Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 8
Orðið á götu Eyjunnar segir „aðstemningin hafi verið orðin
heldur súr innan
Sjálfstæðisflokksins
með stjórnarsam-
starfið og yfirlýs-
ingar tveggja ráð-
herra Viðreisnar,
sem boða beinar
skattahækkanir,
hafi gert ástandið
miklu verra. Benedikt Jóhannesson
fjármálaráðherra boðaði í vikunni
að tollar og gjöld á
díselolíu verði
hækkuð til að jafna
stöðu þess eldsneyt-
isgjafa gagnvart
bensíni.
Auðvitað datthonum ekki í
hug að lækka gjöldin á bensínið til
að jafna stöðuna. Útvarpsgjald er
hækkað, þótt einkareknir fjöl-
miðlar eigi allir í vök að verjast.
Og nú er tilkynnt um stór-hækkun veiðigjalda á útgerð-
ina og miðað við afkomuna árið
2015, enda þótt allir viti að geng-
isbreytingar síðan hafi gjörbreytt
rekstrarumhverfinu í sjávarútvegi.
Stutt er síðan kynnt voru áformum hækkun virðisaukaskatts á
ferðaþjónustu, þvert á gefin loforð.
Á sama tíma er orðið ljóst að rík-isstjórnin ætlar ekki að standa
við loforð til fyrirtækjanna í land-
inu um að lækka tryggingagjaldið,
þótt atvinnuleysi sé nánast ekki
neitt.“
Menn hljóta að spyrja af hverju íósköpunum Steingrímur og
Indriði eru ekki fengnir aftur.
Hvers vegna sjá amatörar í skatta-
hækkunum, eins og Sjálfstæðis-
Viðreisn um svona verk, þegar frá-
bærir fagmenn liggja óbrúkaðir á
lausu?
Steingrímur J.
Nota ber fagmenn
STAKSTEINAR
Indriði
Þorláksson
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Veður víða um heim 18.7., kl. 18.00
Reykjavík 12 rigning
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 15 rigning
Nuuk 6 rigning
Þórshöfn 15 léttskýjað
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 21 skúrir
Helsinki 19 léttskýjað
Lúxemborg 28 léttskýjað
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 23 skýjað
Glasgow 23 léttskýjað
London 25 heiðskírt
París 32 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 21 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 30 heiðskírt
Moskva 20 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 35 léttskýjað
Barcelona 30 léttskýjað
Mallorca 33 heiðskírt
Róm 30 heiðskírt
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 24 léttskýjað
New York 27 heiðskírt
Chicago 26 heiðskírt
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:55 23:14
ÍSAFJÖRÐUR 3:27 23:52
SIGLUFJÖRÐUR 3:08 23:37
DJÚPIVOGUR 3:17 22:51
Stefnt er að því að ljúka uppgreftri við Dysnes í
Eyjafirði í þessari viku. Þetta segir Hildur Gests-
dóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Ís-
lands. Um mánuður er síðan víkingasverð fannst í
bátskumli á svæðinu og hófst eiginlegur uppgröft-
ur nokkrum dögum síðar. Af sex kumlum á svæð-
inu er búið að grafa fjögur upp og hið fimmta er
langt komið. Hildur segir síðasta kumlið komið
styttra á leið og útilokar ekki að eitthvað nýtt finn-
ist í því. Svo virðist sem þrjú kumlanna geymi
mann og hest og standa vonir til að eitthvað finnist
af heillegum hestabeinum í því síðasta.
Í byrjun mánaðar flutti Morgunblaðið fréttir af
því að til stæði að flytja 1.000 gripi af svæðinu í
geymslur Þjóðminjasafnsins í Hafnarfirði. Þeim
flutningum er að mestu lokið.
Rannsóknin er svokölluð framkvæmdarann-
sókn og stofnað til hennar vegna fyrirhugaðra
hafnarframkvæmda á svæðinu. Hildur segir sögu-
sagnir lengi hafa gengið um mannabein í sjávar-
rofinu en ekkert hafi verið sýnilegt. Því hafi hún
ekki gert sér sérstakar vonir um að eitthvað kæmi
til með að finnast. alexander@mbl.is
Uppgreftri á Dysnesi að ljúka
Vonast til að finna
hestabein í sjöttu gröfinni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dysnes Fornleifafræðingar taka hér höndum
saman við að ná upp víkingasverði úr bátskumli.
Samtök fiskframleiðenda og út-
flytjenda (SFÚ) telja í yfirlýsingu
að ákvörðun sjávarútvegsráðherra
um veiðileyfagjöld á árinu 2017 sé
ekki til þess fallin að auka framboð
af fiski inn á fiskmarkaði. SFÚ ótt-
ist að ákvörðunin verði til þess að
veikja og stofna jafnvel í hættu
rekstri einyrkja í útgerð, sem fram
til þessa hafi verið einna ötulastir í
að selja afla sinn á fiskmörkuðum.
SFÚ telur að eðlilegt væri að öfl-
ugir seljendur á fiskmörkuðum
fengju ívilnun í formi afsláttar af
veiðigjöldum.
„SFÚ skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að endurskoða ákvörðun
sína og tryggja að breytingar á
veiðigjaldi taki fullt tillit til smærri
aðila í greininni og einyrkja.“ Lyk-
ilatriði sé að gjaldtakan stuðli að
auknu framboði á fiskmörkuðum í
þágu greinarinnar.
Mótmæla
veiðigjöldum
Morgunblaðið/Alfons
SFÚ Samtökin telja að ákvörðun
ráðherra veiki rekstur einyrkja.150.000kr.
ferðavinningur
Þegar þú kaupir JORDAN INDIVIDUAL tannbursta
og sendir okkur ljósmynd af kassastrimlinum á
netfangið jordan@lindsay.is, átt þúmöguleika á
glæsilegum vinningum. Dregið verður 28. júlí 2017.
www.facebook.com/jordanaislandi
30.000 kr. vöruúttekt í Bónus
20.000 kr. vöruúttekt í Bónus
ELSKAÐU TENNURNAR
sumarleikur
jordan í bónus