Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN
Nokkur olíumengun er nú sjáanleg í
neðanverðum Grafarlæk sem liggur
út í Grafarvog. Fólki er ekki talin
stafa hætta af menguninni, en tals-
verð sjón- og lyktarmengun er á
svæðinu. Segir frá þessu í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg.
Vitað er að olíumengun berst í
Grafarlæk úr regnvatnsrás og við
úrkomu, líkt og þá sem var í gærdag,
eykst mjög flæði gegnum rásina.
„Ekki er hægt að útiloka að enn
komi mengun frá uppsprettu en
sennilegra er að um útskolun eldri
mengunar frá því á föstudag og laug-
ardag sé að ræða,“ segir í tilkynn-
ingu borgarinnar. Þá telur slökkvilið
að ekki sé um mikla mengun að
ræða, en samkvæmt upplýsingum
frá Reykjavíkurborg verður vand-
lega fylgst með gangi mála og metið
hvort tilefni sé til frekari aðgerða
eða athugana með tilliti til áhrifa á
lífríki á svæðinu.
Enn mengun í læknum
Olíubrák sést
í neðanverðum
Grafarlæk
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Sóðalegt Olíubrákin sést vel í læknum en hún er þó ekki talin vera mikil.
SVIÐSLJÓS
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Þetta er búið að vera töluvert
bras, eins og alþjóð veit, en nú er-
um við vonandi að nálgast loka-
hnykkinn í því að gera við þennan
búnað sem er bilaður,“ segir Hild-
ur Ingvarsdóttir, forstöðumaður
viðhaldsþjónustu hjá Veitum. Í
gær unnu starfsmenn Veitna og
verktakar að viðgerð á neyðarloku
í skólpdælustöðinni við Faxaskjól.
Áætlað var að viðgerð myndi ljúka
um það leyti sem Morgunblaðið
færi í prentun.
Ólag hefur verið á lokunni síðan
um miðjan síðasta mánuð, með
þeim afleiðingum að óhreinsað
skólp hefur runnið til sjávar við
dælustöðina, samtals í 18 daga.
Áætlað er að 750 lítrar af óhreins-
uðu skólpi hafi runnið í fjöruna á
hverri sekúndu að meðaltali, þann
tíma sem neyðarlúgan var opin.
Í gær var neyðarlúgan í Faxa-
skjóli opnuð, fyrst að morgni, er
viðgerð fór fram á lokunni sjálfri
og síðan á flóði og fjöru, er virkni
lokunnar var prófuð. Opnun lúg-
unnar vakti mikla kátínu máva-
gers við ströndina, sem virtist líta
óheft skólpflæðið jákvæðari aug-
um en mannfólkið.
Starfsmenn Veitna ásamt verk-
taka sáu um viðgerðina á neyðar-
lokunni, sem ætti að leiða til þess
að fráveitukerfi höfuðborgarsvæð-
isins virkaði sem skyldi og að ein-
ungis yrði notast við neyðarlúguna
í undartekningartilfellum.
Neyðarlúgan opnast þegar
ákveðið magn skólps safnast fyrir
í dælustöðinni og þá flæðir skólpið
út um neyðarlúguna í sjóinn „Ef
hún myndi ekki opnast þá gæti
skapast þrýstingur í kerfinu þann-
ig að það flæddi upp úr hjá íbú-
um,“ segir Hildur.
Nánar tiltekið myndi skólp
flæða upp um niðurföll og klósett
á lægstu svæðum fráveitukerf-
isins. Það yrði óskemmtilegt fyrir
alla.
„Við ætlum ekki að láta það ger-
ast. Ef það verður rafmagnslaust,
þá fer kerfið í svipað horf og það
var í áður en hreinsistöðvarnar
komu til sögunnar. Fráveitan
verður að virka þannig að við get-
um alltaf losað skólp, en við þurf-
um áfram að vinna að því að bil-
anir verði fátíðari,“ segir Hildur.
Veitur hreinsa fjörurnar
Töluvert af aðskotahlutum er í
skólpi höfuðborgarbúa, sem ættu
alls ekki að vera þar. Dömubind-
um, eyrnapinnum, blautþurrkum
og fleiru þess kyns hefur skolað á
land í kjölfar skólpflæðisins síð-
ustu vikur. Starfsmenn Veitna sjá
um að hreinsa strandlengjuna.
„Við erum búin að fara nokkrum
sinnum í fjöruna og munum skoða
fjöruna aftur að þessari aðgerð
lokinni. Það má alveg gera ráð
fyrir því að eitthvað skolist á land
í samfara þessu, þótt opnunin nú
sé mun skemmri en allar þær opn-
anir sem hafa verið undanfarinn
mánuð,“ segir Hildur.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
ráðleggur fólki, sérstaklega sjó-
sunds- og siglingafólki, að vera
ekki nærri dælustöðum við Skelja-
nes og Faxaskjól í dag, þar sem
hætta sé á að saurgerlamengun í
sjó sé yfir viðmiðunarmörkum.
Starfsmenn Veitna reyna að
beina fólki frá fjörunni. „Við erum
búin að setja upp skilti hérna sitt
hvorum megin í fjörunni og líka
við Skeljanesið ef fólk kemur
hérna labbandi alveg grandalaust
og ætlar í fjöruferð,“ segir Hildur.
Fyrsta stigs hreinsun
Skólphreinsun Veitna á höfuð-
borgarsvæðinu er svokölluð fyrsta
stigs hreinsun. „Fyrsta stigs
hreinsunin virkar þannig að ruslið
er hreinsað frá, en einnig er skil-
inn frá allur sandur og fita. Svo er
skólpinu dælt fjóra eða fimm kíló-
metra á haf út,“ segir Hildur.
Víða er gerð krafa um frekari
hreinsun á skólpi áður en því er
dælt út í náttúruna og er fyrsta
stigs hreinsun lágmarkshreinsun á
skólpi. „Við búum við þennan við-
taka, sem Atlantshafið er og skil-
greindur sem síður viðkvæmur
viðtaki í fráveitufræðunum,“ segir
Hildur.
Á nokkrum stöðum á landinu,
þar sem aðstæður til að losa skólp
í haf eru ekki fyrir hendi, eru þró-
aðri aðferðir notaðar við fráveitu,
en þær eru töluvert kostn-
aðarsamari. „Hvað framtíðin ber í
skauti sér og hvaða kröfur verða
gerðar í framtíðinni, það verður
bara að koma í ljós,“ segir Hildur.
Neyðarlokan í Faxaskjóli löguð
Unnið að viðgerð neyðarlokunnar í gær Skólpið flæddi óhreinsað í fjöruna meðan á viðgerð stóð
Að meðaltali flæddu 750 lítrar af skólpi út um neyðarlúguna á hverri sekúndu í 18 daga í sumar
Morgunblaðið/Golli
Viðgerð Starfsmenn Veitna og verktakar vinna að því að losa neyðarlokuna til að geta hafið viðgerð á henni. Undir
fótum þeirra rennur óhreinsað skólpið beint út í fjöru, þar sem mávarnir gleðjast yfir næringarríkri fæði.
Lokan Neyðarlokan umtalaða var hífð upp til viðgerðar. Dælustöðin Vinnusvæðið við Faxaskjól var kirfilega afmarkað.
Mengunarmál hafa verið í um-
ræðunni hér á landi í sumar.
Skólpmengunina frá dælustöð
Veitna við Faxaskjól ber þar
sennilega hæst. Málið hefur
vakið mikla athygli, ekki síst
vegna þess hversu langur tími
leið frá því málið kom upp þar
til íbúar voru látnir vita. Fyrstu
tilkynningar af málinu bárust
frá þremur óheppnum konum
sem voru svamlandi í skítnum
við ströndina á árabrettum.
Auk skólpmálsins hafa kom-
ið upp alvarleg tilvik meng-
unar í Varmá í Mosfellssveit.
Þá varð olíuleki á Akranesi í
síðustu viku, auk þess sem
olía hefur lekið í læk í Grafar-
vogi.
Mengun mik-
ið í deiglunni
UMHVERFISMÁL