Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 4

Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Reykjavíkurborg hefur nú til skoð- unar endurhönnun á hæðarlegu hjólreiðastígs sem til stendur að leggja við Rauðagerði í Reykjavík. Deilur hafa staðið um fram- kvæmdirnar og hluti íbúa við Rauðagerði, Ásenda og Tunguveg vakið athygli á meintum misbrest- um við framkvæmdirnar. Hafa þeir m.a. stöðvað framkvæmdirnar í tví- gang í sumar. Í kjölfar síðara skiptisins, 1. júlí sl., kom fram í máli talsmanns íbúa að borgin hefði sýnt áhuga á að vinna með íbúum. Flýta verkinu ekki um of Auk hjólreiðastígsins er ráðgert að bæta við forgangsakrein fyrir strætisvagna, reisa hljóðmön, byggja útsýnispall og koma á há- spennustreng við húsin. Að sögn Róberts Guðmundar Eyjólfssonar, verkefnisstjóra fram- kvæmdarinnar, hefur Reykjavíkur- borg reynt að taka tillit til at- hugasemda íbúanna. „Nú síðast ákváðum við, í sam- ræmi við ábendingar, að athuga með hæðina á hjólastígnum. Við er- um með það í athugun núna,“ segir hann, en von er á niðurstöðu eftir eina til tvær vikur. Róbert segir að ekki verði þrýst um of á verktaka að klára hjóla- stíginn, unnið verði að fram- kvæmdunum á „eðlilegum“ hraða á meðan. „Í staðinn fer verktakinn í strætó-aðreinina. Við höfum ekkert verið að þrýsta of mikið á verktak- ann á meðan við erum að skoða þetta,“ segir hann. Mögulegar viðbætur við manir Að sögn Róberts stýrist fram- kvæmdahraðinn ekki síst af því að hluti íbúanna hafi lýst yfir óánægju sinni með verkið. „Það er ekkert keppikefli okkar að framkvæma eitthvað sem við komumst síðan að raun um að hefði mátt gera betur. Við tökum alltaf ábendingum og viljum hafa góða samvinnu við íbúana,“ segir hann. Róbert segir að einnig komi til skoðunar að gera viðbætur við hljóðmanirnar, komi það í ljós að bæta megi hljóðvarnirnar. Einnig verði vinna vegna gróðurs sem liggja muni upp að lóðum unnin í samráði við íbúa á svæðinu. Endurmeta hæð stígsins við Rauðagerði  Hanna hjólastíg upp á nýtt í kjölfar ábendinga íbúanna  Borgin fer sér hægt í framkvæmdunum Morgunblaðið/Ófeigur Framkvæmdir Unnið að því að grafa upp úr stígstæðinu og fjarlægja tré. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þinghald í dómsmáli því, sem höfðað var vegna andláts Birnu Brjánsdóttur, hófst upp úr klukkan níu í gærmorgun, rétt rúmum sex mánuðum eftir örlagaríka atburði laug- ardagsmorgunsins 14. janúar sl. Ákærður er í málinu Thomas Fredrik Møller Olsen, grænlenskur ríkisborgari sem fæddur er árið 1987, fyrir að hafa svipt Birnu lífi. Dómþingið var haldið í Héraðsdómi Reykjaness og voru skýrslur teknar af skip- verjum grænlenska togarans Polar Nanoq í gær, en Olsen var í áhöfn togarans sem var við bryggju í Hafnarfirði þessa helgi í jan- úar. Leigði bíl til að drepa tímann Arnbjörn Bjarnason, danskur ríkisborgari fæddur árið 1973, var fyrstur skipverjanna til að bera vitni. Spurður af Kolbrúnu Bene- diktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem fer með ákæruvaldið í málinu, um tengsl sín við Thomas sagðist hann aðeins vera vinnu- félagi hans og að þess eðlis væru tengsl þeirra. Hann vissi að hann hefði verið með bíl á leigu, hann hefði verið viðstaddur ein- hverjar nætur. Spurður hvort Thomas hefði yfirleitt leigt sér bíl á Íslandi sagði Arn- björn að Thomas hefði oft leigt sér bíl, að því er virtist til að drepa tímann. Þegar skipinu hefði verið snúið til hafnar sagðist Arnbjörn aðspurður hafa tekið eftir því að Thomas væri uppi í eldhúsinu í vinnu- fötum, þegar hann hefði átt að vera að vinna. Ástand hans hefði þá versnað sífellt, hann hefði verið taugaóstyrkur og neitað öllum boðum um mat. Thomas hefði þá spurt Arnbjörn: „Ætli þeir séu komnir til að sækja mig?“ þegar lögreglan hefði komið um borð. Verjandi Thomasar spurði Arnbjörn hvernig mann- eskja Thomas væri. Sagðist hann þekkja hann sem mjög indælan náunga, hann væri vingjarnlegur og vinsæll um borð. Þurfti lyf til að róa Thomas Fyrsti vélstjóri Polar Nanoq, sem næstur bar vitni í gær sagðist hafa séð Thomas í há- deginu á laugardeginum, þar sem hann hefði komið upp landganginn með handklæði. Hann hefði þá rætt við vinnufélaga sinn um þetta. „Við héldum að einhver hefði kastað upp í bílinn, fyrst að handklæðið var með,“ sagði hann. Þá sagði hann einnig að eftir að Thomas hefði fengið textaskilaboð frá blaðamanni, þar sem spurt var um rauða bílaleigubílinn, hefði hann brotnað saman. Thomas hefði þá farið í stýrishúsið og skýrt skipstjóranum frá textaskilaboðunum. Tíu til tólf tímum eftir það hefði þurft lyf til að róa Thomas. Ekki hefði þá verið auðvelt að ræða við hann, svo taugaóstyrkur hefði hann verið. Kolbrún spurði vélstjórann því næst út í dvöl skipsins í Danmörku vegna seinni hluta ákærunnar, sem varðar fíkniefnasmygl. Sagðist hann hafa séð Olsen fara í burt á nóttunni í Danmörku. Verjandinn tók því næst til máls og spurði vélstjórann um nettengingu skipsins. Hún hefði nýst til að skrifa texta en verið erfið til notkunar í annað en það. Þola illa mótlæti Í vitnisburði fyrsta stýrimanns Polar Nanoq segir að frásögn Thomasar og Niko- laj, sem upphaflega sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins ásamt Thomasi en var síðar sleppt, um málið hafi tekið einhverjum breytingum eftir því sem leið á. Verjandi Thomasar spurði vitnið hvern- ig manneskja Thomas væri. „Það er erfitt að segja það núna, eftir allt sem hefur gerst, en Thomas var ró- legur og vinalegur.“ Verjandinn spurði vitnið út í ummæli þess í lögregluskýrslu, þess efnis að Grænlendingar þyldu illa mótlæti. „Ég er stýrimaður og þarf oft að brýna raust mína við undirmenn mína. Græn- lendingarnir fara alltaf í baklás og verja sig, bera hönd fyrir höfuð sér og benda á einhvern annan: „það var ekki ég“. “ Mæti fyrir dóm í ágúst Fyrirhugað er að Thomas Møller Olsen mæti fyrir dóm 21. ágúst þegar aðal- meðferð dómsmálsins hefst í Héraðsdómi Reykjaness. Dómsformaðurinn í málinu, Kristinn Halldórsson, frestaði þinghaldi til mánu- dagsins 21. ágúst þegar vitnaleiðslum var lokið í gærmorgun. Þá höfðu ákæruvaldið og verjandi Thomasar spurt sjö skipverja grænlenska togarans Polar Nanoq um upplifun þeirra og atburði um borð í skip- inu. Morgunblaðið/Ófeigur Skipverjar Tekin var skýrsla af sjö skipverjum Polar Nanoq í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en Thomas Møller kemur fyrir dóminn þann 21. ágúst. Olsen fékk róandi lyf um borð  Gefa þurfti meintum morðingja Birnu Brjánsdóttur lyf til að róa hann niður þegar Polar Nanoq var snúið aftur til hafnar á Íslandi  Thomasi lýst sem almennt vingjarnlegum og vinsælum um borð Morgunblaðið/Eggert Handteknir Í Hafnarfirði beið fjöldi lög- reglumanna komu skipsins. Skipstjóri grænlenska togarans Polar Na- noq segist ekki hafa neitt annað en gott að segja um Thomas Olsen. Spurður um sam- skipti sín við Thomas eftir að hann hefði lesið á netinu um rannsókn á hvarfi Birnu sagðist skipstjórinn hafa nefnt þetta við hann. „Ég fór að ræða við hann um þetta, eftir að hafa séð þetta á netinu, og þá sagði hann að það hefðu verið tvær stelpur í bíln- um og að hann hefði keyrt þær upp í Krónu.“ Thomas hefði þá sýnt honum textaskilaboð frá blaðamanni. „Thomas kom og sýndi mér SMS-ið og ég sagði við hann: „Leggðu þig bara.““ Skipstjórinn sagði fjölmiðla hafa hringt mikið í skipið, en í eitt sinn hefði það verið lögreglan. Hún spurði hvort vopn væru um borð, hversu langt skipið ætti eftir í land og sagði loks að þeir kæmu vopnaðir um borð með þyrlu. Sagði honum að leggja sig SKIPSTJÓRINN BAR VITNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.