fannst í fjöru. Sverrir segir að hákarla reki sjaldan á fjörur, það gerist stöku sinnum og oftast séu það algjörar lufsur. Hann býst ekki við að hræið verði fjarlægt af manna höndum. „Náttúran sér um þetta, þetta er ekki lengi að hverfa,“ segir hann. Tvær systur, þær Sigríður og Dísa Gunnarsdætur frá Eyri við Ingólfsfjörð, komu auga á flikkið í fjörunni við gömlu bryggjurnar og tóku myndir af þessu mjög svo illa útlítandi „sæskrímsli“. Skrímsli í fjörunni?  Líklega hákarl Fjara Hræið sem systurnar fundu. Börkur NK, eitt skipa Síldarvinnsl- unnar, landaði 2.200 tonnum af kol- munna í Neskaupstað síðastliðinn sunnudag. Greint er frá þessu á heimasíðu Síldarvinnslunnar, en skipið kom þá úr átta daga veiðiferð og veiddist meginhluti kolmunnaafl- ans í íslenskri lögsögu. Hélt Börkur umsvifalaust til kol- munnaveiða á ný að lokinni löndun til þess að nýta tímann sem best áð- ur en síldar- og makrílvertíð hefst, segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Að sögn Hjörvars Hjálmarssonar, skipstjóra Barkar NK, var fiskurinn bæði stór og fallegur. Lítil veiði var á fyrri hluta veiðiferðarinnar, að sögn Hjörvars. Var fyrst leitað í hinum svokallaða Rósagarði, sem er suðaustur af Ís- landi, og síðar í færeyskri lögsögu. Skipið hélt þá til baka í íslenska lög- sögu og leitaði norðar en upp- haflega. Var það þar sem mikill kol- munni fannst, eða um 100 sjómílur út af Norðfjarðarhorni, segir Hjörv- ar. Var afli þar mikill, eða allt upp í 500 tonn á sólarhring, samkvæmt upplýsingum frá Síldarvinnslunni. axel@mbl.is Mikill kolmunnaafli hjá Síldarvinnslunni Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Aflakló Börkur NK kom nýverið með yfir 2.000 tonn af kolmunna til hafnar í Neskaupstað, en skipið var í átta daga veiðiferð og fór víða á þeim tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.