Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 17

Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 SUMARÚTSALA -30% verð áður kr . 316 .300 Lu ig i tungusóf i með st i l lanlegum hnakkapúðum verð nú kr . 221 .400 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að Bandaríkjamenn hygðust beita Írana enn frekari við- skiptaþvingunum, bæði vegna til- rauna Íransstjórnar með langdræg- ar eldflaugar og vegna meints stuðnings landsins við hryðjuverka- samtök í Mið-Austurlöndum. Tilkynningin kom degi eftir að Do- nald Trump Bandaríkjaforseti ákvað að Bandaríkin myndu standa við samninginn um kjarnorkuáætlun Ír- ans, sem fyrirrennari hans, Barack Obama, stóð að. Staðfesti Banda- ríkjastjórn við það tilefni að allt benti til þess að Íranar hefðu staðið við sinn hluta samningsins, en varaði við því að hegðun Íransstjórnar væri enn mikið áhyggjuefni. Mætti þar til dæmis nefna stuðning Írana við hryðjuverkasamtökin Hisbollah og Hamas, ríkisstjórn Bashars al-Ass- ads í Sýrlandi og uppreisnarmenn í Jemen. Mótmæla „ævintýramennsku“ Íranar brugðust ókvæða við þeim ásökunum og samþykkti íranska þingið fyrr um daginn að auka fjár- heimildir til eldflaugatilrauna sinna, sem og til þess hluta byltingarvarð- arins, sem falið er að sinna verkefn- um utan landamæra Írans. Sögðu þingmennirnir þessi skref nauðsynleg til þess að hamla gegn „ævintýramennsku Bandaríkjanna“ í Mið-Austurlöndum. Samkvæmt tillögunum sem þingið samþykkti mun Íran veita um 260 milljónir bandaríkjadala til eld- flaugaáætlunar sinnar og samsvar- andi upphæð til byltingarvarðarins, en samtals nema þessar upphæðir um 53 og hálfum milljarði íslenskra króna. Láta samninginn standa  Bandaríkjastjórn tilkynnir frekari viðskiptaþvinganir á hendur Írönum AFP Refsiaðgerðir Stuðningsmenn kjarnorkusamningsins í Bandaríkj- unum hafa látið í sér heyra. Slökkviliðsmenn í Króatíu og Svartfjallalandi heyja nú harða baráttu við skógarelda, sem hófust um helgina. Eldurinn upphófst í nágrenni borgarinnar Split, en hún er vinsæll ferðamannastaður. Stjórnvöld í Króatíu áætla að um 4.500 hektarar af landi hafi nú þegar orðið eldinum að bráð, en ekkert mannfall hefur orðið til þessa. Stórir hlutar af Split og nágrenni eru hins vegar án vatns og rafmagns. AFP Skógareldar geisa við Adríahaf Líkur á að ný heilbrigðis- löggjöf Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta fáist samþykkt af Bandaríkjaþingi fara nú sífellt þverrandi. Eitt af kosningalof- orðum Trumps var að afnema gildandi heilbrigðis- löggjöf, sem forveri hans í embætti, Barack Obama, kom á, en fjórir þingmenn repúblikana hafa nú þeg- ar tilkynnt að þeir séu á móti frum- varpinu og ætli ekki að greiða at- kvæði með því. Skiptar skoðanir eru um frumvarpið meðal þing- manna flokksins. Sumir þeirra telja það ekki ganga nógu langt í að af- nema löggjöf Obama, á meðan aðrir hafa áhyggjur af áhrifum þess á þá landsmenn sem standa hvað verst að vígi. Frumvarpið er einstaklega óvinsælt meðal kjósenda, sam- kvæmt könnunum. Heilbrigðislöggjöfin ekki afnumin í bráð Donald Trump BANDARÍKIN Nikola Dimitrov, utanríkis- ráðherra Make- dóníu, hafnaði því í gær að land hans gæti tekið upp skammstöf- unina FYROM og þannig leyst ára- tugalangar deil- ur við Grikki, sem einnig gera tilkall til nafnsins Makedónía. „Þegar þið segið FYROM hefur það jafnmikla tengingu við land mitt og „klingónska“,“ sagði Dim- itrov. Vísaði hann þar til þekktra geimvera í bandaríska vísinda- skáldskapnum Star Trek. Klingónar eru þar oftar en ekki helstu keppinautar mannkyns um reikistjörnur og auðlindir og hefur meira að segja verið búið til heilt tungumál, klingónska. Meðal ann- ars hefur Hamlet eftir Shakespeare verið þýddur á það mál. Skammstöfunin lík klingónsku Nikola Dimitrov MAKEDÓNÍA Að minnsta kosti 547 kórdrengir sættu kynferðislegu og líkamlegu of- beldi í Regensburger Domspatzen, kórskóla kaþólsku kirkjunnar í Reg- ensburg í Þýskalandi. Þeir lýsa veru sinni í kórnum sem „fangelsi“, „helvíti“ og „útrýmingar- búðum“. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem rannsakaði ásakanir um kynferðisbrot innan drengja- kórsins sem var kynnt í gær. Lögfræðingurinn Ulrich Weber fór fyrir rannsókninni og í skýrslu hans kemur fram að á árabilinu 1945 og þar til snemma á tíunda áratug síðustu aldar hafi hann fundið 67 dæmi um kynferðislega misnotkun og 500 um annars konar líkamlegt ofbeldi. Weber segir fórnarlömbin hafa fundið fyrir gríðarlegu varnar- leysi og lýst grófu ofbeldi, m.a. nauðgunum, barsmíðum og að hafa verið svelt. Weber segir að mikil þöggun hafi ríkt um málið og ábyrgðin hvíli m.a. á fyrrverandi kórstjóra, Georg Ratz- inger, sem er eldri bróðir Benedikts, fyrrverandi páfa. Ratzinger er 93 ára og neitar því að hafa vitað af ofbeldinu en hann var kórstjóri á árunum 1964-1994. Weber segir hann hafa brugðist í því að taka í taumana. Í stað þess hafi hann litið undan og ekki skipt sér af. Weber segir að ofbeldið hafi aðal- lega verið framið á heimavist í bæn- um Regensburg. Hann hefur fengið upplýsingar um 49 gerendur en ólík- legt þykir að þeir verði ákærðir þar sem málin eru fyrnd. Hins vegar er talið að fórnarlömb- unum verði greiddar bætur. urdur@mbl.is Kórdrengir beittir ofbeldi  Lýsa veru sinni í kórnum sem helvíti á jörð AFP Skýrsla Lögfræðingurinn Ulrich Weber fór fyrir rannsókninni. Í nýrri skýrslu á vegum breskra stjórnvalda er lagt til að fyrirtæki heimili starfsfólki sínu að reykja raf- sígarettur, eða „veipa“, á skrifstof- unni og í lokuðum almennings- rýmum. Tilgangur þess yrði sá að tryggja sem best aðgengi að öruggari val- kostum við hefðbundnar reykingar, þannig að þær leggist á endanum af. Þannig segir í skýrslunni að vinnu- veitendur ættu að hafa í huga að það gildi ekki sömu reglur um rafrettur og sígarettur, og að því ætti ekki að beita sömu hömlum á notkun raf- rettna. „Gögnin benda sífellt meir til þess að rafrettur séu talsvert minna skaðlegar heilsunni en tóbaks- reykur,“ segir í skýrslunni, en þar kemur einnig fram að markmið breskra stjórnvalda sé að fækka reykingafólki, en talið er að um 15,5% af fullorðnum Bretum reyki, og hefur þeim fækkað ört á síðustu árum. Rafrettur á skrif- stofunni?  Ný skýrsla breskra stjórnvalda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.