Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Drottning Elísabet II. er dáð af þegnum sínum og á að auki stóran aðdá- endahóp víða um heim. Hún nýtur þess að lesa góðar bækur í frítíma sínum. Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja@mbl.is E lísabet Englands- drottning hefur ríkt í 64 ár, lengur en nokk- ur annar þjóðhöfðingi. Drottningin hefur lif- að viðburðaríka ævi og getur á sínu 92. aldursári litið til baka á ótal at- burði. Breska vefsíðan independ- ent.uk.com tók saman nokkra punkta um þessa merku konu. Elísabet II. Englandsdrottning fæddist 21. apríl árið 1926, en státar í raun af tveimur afmælisdögum. Hinum rétta í apríl og opinberum afmælisdegi í júní, en það er gert til þess að auka líkurnar á góðu veðri á hátíðarhöldunum sem haldin eru ár hvert í tilefni af afmæli hennar. El- ísabet var krýnd drottning árið 1953, aðeins 25 ára gömul og var krýning hennar sú fyrsta í sögunni sem var sjónvarpað. Í valdatíð sinni hefur hún farið í 261 opinbera heim- sókn til 116 landa, þar af tuttugu og tvisvar til Kanada. Henni hafa verið gefnar ótal gjafir, meðal annars fíll sem var komið fyrir í dýragarði í London. Á hverjum morgni er drottningunni færður morgun- verður í rúmið sem samanstendur af skál af Special K, hafragraut, jógúrt og tvenns konar marmelaði. Er með ofnæmi fyrir köttum Elísabet II. er mikil hunda- manneskja og ræktar sína eigin teg- und en það gerir hún með því að blanda saman corgi-hundi og dachs- hund eða langhundi, svo úr verður dorgi. Hins vegar er hún með of- næmi fyrir köttum. Elísabet sendi sinn fyrsta tölvupóst árið 1976 og Glæpasögur og gin í miklu uppáhaldi Elísabet II. Englandsdrottning er ein þekktasta kona samtímans. Andlit hennar prýðir breska peningaseðla og vart finnst það mannsbarn sem ekki hefur heyrt á nafn hennar minnst. En á bak við glamúrímyndina af þessari virðulegu drottn- ingu sem hefur lifað tímana tvenna er kona sem ræktar sína eigin hundategund og horfir á bandaríska skemmtikraftinn Ali G. Gin Drottningin drekkur gin á mannamótum en líkar verr við kampavín. Hún fær sér þó yfirleitt sopa af því, fyrir kurteisis sakir. Ljóð hafa fylgt mannkyninu svo lengi sem elstu menn muna og vinsældir þeirra virðast hafa aukist gríðarlega á síðustu árum með þróun tækninn- ar. Finna má ljóð á ólíklegustu stöð- um, svo sem á samfélagsmiðlum á borð við Instagram og Twitter og á hljóðvefnum Spotify. Ljóðskáld nú- tímans eru gjörólík forverum sínum. Í dag má finna ljóðskáld á kafi í stjórn- málum og uppi á sviði á Glastonbury- tónlistarhátíðinni. „Þetta eru áhugaverðir tímar fyrir ljóðskáld, sérstaklega fyrir okkur konur,“ sagði Greta Bellamacina, ljóðskáld og útgefandi, í samtali við BBC. „Með tilkomu netsins getur fólk gefið sitt efni út sjálft og fengið aðra til þess að gagnrýna verkin. Konur sérstaklega geta skrifað um efni sem þær hefðu ef til vill ekki getað áður. Ég er partur af ótrúlega stóru sam- félagi kvenkyns ljóðskálda,“ sagði Greta. Þetta er alþjóðlegt samfélag, með tilkomu samfélagsmiðla er auð- veldara fyrir ljóðskáld víðsvegar um heiminn að tengjast og bera saman bækur sínar. „Heimur ljóðanna er alþjóðlegur, við sem ljóðskáld höldumst í hendur þvert yfir landamæri,“ segir Salena Gooden, breskt ljóðskáld. Að hennar mati má rekja vinsældir ljóða til þess sem er að gerast í stjórnmálum. „Fólk leitar meira í að skrifa og semja nú heldur en áður. Að semja ljóð er á vissan hátt byltingarkennd hegðun.“ Fólk er meðvitaðara nú en áður um að það er ákveðin barátta í gangi,“ segir Salena. Hún segir áheyrendur auk þess vera farna að gera meiri kröfur til ljóðagerðar. Skyggnst inn í alþjóðlegt samfélag ljóðskálda AFP Lestur Að lesa getur verið góð skemmtun og ekki síðra ef um falleg ljóð er að ræða. Ljóðagerð hefur breyst mikið í gegnum árin, þökk sé þróun tækninnar. Hin ljóðræna bylting sem þekkir engin landamæri Borgarbókasafnið býður upp á bókmenntagöngur á ensku alla fimmtudaga í júní, júlí og ágúst og er næsta ganga áætluð 20. júlí næstkomandi. Um er að ræða göngu sem snýst að mestu um glæpi og drungalega atburði í bókmenntum sem tengjast Reykjavík og því munu gestir fá góða innsýn í íslenskar glæpa- og draugasögur. Starfsfólk Borg- arbókasafnsins mun leiða gönguna og kostar 1.500 krónur að taka þátt. Miða má nálgast á bókasafninu í Grófinni og á vefnum tix.is en frítt er fyrir 17 ára og yngri sem vilja taka þátt. Lagt verður upp frá Grófinni við Tryggvagötu og segir á vef Borgarbókasafnsins að gangan verði á ró- legum nótum og mun hún taka um það bil 90 mín- útur. Gangan næstkomandi fimmtudag mun hefjast klukkan 15:00 og standa til um það bil 16:30. Áhuga- fólk um hryllings- og glæpasögur er eindregið hvatt til þess að taka þátt. Bókmenntaganga Borgarbókasafnsins verður gengin alla fimmtudaga í sumar Á draugalegar slóðir Morgunblaðið/Styrmir Kári Bækur Starfsmenn Borgarbókasafnsins munu leiða gesti á slóðir íslenskra drauga- og glæpasagna í sumar. Margrét Kjartansdóttir Rangt var farið með föð- urnafn Mar- grétar Kjart- ansdóttur í viðtali við hana um ís- lenska fjár- hunda og hundaræktun í Morgunblað- inu í fyrradag. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Margrét Kjartansdóttir Bíó Paradís ætlar að bjóða aðdáend- um kvikmyndarinnar Með allt á hreinu á svokallaða sing-a-long- sýningu hinn 20. júlí næstkomandi og hefst skemmtunin klukkan 20:00. Valdir meðlimir Stuðmanna verða viðstaddir og munu þeir taka lagið með gestum en tilefnið er 35 ára af- mæli hinnar sívinsælu kvikmyndar. Fólk er hvatt til að láta þennan við- burð ekki framhjá sér fara. Skemmtun í Bíó Paradís Syngdu með Stuðmönnum Morgunblaðið/Golli Tónlist Valdir meðlimir hljómsveit- arinnar mæta í Bíó Paradís 20. júlí. ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL *Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is GeoSilica kísilvatnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ. ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR „Ég mjaðmargrindarbrotnaði illa fyrir tíu mánuðum, ég hef verið að taka kísilinn ykkar núna í u.þ.b. 8 mánuði og eftir tveggja til þriggja mánaða inntöku varð ég strax vör við mikinn mun. Í dag finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“ • Styrkir bandvefinn* • Stuðlar að þéttleika í beinum* • Styrkir hár og neglur* • Stuðlar að betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð* Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Úrval af rafdrifnum hvíldarstólum Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.