Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 22

Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 ✝ Jóna Haralds-dóttir fæddist í Reykjavík 11. októ- ber 1950. Hún lést í faðmi ástvina á hjúkrunarheim- ilinu Mörk aðfara- nótt mánudagsins 3. júlí 2017. Foreldrar henn- ar voru Haraldur Jónasson, gjald- keri, f. í Reykjavík 25. júlí 1918, d. 10. september 1984, og Dóra Ottesen Jósafats- dóttir, húsmóðir, f. í Reykjavík 29. júlí 1918, d. 24. maí 2017. Systir Jónu er Erla Haralds- dóttir, f. 2. júlí 1943, gift Sigurði Einarssyni, f. 7. apríl 1943. Jóna giftist þann 28. janúar 1973, Gunnlaugi Einarssyni, bif- reiðasmið, f. 9. nóvember 1948, d. 15. mars 2014. Foreldrar Gunnlaugs voru Hafliði Einar Guðjónsson, fisksali, f. 27. sept- ember 1909, d. 26. júní 1973, og Margrét Jónína Gunnlaugs- dóttir, húsmóðir, f. 3. ágúst 1912, d. 19. apríl 1995. Jóna og Gunnlaugur eignuðust tvö börn: 1) Margréti, f. 1973, gift Sig- urhans Vignir , f. 1969, börn þeirra eru Jóna Rut, f. 1998, Tómas, f. 2004 og María, f. 2004. 2) Halldór, f. 1977, giftur Hildi Sveinsdóttur, f. 1981, synir þeirra eru: Óttar, f. 2010, Rúrik, f. 2012 og Grímur, f. 2014. Jóna ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík, gekk í Vogaskóla og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla verknáms. Jóna lauk heilbrigðisrit- aranámi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 2005 og tók þátt í stofnun Félags heilbrigðisrit- ara sama ár. Hún starfaði meðal annars hjá Samvinnutrygg- ingum, á dagheimilinu Sunnu- borg og sem ritari á augnlækna- stofu. Lengst af starfaði Jóna á geisladeild Landspítalans eða í 17 ár, allt þar til hún lét af störf- um árið 2006 þegar hún fékk al- varlegt heilablóðfall. Jóna tókst á við afleiðingar þess allt til síð- asta dags og naut mikils stuðn- ings Gunnlaugs þar til hann féll frá árið 2014. Frá árinu 2010 dvaldi hún á hjúkrunarheim- ilinu Mörk og naut þar góðrar aðhlynningar og hjúkrunar. Útför Jónu fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 19. júlí 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku mamma mín. Það eru svo margar tilfinning- ar sem brjótast um í mér þessa dagana. Ég syrgi örlög þín og þjáningu síðustu 11 árin. Ég syrgi það að hafa þig ekki hjá mér, að geta ekki farið á kaffihús með þér og gert „mæðgnahluti“ með þér, að þú getir ekki notið yndislegu barnabarnanna þinna og ég græt það að þau fari á mis við þig og pabba. Ég syrgi það að þú og pabbi fenguð ekki notið efri áranna saman og ég græt hvernig lífsgæðin og lífið var hrifsað frá ykkur allt of fljótt. Ég er á sama tíma þakklát fyrir að þú skulir vera laus við þján- inguna sem þú lifðir með svo lengi. Er svo þakklát fyrir tím- ann sem við áttum saman og góðu minningarnar sem við eig- um og geymum. Ég er þakklát fyrir að hafa átt ykkur pabba að og það rifjast svo vel upp þegar ég skoða myndir af ykkur hve samrýmd þið voruð. Ég er svo þakklát fyrir þó það sem þið náð- uð að gera saman og ég veit að þið voruð ástfangin og hamingju- söm. Það var svo mikið frá ykkur tekið þegar þú veiktist aðeins 55 ára. Elsku pabbi var þér svo mik- ill stuðningur í veikindunum, vildi allt fyrir þig gera og passaði svo vel upp á þig. Þið sýnduð svo vel hvað í blíðu og stríðu í raun og veru þýðir. Missir þinn var svo sár og svo mikill þegar hann féll frá. Ég er þakklát fyrir að þú ert laus við þjáningu og veikindi en á sama tíma syrgi ég það sem hefði getað orðið. Ég rakst á þetta ljóð fyrir mörgum árum og það hefur verið greypt í minni mitt síðan. Það segir svo vel það sem er að brjót- ast um í huga mínum núna Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku mamma mín, takk fyrir allt. Ég hugga mig við að pabbi og amma hafi tekið vel á móti þér og að þú og pabbi séuð sameinuð á ný. Sakna þín. Þín Margrét (Gréta). Ilmurinn úr eldhúsinu á Lang- holtsveginum er svo lokkandi. Mamma að baka kanilsnúða eða bulla, eins og við kölluðum þá alltaf, og eldhúsið er undirlagt í bullum sem fengu að kólna áður en mamma setti þá í stór Mack- intosh Quality Street box og upp í skáp. Ég reyndar náði að stel- ast í ansi marga bulla áður en þeir komust í boxin og fannst mér það ekki leiðinlegt. Seinna meir fékk mamma mig til að baka kryddköku á meðan hún gerði bullana og er ég sannfærð- ur um að það hafi hún gert svo fleiri bullar færu ofan í boxin og upp í skáp. Þegar ég sest niður og horfi til baka eru ótal margar svona litlar fallegar minningar sem ég á um mömmu. Margar af þessum minningum tengjast líka ferða- lögum um Ísland. Mamma og pabbi voru nefnilega ansi dugleg að ferðast með mig og Grétu systur. Pabbi með fínustu ferða- græjurnar sem hann var búinn að breyta aðeins eftir sínu höfði og mamma raðaði matnum snyrtilega í ferðaboxin, öllu smellt í Toyota-jeppann hans pabba og svo af stað. Endalaust var ferðast, spjallað, hlegið og spilað ólsen-ólsen eða rommý. Mamma var líka oft frekar fynd- in á ferðalögum og gleymi ég aldrei þegar við fórum í Þórs- mörk í fyrsta skipti. Pabbi keyrði á jeppanum yfir Krossá sem var ansi vatnsmikil og flæddi vatnið yfir húddið á bílnum. Mamma ríghélt sér í innréttinguna á bíln- um og gólaði Laugi Laugi. Þetta fannst okkur frekar fyndið og hún hló að þessu eftir á. Ferð- irnar í Þórsmörk urðu ansi margar næstu árin. Eftir að við Gréta systir urðum eldri héldu mamma og pabbi áfram að ferðast hvort sem það var innan- lands eða erlendis. Þau fengu golfbakteríuna og eyddu sífellt meiri tíma í að fullkomna golf- sveifluna. Svo kom fyrsta barna- barnið þegar Gréta eignaðist Jónu Rut. Mamma hreinlega val- hoppaði yfir því að vera loksins orðin amma. Ömmuhlutverkið fór mömmu vel. Það má því segja að aðalhlutverk mömmu og pabba hafi breyst í það að verða amma og afi. Barnabörnin áttu heldur betur eftir að verða fleiri eða sex talsins. Árið 2006 fékk mamma alvar- legt heilablóðfall. Pabbi stóð eins og klettur með mömmu. Þau skyldu fara í gegnum þetta sam- an eins og allt annað í lífinu og öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Pabbi var alveg harður á því. Í gegnum veikindin voru það oft á tíðum barnabörnin sem áttu hug hennar. Hún fylgdist vel með þeim og var dugleg að hringja og spyrja um þau eða ef einhver var veikur. Ég held að það hafi gefið mömmu aukinn kraft að geta fylgst með barna- börnunum og sjá okkur Grétu í foreldrahlutverkunum. Mamma glotti líka stundum þegar ég kom með strákana mína í heimsókn, þeir hlupu út um allt og ég spurði hana: var ég virkilega svona! Ég er svo ánægður að þú hafir feng- ið að kynnast strákunum mínum og þeir þér. Amma Jóna mun alltaf eiga sérstakan stað hjá þeim og þeir vita að þú og afi Laugi fylgist með. Að kveðja elsku mömmu er erfiðara en orð fá lýst. Ég veit hins vegar að mömmu líður betur núna og fylgist vel með okkur öll- um. Nú hefst nýtt ferðalag. Pabbi er búinn að raða öllu í bíl- inn og nestið er klárt. Góða ferð, elsku mamma mín. Halldór. Elsku Jóna. Nú er komið að kveðjustund og það er mér mikil huggun að vita að nú eruð þið Laugi sam- einuð á ný. Samband ykkar var ótrúlega fallegt, þið voruð mjög samrýmd hjón og stóðuð þétt saman í blíðu og stríðu. Þú tókst strax vel á móti mér þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir rúmlega 25 árum. Mér er það enn mjög minnisstætt hversu mikið þér brá í brún þeg- ar ég og Gréta komum heim trú- lofuð ári síðar, eftir að hafa laum- ast í burtu og sett upp hringa á Þingvöllum. Þú jafnaðir þig þó fljótt, fórst út í búð, keyptir rjóma og þið Laugi bökuðuð síð- an pönnsur til að halda upp á trú- lofunina. Við áttum margar góðar stundir í gegnum árin. Það var alltaf hægt að treysta á stuðning frá þér og Lauga. Við náðum líka að ferðast saman bæði innan- lands og erlendis og þær ferðir lifa í minningunni. Elsku Jóna, þú fékkst þinn skammt af blíðu og stríðu í lífinu. Þú þurftir allt of snemma að tak- ast á við erfið veikindi sem sviptu þig lífsgæðum og því að njóta þess til fulls sem lífið hefur upp á að bjóða. Mig langar að kveðja þig með þessu ljóði eftir Sigurbjörn Þor- kelsson. Þegar þú hefur vind í fang, þá haltu höfðinu hátt. Hræðstu ei myrkrið, það mun birta til. Því að ljós heimsins mun þér lýsa í gegnum dauðans dimman dal. Hann fer á undan í gegnum storm og regn. Þú munt aldrei ganga einn, munt aldrei ganga einn. Blessuð sé minning þín, elsku Jóna. Þinn tengdasonur, Sigurhans Vignir. Mikið er erfitt að skrifa þessa kveðju til elsku tengdamömmu. Við kynntumst fyrir um 14 árum, þá bauð Halldór okkur nokkrum skólafélögum heim í klessubrauð á mjög ókristilegum tíma. Þú kíktir fram í eldhús, ypptir bara öxlum, brostir út í annað yfir syni þínum og fórst aftur inn að sofa. Tókst þessu uppátæki með stóískri ró, svona nákvæmlega eins og þér einni var lagið. Svona voruð þið hjónin, róleg og yfir- veguð. Samstiga í öllu og ein- staklega umhyggjusöm. Þið tók- uð mér með opnum örmum og ég er einstaklega heppin að hafa kynnst ykkur. En því miður, ekki löngu eftir þessi fyrstu kynni þá veiktist þú, fékkst alvarlegt heilablóðfall sem sló þögn á okk- ur öll. Þessi veikindi breyttu líf- inu, fengu mann til að sjá svo margt í nýju ljósi og þú svo sterk, alltaf viss um að þú kæmist upp úr þessum veikindum einn dag- inn. Þrautseigjan var gríðarlega mikil og við erum óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig lengur hjá okkur. Laugi þinn var þinn klettur í veikindunum, þrautseigur eins og þú og þú saknaðir hans mikið eftir að hann féll frá. Við hin átt- um öll stað í þínu stóra hjarta. Þú varst dugleg að hafa samband og yfirleitt voru það strákarnir sem þú spurðir um, þeir og ömmu- börnin voru þér allt. Þú fylgdist vel með, vissir hvað þau voru að bralla og brostir út í annað yfir öllum sögunum af þeim. Þú fylgdist róleg með þegar strák- arnir voru að grallarast í kring- um þig. Þá glitti yfirleitt fljótt í bros og húmorinn. Þeim þótti svo vænt um þig og varðveita nú minninguna um góða ömmu, varðveita allt föndrið frá þér og að sjálfsögðu höldum við áfram að segja sögurnar af þér og ykk- ur. Elsku Jóna, við vonum að þið Laugi séuð þarna saman, uppi í tungli eins og strákarnir okkar segja. Við söknum ykkar óend- anlega mikið, hefðum auðvitað kosið að hafa ykkur mikið lengur hjá okkur. Elskum ykkur. Þín tengdadóttir, Hildur og auðvitað strákarnir Óttar, Rúrik og Grímur. Orð fá því ekki lýst hvað mér hefur alltaf þótt vænt um þig, elsku systir mín, ég var sjö ára þegar þú fæddist, svo agnarlítið fyrirbura-kraftaverk. Ég man hvað ég var stolt þegar ég fékk að fara með þig út í dúkkuvagn- inum mínum, þú varst fallegasta barn sem ég hafði séð. Við Jóna ólumst upp í Hlíðun- um en fluttum síðar í Ljósheima. Jóna undi sér vel þar í Voga- skóla, síðan í Gagnfræðaskóla verknáms og fór svo til Brighton í enskuskóla. Eftir að Jóna kynntist Lauga, stóru ástinni í lífi sínu, fluttu þau í Hraunbæinn. Þau eignuðust yndisleg börn, Grétu og Halldór. Þetta voru bestu stundir Jónu, að hugsa um börnin, fallega heimilið þeirra, sauma, baka og prjóna. Margar góðar minningar á ég um okkur Jónu sitjandi með kaffibolla, talandi um allt og ekk- ert. Hvað við gátum hlegið og fíflast. Allar skemmtilegu fjöl- skylduferðirnar okkar; Spánar- ferð, sumarbústaðir, veiðiferðir, billjardkvöldin heima hjá þeim í Holtsbúðinni og öll skemmtilegu áramótin. Jóna og Laugi voru mjög sam- taka hjón. Eftir að barnabörnin fæddust var yndislegt að sjá hvað þau nutu þess að vera með þeim. Þau áttu yndisleg ár sam- an, ferðuðust víða, spiluðu golf og nutu lífsins. Árið 2006 fékk Jóna alvarlegt heilablóðfall og lamaðist. Var það mikið áfall fyrir hana, fjölskyld- una og ástvini. Upp frá því var hún bundin við hjólastól og reyndi það mikið á Lauga og börnin. Elskulegri eiginmann hefði Jóna ekki getað eignast, hann var kletturinn í lífi hennar og gerði allt sem hægt var til að gera líf hennar léttara. Fyrir rúmum þremur árum lést Laugi eftir erfið veikindi. Þetta voru erfiðir tímar hjá fjöl- skyldunni. Jóna dvaldist á Hjúkrunarheimilinu Mörk frá 2010 og fyrir þremur árum flutti mamma líka í Mörkina. Það var gott að vita af þeim þar saman, en mamma lést 24. maí síðastlið- inn. Starfsfólki hjúkrunarheimil- isins í Mörk eru færðar alúðar þakkir fyrir frábæra umönnun. Elsku Gréta, Viggi, Halldór, Hildur og börn, missir ykkar er mikill, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hvíldu í friði, elsku Jóna mín. Þín systir, Erla. Elsku Jóna lést 3. júlí sl. eftir langvarandi veikindi. Það var mjög mikið áfall þegar hún fékk heilablóðfall fyrir rúmum 11 ár- um. Lengi var haldið í vonina um bata en þær vonir rættust því miður ekki. Laugi gerði allt sem hann gat fyrir Jónu sína. Hann breytti heimilinu og reyndi að búa þann- ig um hnútana að hún gæti verið heima. Hún var heima fyrstu ár- in, svo kom að því að hún þurfti meiri umönnun og fékk hún þá vistun í Mörk, þar sem hún naut góðrar umhyggju. Við kynntumst Jónu þegar hún og Laugi fóru að draga sig saman upp úr 1970. Okkur leist strax vel á hana, skemmtilega og brosandi glæsilega stúlku sem Laugi sá ekki sólina fyrir. Þau voru alltaf jafn skotin hvort í öðru. Jóna var mikil fjölskyldu- manneskja. Heimilið var alltaf fallegt og hún annaðist fjöl- skyldu sína af alúð og umhyggju. Hún hugsaði fyrir öllu og var með allt á hreinu. Það var hún sem mundi eftir myndavélinni þegar stórfjölskyldan kom sam- an og skálaði við gestgjafa þegar tilefni var til. Það var alltaf gott og gaman að koma til þeirra hjóna í heimsókn. Í öll þessi ár hefur Jóna verið náin vinkona okkar og vinskapur við þau hjónin verður okkur allt- af dýrmætur. Margar skemmti- legar minningar frá matarboð- um, ferðalögum og hversdags- legu kaffispjalli með einstaka hláturrokum ylja okkur á þessari sorgarstundu. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Jónu, sem á um sárt að binda. Við vottum Grétu, Halldóri og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúð og biðjum góðan Guð að gefa þeim styrk til að tak- ast á við sorgina. Minningin um góða konu lifir. Ingvar og Inga. Mig langar að minnast Jónu Haraldsdóttur í örfáum orðum. Við vorum starfsfélagar í mörg ár á Geislameðferðardeild Landspítalans. Á deildinni unnu saman nokkrar heilbrigðisstéttir við geislameðferð krabbameins- sjúklinga. Þetta var tæknilega krefjandi starf þar sem engu mátti skeika. Góð samskipti við umönnun sjúklinga voru ekki síður mikilvæg. Jóna var ritari deildarinnar. Starf hennar var m.a. að halda nákvæma tölvu- skráningu yfir alla sem komu til daglegrar meðferðar. Jóna vann starf sitt af mikilli samviskusemi, aðstoðaði þá sem biðu meðferðar á biðstofunni og var alltaf til taks, ef á þurfti að halda, bæði fyrir sjúklinga og samstarfsfólk. Jóna hafði fallega og yfirveg- aða framkomu og lét ekki eril og álag starfsins koma sér úr jafn- vægi. Við vorum nokkrar sem unnum mjög náið saman og því urðu með okkur afar góð tengsl og vinátta. Í hléi frá störfum ræddum við allt milli himins og jarðar og ekki síst um fjölskyld- ur okkar, börn og barnabörn. Það fór ekki framhjá okkur, hversu samrýmd hjón Jóna og Gunnlaugur maður hennar voru. Jóna var afskaplega stolt af börnum sínum og ekki var hún síður hreykin af fallegu barna- börnunum. Hún sýndi okkur myndir af þeim og hafði þær í augsýn á vinnuborði sínu. Svo kom áfallið. Skyndilega veiktist Jóna, lagðist inn á sjúkrahús og átti ekki aftur- kvæmt á heimili sitt eftir það. Þetta voru erfiðir tímar fyrir fjölskyldu hennar. Annað áfallið varð þegar Gunnlaugur maður hennar veiktist og dó síðan langt um aldur fram. Við samstarfsfólkið söknuðum Jónu mikið. Engin Jóna að leita til. Það kom svo sannarlega í ljós, hversu miklu Jóna hafði komið í verk á sinn hljóðláta hátt og hvað hlutverk hennar var mikilvægt í starfi deildarinnar. Um leið og ég kveð Jónu og þakka henni fyrir samstarfið vil ég votta börnum hennar og fjöl- skyldunni allri mína dýpstu sam- úð. Jóna Margrét Kristjánsdóttir. Jóna Haraldsdóttir HINSTA KVEÐJA Látin er í Reykjavík Jóna Haraldsdóttir heil- brigðisritari. Skólasystur minnast Jónu Haraldsdóttur með virðingu og þakklæti fyrir góð kynni. Jóna stundaði nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla (FÁ) og lauk námi sem heilbrigðisritari 2005. Jóna var ein af stofnend- um Félags heilbrigðisritara 31. maí 2005. Var hún virk- ur félagi meðan heilsan leyfði. Blessuð sé minning hennar. Fyrir hönd skólasystra í FÁ sendum við fjölskyldu Jónu Haraldsdóttur inni- legar samúðarkveðjur. Guðríður Gðbjartsdóttir, fv. formaður FHR, og Anna Sampsted, fv. varaformaður FHR. HINSTA KVEÐJA Kæra amma, ég elska þig svo mikið. Mér þykir það leitt að ég kynntist þér ekki áður en þú veiktist. En þú verður ávallt í hjarta mínu. Þitt barnabarn, María Vignir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.