Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
✝ Brynhildur Olgeirsdóttir
fæddist í Bolung-
arvík 19. janúar
1921. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Hömrum 9. júlí
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Olgeir
Gunnar Jónsson
skrifstofumaður
frá Skjaldfönn,
Nauteyrarhreppi, f. 8. júní
1901, d. 10. september 1968, og
Ásta Júlíusdóttir, fædd á Vala-
björgum í Helgafellssveit 16.
apríl 1900, d. 14. maí 1970. Ol-
geir kom henni nýfæddri í fóst-
ur til Sesselju Einarsdóttur og
Friðriks Ólafssonar, sem
bjuggu að Ósi og seinna í Bol-
ungarvík og þar ólst Brynhild-
ur upp. Fóstursystkini hennar
voru Rósa, Sigurður og Gústi.
Brynhildur átti tvö hálfsystkini
samfeðra, þau Sesselju og Rafn
og níu hálfsystkini sammæðra,
þau Unni Sigurðardóttur, Stellu
Hansen, Reinhard Sigurðsson
og Sigurð, Stellu, Valbjörn,
Önnu, Hönnu og Róbert Þor-
láksbörn. Um fermingu fluttist
Brynhildur til Rósu fóstur-
systur sinnar í Súðavík. Hún
var farkennari 17 ára að Eyri í
inósdóttur, f. 1953. Börn: Signý,
Sindri og Ástrós. 5) Kjartan
Hauksson rafmagnstæknifræð-
ingur, f. 6. júlí 1955, kvæntur
Ásgerði Jónsdóttur, f. 1961.
Börn: Selma, Bjarki og Arnar.
6) Ísak Sverrir Hauksson eðl-
isfræðingur, f. 25. október
1963, kvæntur Guðrúnu Bryn-
dísi Karlsdóttur, f. 1967. Börn:
Teitur Áki, Freyja Sóllilja og
Hildur Iðunn. Brynhildur eign-
aðist tólf barnabarnabörn með-
an hún lifði.
Brynhildur stofnaði versl-
unina Blóm og myndir árið
1964 og rak hana á Laugavegi
53 þar sem hún seldi eftirprent-
anir af málverkum og listmuni
sem hún sjálf bjó til. Seinna rak
hún skóverslunina Mílanó að
Laugavegi 20. Brynhildur var
stofnandi og fyrsti formaður
leikfélagsins Snúður og
Snælda, 1990-1994, og sat í
stjórn þess til 2003. Brynhildur
lék í mörgum leikritum auk
þess sem hún skrifaði tvö leik-
verk fyrir leikhópinn: Ástandið,
sýnt 1997 og 2005, og Forsetinn
kemur í heimsókn, sýnt 2003.
Brynhildur flutti árið 1973 í Há-
tún 17 og ræktaði fallegan
blómagarð sem eftir var tekið.
Brynhildur var listfeng og
gerði listaverk úr járni og ís-
lenskum steinum og tók þátt í
sýningunni Íðir í Perlunni. Hún
flutti í þjónustuíbúð í Mörkinni
2011.
Hún verður jarðsungin frá
Háteigskirkju í dag, 19. júlí
2017, klukkan 11.
Seyðisfirði, Ísa-
fjarðardjúpi. Bryn-
hildur fór 18 og 19
ára í síld á Siglu-
fjörð og hitti þá
móður sína og
systkini í fyrsta
sinn. Brynhildur
kostaði sig í nám í
Héraðsskólann á
Laugarvatni. Hún
flutti að námi
loknu til Reykja-
víkur 1941 og starfaði í Fata-
búðinni þar til hún giftist 1946,
Hauki Sigurðssyni, f. 1918, d.
1998. Þau byrjuðu búskap á
Grettisgötu 69 og eignuðust sex
börn: 1) Ástríður Hauksdóttir
lífeindafræðingur, f. 14. októ-
ber 1945, gift Georg Tryggva-
syni, f. 1941. Börn: Brynhildur,
Hildigunnur, Harpa og Tryggvi
Haraldur. 2) Gylfi Hauksson
kerfisfræðingur, f. 13. ágúst
1949, d. 14. mars 2005. Hann
kvæntist Olgu Stefánsdóttur, f.
1952. Börn: Dagný og Stefán
Haukur. 3) Hjörtur Hauksson
garðyrkjumeistari, f. 8. ágúst
1951, d. 21. september 1999.
Barn: Heiðrún Hlín með Jófríði
Jóhannesdóttur, f. 1951. 4)
Trausti Hauksson efnaverk-
fræðingur, f. 11. desember
1952, kvæntur Öldu Björk Mar-
Hún Brynhildur tengda-
mamma var ljóðelsk. Því féll
henni vel ef ort var til hennar við
sérstök tilefni. Ekki sakaði ef þar
mátti greina vott af skensi, helst
smá pólitík, því þá gafst tilefni til
gagnsókna. Þetta verður loka-
bragur minn til hennar. Lýsing á
lífshlaupi, sem var um margt
merkilegt. Smá skens, til að létta
lundina. Gagnsókn hennar bíður
betri tíma.
Tímamót merkileg töldust það varla
þótt telpukorn inn milli vestfirskra fjalla
fæddist í fögrum sal.
Snerpuna og þorið á Snæfellsnes sótti
því snögg uppá lagið hún allatíð þótti,
en skapið úr Skjaldfannardal.
Ég tileinka ljóð þetta tengdamömmu
sem tölvert margt hafði á sinni könnu
og víða kom því við.
Búskapinn hóf hún á Grettisgötu
með grauta í potti, skúringafötu
og húsverk að samtímans sið.
En í henni blundaði athafnaþráin
og allatíð var sú tilhneiging náin
björgina að draga í bú.
Hún opnaði búð og byrjaði að selja
úr blómum og myndum þar mátti velja.
Endaði allvelstæð frú.
Nú skyldu taka við náðugu árin,
nú skyldu þorna öll gömlu tárin
og lífinu lifað með glans.
En þá fékk hún einhvern fiðring í fótinn
og fótnett nú steðjaði á mannamótin
að iðka þar dillandi dans.
Svo sótti hana löngun að semja sögur,
seinna heil leikrit og margskonar bögur,
arkaði loks uppá svið.
Þar hóf hún að leika og lýðinn tryllti,
leikhúsið aftur og aftur fyllti
og lófatakið tók við.
Samt einn hafði galla, sem orð ég á
geri,
að íhaldið kaus þótt það skandaliseri
og rétti að þjóðinni roð.
Tannhvöss hún skammaði
tengdasoninn
og taldi þar rýr væri atkvæðisvonin,
en Davíð hún dáði sem goð.
Nú því ber að fagna að þér þótti gaman
að þessari tilveru allri saman
og margá áttir indæla stund.
Oft gastu góðu að öðrum vikið,
í auganu leiftraði gamla blikið,
gakk heil nú á feðrana fund.
Georg H. Tryggvason.
Þá er amma mætt á stóra
dansgólfið, orðin liðug fimleika-
drottning á ný, sjónin skörp og
hún svífur um í faðmi einkenn-
isklæddra herramanna.
Þvílík kona, svo merkileg
blanda af sjálfstæðum baráttu-
jaxli, hugmyndaríku skáldi og
ástkærri ömmu. Hún var mesta
sjálfstæðiskona sem ég hef
kynnst þótt hún hafi aldrei skil-
greint sig sem slíka, hún lifði ein-
faldlega fyrir þau gildi að hver
væri sinnar gæfu smiður. Hún
þurfti sjálf að hafa fyrir lífinu og
valdi að láta mótlætið styrkja sig,
sjá gleðina í litlu hlutunum og
ánægjuna í einfaldleikanum.
„Listin að lifa er listin að vera
ánægður,“ skrifaði hún í eitt af-
mæliskortið mitt.
Amma gerði mikið úr litlu og
bjó til sín eigin tækifæri. Hún rak
lengi verslun á Laugavegi, var
fyrst til að selja plaköt hér á
landi, seldi að auki eftirprentanir
og gifsstyttur sem hún bjó til
sjálf. Í kjölfarið gerðist hún skó-
kaupmaður og var með Parísar-
tískuna á hreinu. Hún hlýtur að
hafa verið verslunarkona fram í
fingurgóma því öll þessi viðskipti
gerðu hana efnaða og þegar kom
að eftirlaunaárum var hún stönd-
ugur fasteignaeigandi á Lauga-
vegi. Hún gat því leyft sér að nýta
efri árin í ferðalög og þvældist
heimshorna á milli með vinkon-
um og vinum.
Hún var snillingur í að krydda
hversdagsleikann, dansaði með
eldri borgurum, stofnaði leik-
félag og skrifaði leikrit um
ástandsárin sem var leikið af leik-
félaginu og lesið í útvarpi. Já, það
var þá sem ég komst að því að
amma var svolítið veik fyrir ein-
kennisklæddum hermönnum og
hún sá í raun eftir því að hafa
aldrei skellt sér í ástandið. Amma
naut þess að kíkja út á lífið með
okkur barnabörnunum, fá sér
kaffi á Kaffivagninum eða smur-
brauð og öl á Jómfrúnni. Og þótt
sjónin væri nánast farin vildi hún
alltaf sitja þannig að hún „sæi“
yfir mannfjöldann.
Amma lagði mikla áherslu á að
draga fram hæfileika barnanna
og árlegt jólaboð fjölskyldunnar
varð með tímanum að hæfi-
leikahátíð þar sem börnin spiluðu
á hljóðfæri, sungu eða lásu kvæði
og sögur. Og hún hefur alltaf
hvatt okkur börnin áfram. „Leitið
tækifæranna og látið draumana
rætast.“ Hún var gjöful á góðar
hugmyndir að tækifærum og var
vel með á nótunum fram á síðustu
stundu. Hlustaði á útvarp og
sjónvarp og fylgdist betur með en
flest unga fólkið gerir í dag.
Amma var dugleg að vísa í
kveðskap og þótt skammtíma-
minnið væri farið að gefa eftir gat
hún þulið upp heilu kvæðabálk-
ana. Yfir einum af okkar góðu
kaffibollum fór hún með eftirfar-
andi lýsingu Jónasar Hallgríms-
sonar á langlífi: „Lífsnautnin
frjóva, alefling andans og athöfn
þörf.“ Fyrir konu sem varð 96 og
hálfs árs er þessi lýsing viðeig-
andi og ég held að hún hafi ætlað
henni að rata í þessa grein. Ég les
úr þessum orðum skilaboðin
„Njóttu lífsins, ræktaðu hugann
og láttu verkin tala.“
Amma var mér fyrirmynd og
minningin um hana fyllir mig
stolti og gleði. Ég hef reynt að til-
einka mér jákvæðni hennar og
baráttuanda. Og hennar vegna
reyni ég að gleyma því aldrei að
vera einfaldlega ánægð, því
meira þarf ekki til að vera ham-
ingjusamur.
Brynhildur Georgsdóttir.
Ég kveð þig nú, elsku Bryn-
hildur amma.
Þú áttir langa ævi og ég fékk
að njóta þess að eiga þig fram á
fullorðinsár. Í æsku þegar við
heimsóttum þig í Hátúnið þá man
ég vel eftir hvað ég var hrifin af
steinasafninu þínu og hvað við
fengum að leika okkur frjáls í leik
bæði inni og úti. Við hittumst oft
hjá þér frændsystkinin og fórum í
feluleiki og eltingaleiki. Við kom-
um líka við í búðinni á Laugaveg-
inum, fyrst í Blóm og myndir og
síðar í skóbúðinni Mílanó.
Jólaboðin þín voru alla tíð fast-
ur liður á jóladag. Fjölskyldan
hittist hjá þér og gladdist saman.
Þú hélst þessari hefð á meðan þú
bjóst í Hátúni og alltaf virtist
vera pláss þó svo að fjölskyldan
stækkaði.
Þú varst svo stolt af garðinum
þínum og hugsaðir vel um hann.
Hann var sannkallað blómahaf.
Ég, eins og fleiri af barnabörnum
þínum, fékk að búa í íbúðinni í
kjallaranum. Þá kynntumst við
enn betur. Við áttum góðar
stundir í spjalli við eldhúsborðið
og stundum í sólhúsinu. Þú varst
stolt af börnunum þínum og tal-
aðir oft um þann árangur sem
þau hefðu náð í lífinu. Þú hafðir
lag á að segja frá og það var gam-
an að hlusta á þig segja ferðasög-
ur enda ferðaðistu víða. Þú áttir
það líka til að spila fyrir mig og
aðra gesti tónlist eða lesa upp ljóð
sem þú varst hrifin af. Þú stund-
aðir lengi gömlu dansana og fé-
lagsstarf eldri borgara ásamt því
að leika í leikritum hjá Snúði og
Snældu. Það var skemmtilegt að
fá að sjá þig í nýju ljósi í leiklist-
inni.
Dugnaður einkenndi þig alla
tíð. Kaupmaður á Laugavegi,
listamaður, leikari, rithöfundur
og skemmtikraftur. Alltaf
fannstu ný og spennandi verkefni
og ég dáðist að kjarki þínum og
athafnasemi. Ein af betri minn-
ingum seinni ára er þegar þú
bauðst strákunum mínum í dans
á 95 ára afmælinu þínu. Þú vildir
njóta lífsins eins vel og kostur
var.
Elsku amma mín, ég kveð þig
nú í hinsta sinn.
Þín sonardóttir,
Signý.
Brynhildur
Olgeirsdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KRISTRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kjarrmóa 22,
Njarðvík,
lést á Landspítala Hringbraut laugardaginn
8. júlí. Útför fer fram frá Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 20. júlí
klukkan 13.
Jón Bjarnason
Erla Jónsdóttir Valtýr Gylfason
Guðmundur Rúnar Jónsson Sæunn G. Guðjónsdóttir
Elvar Örn Valtýsson
Unnar Ernir Valtýsson
Kristrún Erla Guðmundsdóttir
Arndís Ólöf Guðmundsdóttir
Okkar ástkæri
GUNNSTEINN MAGNÚSSON
flugumferðarstjóri,
Fróðengi 5,
áður Sörlaskjóli 32, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 12. júlí.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 19. júlí klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Bjarnadóttir Hannes Erlendsson
Ágúst Bjarnason Guðrún C. Emilsdóttir
Guðrún Bjarnadóttir
Valur Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir
og fjölskyldur
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför
AÐALHEIÐAR KJARTANSDÓTTUR
frá Svanavatni.
Sérstakar þakkir fá íbúar og starfsmenn
Kirkjuhvols fyrir vináttu og góða umönnun.
Viðar Marmundsson Bóel Ágústsdóttir
Hjördís Marmundsdóttir Ingvi Ágústsson
Gunnar Marmundsson Guðrún Óskarsdóttir
Ingibjörg Marmundsdóttir
og fjölskyldur
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJÖRN STEFÁN LÍNDAL
SIGTRYGGSSON,
Ketilsbraut 18, Húsavík,
lést föstudaginn 14. júlí á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
22. júlí klukkan 11.
Málmfríður Pálsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRA GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
Dalbraut 20,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Vífilsstöðum
14. júlí. Útför hennar fer fram frá
Laugarneskirkju mánudaginn
24. júlí klukkan 13.
Þóra Ólafsdóttir
Stefán Ólafsson Ingunn Magnúsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson
Sigrún Ólafsdóttir Fjalar Kristjánsson
Sólrún Ólafsdóttir Gunnar Sigmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegi fósturfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BALDUR GARÐARSSON
prentari,
áður til heimilis í Fróðengi 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum
mánudaginn 3. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þór Kristjánsson
Hjálmar Kristjánsson Halldóra Lára Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Maðurinn minn,
AXEL SIGURÐSSON,
Miðleiti 7, Reykjavík,
lést á heimili sínu 3. júlí. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Inda Dan Benjamínsdóttir