Morgunblaðið - 19.07.2017, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.07.2017, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Undirritaðir iðn- meistarar hafa í nokkrum blaða- greinum ítrekað gert athugasemdir við róttækar áætl- anir um breytingar á iðnmenntun í land- inu. Framtíðarstefna? Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands hafa í blindni fylgt eftir áætlun Hvítbókar menntamálaráðherra um skipulag vinnustaðanáms. Í Hvítbókinni segir orðrétt að stefnt sé að „Endurskipulagningu náms á starfsmenntabrautum með einfald- ara grunnnám að leiðarljósi, þrepaskiptingu, hæfniskröfum, og styttingu námstíma“. Svo merki- legt sem það er þá vill enginn kannast við þrepaskipt starfsnám eða styttingu námstíma. Í skrif- legri fyrirspurn undirritaðra til menntamálaráðuneytis 18. ágúst 2016 er ráðuneytið beðið um að „farið verði rækilega ofan í áætl- anir um þrepaskipt starfsnám í stað hefðbundins iðnnáms og hvert þessi breyting leiðir færni iðn- aðarmanna framtíðarinnar“. Í svari ráðuneytisins frá 9. sept. 2016 kemur m.a. eftirfarandi fram: „Af þessu tilefni vill ráðuneytið benda á að samkvæmt 30.gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 lýk- ur námi í löggiltum iðngreinum með sveinsprófi. Því telur ráðu- neytið ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því að nemendur út- skrifist með lakari kunnáttu en kröfur eru gerðar um á vinnu- markaði.“ Af hverju er ráðuneytið að gefa út hina svokölluðu Hvítbók ef ekkert er að marka framtíð- arstefnuna í henni? Þörf spurning Jón B. Stefánsson, skólameistari Tækniskólans, ræddi í hátíðarræðu hinn 25. maí sl. m.a. um náin tengsl skólans við atvinnulífið og rétt nemenda til starfsnáms sem hluta lokaprófs. „Samstarf Tækni- skólans við atvinnulífið á að vera í stöðugri þróun bæði hvað varðar innihald og inntak náms í skóla og á vinnustað. Vinnustaðanámið er eitt brýnasta úrlausnarefni at- vinnulífs og skóla um þessar mundir og á Tækniskólinn að gegna lykilhlutverki í að brjóta upp hefðir sem standa í vegi þró- unar sem getur leitt af sér styttra nám og betri nýtingu á tíma nem- enda. Nemandi sem skráir sig í skóla á rétt á að ljúka sínu námi að meðtöldu vinnustaðanámi, innritun í skóla á að tryggja þann rétt.“ Skólameistarinn verður að gera betri grein fyrir því hverjir og hvaða hefðir standa í veginum. Eru það kannski iðnmeistararnir sem hafa í áratugi borið hitann og þungann af iðnmenntun og greitt fyrir hana? Iðnnám á krossgötum Aðeins 12% nemenda fara í iðn- nám á Íslandi að loknum grunn- skóla en yfir 30% í Þýskalandi. Það er öllum löngu ljóst að eitthvað mikið er að iðnnámi á Íslandi. Tíma og fyrirhöfn er eytt í að leita að sökudólgum og jafnan benda menn á aðra en sjálfa sig. En hvar liggur vandinn? Skýrsla Ríkisend- urskoðunar til Alþingis í apríl 2017, sem heitir „Starfsmenntun á framhaldsskólastigi – Skipulag og stjórnsýsla“, afhjúpar blákaldan veruleikann. Í niðurstöðum og ábendingum kemur þetta fram: „Þrátt fyrir áralöng fyrirheit um að efla starfsnám á framhalds- skólastigi hafa aðgerðir stjórn- valda ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að þegar lög nr. 92/2008 um framhaldsskóla voru sam- þykkt.“ Sem sagt: Eftir setningu nýrra framhaldsskólalaga árið 2008 fór að halla verulega undan fæti. Rétt er að halda til haga hvaða samtökum var afhent fjör- egg iðnmenntunar á silfurfati við einkavæðingu iðnskólanna árin 2008 og 2015. Núna eru þessir sér- fræðingar að leggja til við sína fé- lagsmenn að iðnnám verði stytt og segja ráðherra menntamála krefj- ast þess en ráðherra kemur af fjöllum. Til umhugsunar Á Íslandi starfa nú sjö sjálf- stæðar háskólastofnanir með um 20.000 nemendur og eru heildar- framlög ríkisins til þeirra áætluð yfir 40 milljarðar kr. á árinu 2017. Framlag ríkisins til Tækniskólans, sem er stærsti iðnskóli landsins, er aðeins um 3 milljarðar króna á ári. Ljóst er að allt of litlum fjár- munum er varið til iðnmenntunar í landinu. Undirritaðir leggja til að þeir verði stórauknir og jafnframt nýttir betur til að hvetja iðnmeist- ara til að taka nema á námssamn- ing í stað rangrar menntastefnu SI. Samtökin vilja að fyrirtæki geti látið þjálfa upp „iðnmentor í stað iðnmeistara“ og tala þar gegn þeim lögum sem iðnaðurinn í land- inu starfar eftir. Iðnnám hefur hingað til kostað lítið fyrir nem- endurna en nú kveður við annan tón. Núna er til dæmis auglýst nám í flugvirkjun sem kennt er við Keili sem er afleggjari frá Háskóla Íslands og kostar tæpar 4,5 millj- ónir á ári. Tilvonandi nemendum er bent á að námið sé lánshæft hjá LÍN. Undirritaðir telja það varla geta talist til hagsbóta að steypa ungu fólki í milljóna skuldir í námi sem t.d. í Þýskalandi kostar nem- endur ekki neitt. Kostir iðnnáms eru margþættir og má t.d. nefna að fólk útskrifast með starfsrétt- indi ásamt því að mikil eftirspurn er eftir starfskröftum þess að námi loknu. Ísland og Þýskaland eru þau lönd í Evrópu sem enn halda í hið gamla meistarakerfi og í þess- um löndum er samkvæmt evr- ópsku hagstofunni minnst atvinnu- leysi hjá ungu fólki. Í Þýskalandi eru meistararéttindi jafngild BS- prófi og eru flokkuð á hæfniþrep 6 (EQF) og þar komast iðnmeistarar hindrunarlaust í nám á faghá- skólastigi. Þetta vilja háskólar á Íslandi ekki viðurkenna og bjóða margir hverjir í staðinn upp á frumgreinanám eða svokallaða há- skólabrú. Í Háskólanum í Reykja- vík, sem sérhagsmunasamtökin í Borgartúni eiga, kostar slíkt nám 426.000 kr. Háskólinn býður upp á nýja námslínu í samstarfi við Sam- tök iðnaðarins sem nefnist „Stjórn- endur í iðnaði“. Þar kosta 48 kennslustundir heilar 330.000 kr. Er þetta viðurkenning á gildi iðn- menntunar í landinu? Nei, þetta er grímulaus menntaiðnaður. Framsæknar lausnir óskast Framtíð handverks á Íslandi liggur í framsæknum lausnum, ekki vanhugsuðum skamm- tímaaðgerðum. Skýrsla Ríkisend- urskoðunar um starfsmenntun á framhaldsskólastigi staðfestir að starfsmenn sérhagsmunasamtak- anna, sem voru með puttana í iðn- námi síðustu árin, vissu ekkert hvað þeir voru að gera. Miðað við skólaárið 2014-15 hafði nemendum verk- og starfsnámsbrauta fækkað um 7% frá vetrinum 2008-09 og brautskráningum þeirra fækkað um 18%. Löngu er orðið tímabært að færa handverkið á hærra plan og losa það úr greipum þeirra er leggja stein í götu þessara mik- ilvægu greina. Stjórnmálamenn ættu að sýna vilja í verki þegar þeir tala um að efla iðnnám og hafa forgöngu um að hér verði reistur nýr iðnskóli þar sem allar iðngreinar færu undir einn hatt. Fjölmargir nemendur eru farnir að leita til Danmerkur í iðnnám vegna hás leiguverðs í borginni og ekki boðlegt að heimavistarúrræði sé ekki í boði. En úr þessu mætti öllu bæta þegar stjórnmálamenn hætta að tala og fara eins og iðn- aðarmenn. Undirritaðir leggja jafnframt til að sett verði á stofn með lögum frá Alþingi handverks- stofnun að þýskri fyrirmynd, þ.e. sjálfseignarstofnun sem myndar heildarramma um iðnað og iðnir í landinu, og allt umhverfið gert gegnsætt, faglegt og skilvirkt. Iðn- nám á Íslandi verður hvorki eflt með styttingu náms né afnámi lög- verndunar iðngreina. Menntaiðnaðurinn Eftir Sigurð Má Guðjónsson og Helga Steinar Karlsson » Iðnnám á Íslandi verður hvorki eflt með styttingu náms né afnámi lögverndunar iðngreina. Helgi Steinar Karlsson Sigurður Már er bakara- og köku- gerðarmeistari. Helgi Steinar er múr- arameistari. Sigurður Már Guðjónsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Lífeyrissjóðir væru ekki til nema vegna þeirra sem unnu fyrir þeim peningum sem í þá hafa safnast og mót- framlag atvinnurek- anda væri heldur ekki til nema vegna vinnu sama manns. En svo þroskaðist fláræðið og aumkunarverðustu þjófar Íslandssögunnar urðu til í líki ríkisstjórna síðustu fimmtíu ára. Þær ríkisstjórnir hafa allar, bæði leynt og ljóst, stolið söfn- unarfé sem fólk á starfsaldri ætlaði til að létta sér lífið með síðustu æviárin. Þetta hafa þingmenn og ráðherrar einkum gert til þess að forða öldr- uðum frá því að gleyma ætternisstap- anum. Löngum voru það helst prestar, sýslumenn og stórbændur sem nídd- ust á varnarlausum í nafni guðs og manna laga, en nútímaómerkingar þurfa engin lög, nema þá helst ólög og ekki verður annað séð en að Bjarni Ben. sé hinn lukkulegasti með að gamlingjar herði sultarólina þar sem þingmenn og ráðherrar fengu rausn- arlega uppbót í grautardalinn sinn. Ekki er að sjá að þeim leiðist heldur, vellaunuðu vesalings æviráðnu verka- lýðforingjunum, sem hafa látið þenn- an þjófnað óátalinn í fimmtíu ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur oft verið við völd á þessum tíma og við sem lengst höfum kosið hann vegna hans grundvallarstefnuskrár höfum verið svikin, sem og þeir sem þá stefnuskrá sömdu. Ég einfaldlega trúði ekki öðru en að þetta myndi fá réttan framgang þar til Bjarni jós út launahækkunum til allra sem höfðu verkfallsrétt, en gagnsemi verkfalls gufar upp nái menn því sauðvitlausa marki að verða gamlingjar eða ör- yrkjar, sem þó er auð- vitað til mikillar bless- unnar fyrir sjálftökulið ráðherra og verkfalls- leiðtoga sem þar með þurfa ekki á verkfalli að halda. Það er ekki auðséð hvernig við gamlingjar og öryrkjar getum kosið Sjálfstæðisflokkinn með Bjarna Ben. í forystu. Það er ekki nóg að bera vel góð föt og geta sett saman huggulegt mál á stundum, þegar staðfestuleysi og vingulsháttur er það sem blasir við. Það er svo sem ekki margt annað að finna en arfa í öðrum flokkum og mikið af honum, vegna þess að þeir eru svo margir að það stendur þessari þjóð fyrir þrifum. Það þarf ekki marga flokka á Al- þingi til að fjasa um fundarstjórn for- seta sem og önnur lík mál sem skap- ast af of mörgum flokkum. Þrír eru yfrið nóg og fimm er algert hámark og ætti ekki að leyfa nema svo sem einu sinni á öld. Það þarf enginn að óttast lýðræðishalla þó að flokkum fækkaði í tvo, því margir flokkar sundra en sameina ekki, sem svo víða hefur sannast. Margir flokkar hér uppi á Íslandi eru eingöngu til að sem flestir oflátungar fái að verða for- menn, en fáir flokkar kenna mönnum að vinna saman fyrir kosningar og eftir þær kemur sá lærdómur að gagni. Eftir Hrólf Hraundal Hrólfur Hraundal » Þær ríkisstjórnir hafa, bæði leynt og ljóst, stolið söfnunarfé sem fólk á starfsaldri ætlaði til að létta sér líf- ið með síðustu æviárin. Höfundur er vélvirki. Fatlaðir gamlingj- ar og ráðherrar verkfallsforingja Mikið úrval keðjusaga með tvígengis- eða fjórgengismótor. Einnig keðjusagir fyrir 230V og 18V eða 36V rafhlöður. Keðjusög með 74 cm sverði Mótor 90 cc / 4,9kW Þyngd 8,2 kg Keðjusög með 45 cm sverði Mótor 42,4 cc / 2,1kW Þyngd 4,8 kg Keðjusög með 35 cm sverði Mótor 32cc / 1,35kW Þyngd 4,2 kg Keðjusagir ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.