Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 25

Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 25
mundi náttúrlega ekkert eftir því og bakaði heilt steikarfat af rúg- brauði, fyrir okkur tvö. Þú hringd- ir svo í mig nokkrum dögum seinna og skellihlóst þegar ég sagði þér að ég hefði bakað heila uppskrift. Þér fannst það þó ekki alveg jafn fyndið þegar ég sagði þér að ég hefði sett rúgbrauðið í plastpoka, volgt, það hefði óvart myglað og ég því hent því. Hent- irðu því? Hvað gastu ekki bara skorið mygluna utan af? Við vor- um oft búnar að hlæja að þessu og iðulega endaðirðu á að segja: „Já og að þú skyldir hafa hent því.“ En ég lærði fljótt af þér að nýta mat- væli vel og hendi sárasjaldan mat. Síðast þegar við hittumst barst afi í tal og ég sagði þér að ég sakn- aði hans svo mikið. Þú svaraðir mér létt í bragði: já, það er nú betra að sakna einhvers en að vera feginn að vera laus við hann og hlóst þínum hvella hlátri. En mik- ið sem það er rétt, að hafa átt manneskjur í mínu lífi sem ég sakna svona mikið. Það hlýtur að segja sitt. Það er svo ótal margt sem ég get talið upp hér sem var gott í fari þínu en allir sem þekktu þig geta vottað það hversu ótrúleg kona þú varst og hversu djúpt skarð er höggvið í fjölskyldu okk- ar, vinahópinn þinn og þetta litla samfélag á Hofsósi við fráfall þitt. Ég mun ávallt geyma í hjarta mínu allar góðar minningar um þig og allar þær dýrmætu stundir sem áttum við saman, Liljurnar tvær. Í síðasta sinn segi ég við þig, elsku amma mín, ég elska þig af öllu hjarta og ég mun sakna þín alla daga, þar til við hittumst á ný. Fjölskyldunni minni allri votta ég mína dýpstu samúð. Lilja Sólveig. Elsku, elsku amma, ég var allt- af búin að kvíða því þegar þessi dagur myndi renna upp því ég gat ekki ímyndað mér hvernig það væri að hafa þig ekki hérna hjá okkur. Ég átti alls ekki von á að þú myndir kveðja nærri því strax eins og þú varst alltaf hress og hraust. Söknuðurinn er mikill og ég held að ég sé bara ekki end- anlega búin að átta mig á því að þú sért farin. En lífið er nú víst bara þannig, það kemur alltaf að því að maður þurfi að kveðja. Það var alltaf svo gott að koma í ömmukot og fá hlýtt faðmlag, ný- bakaðar pönnukökur og gott spjall. Ég gat talað við þig um allt milli himins og jarðar og hvar sem þú varst þá varstu alltaf svo orð- heppin og áttir ekki í vandræðum með að svara fyrir þig enda alltaf stutt í húmorinn. Þú varst ákveð- in, dugleg og hjartahlý kona og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu og fengið að hafa þig svona nálægt mér. Þú kenndir mér margt og ert mín fyrirmynd. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú gafst mér. Ég mun alltaf sakna þín en geymi svo ótal marg- ar góðar og skemmtilegar minn- ingar um þig í hjarta mínu. Megir þú hvíla í friði, amma mín, og ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (Matthías Joch.) Þín Sunna Dís. Elsku, elsku amma mín. Það er erfitt að átta sig á því að þú sért farin og að það sé ekki hægt að koma í ömmukot til að fá koss og knús. Það var gott að vera í kringum þig og voru klukku- tímar allt of fljótir að líða þegar við sátum og spjölluðum saman og það endaði oftast í hláturskasti því það var aldrei langt í húmorinn hjá þér. Það var alltaf hægt að leita til þín og þú vissir alltaf hvernig ætti að tækla hlutina. Þú varst einstak- lega orðheppin og sagðir svo vel frá. Mér fannst alltaf jafn gaman að spyrja þig um gamla tímann þegar þú varst að alast upp og hvernig tímarnir höfðu breyst síð- an þá. Þvílík harka og eljusemi en þér fannst þetta nú ekkert stór- mál. Svona var þetta bara. Þú varst svo ótrúlega ósérhlífin og vildir alltaf allt fyrir alla gera. Þegar ég spurði þig út í afa og hvernig þið kynntust og ykkar tíma saman þá kom glampi í aug- un og þú fórst alltaf að brosa og hlæja þegar þú sagðir frá því. Þú varst alltaf svo hraust og lið- ug og man ég eftir einu skipti þeg- ar ég var í skólanum og við krakk- arnir vorum í fótbolta á spark- vellinum. Þú varst í göngutúr og kemur þarna að til að heilsa og eitthvað barst það í tal hvað þú værir spræk og liðug. Þú gerðir þér lítið fyrir og vippaðir fætinum upp á grindverkið við sparkvöllinn og fórst létt með það. Þar strax á eftir skelltir þú lófunum kylliflöt- um á jörðina með beina fætur. Þetta vakti mikla lukku og mér fannst ég eiga bestu og flottustu ömmuna. Ég er þakklát fyrir að hafa átt svona góða fyrirmynd, fyrir að fá að alast upp með þig og afa á hlið- arlínunni, fyrir allt sem þú kennd- ir mér og allar minningarnar sem ég er svo heppin að eiga nóg af, góðar minningar eru fjársjóður. Ég á eftir að sakna þess að koma í ömmukot og eyða tíma með þér, hvort sem það var að spjalla, prjóna, slá garðinn eða fá fiskibollur, kaffi og meðlæti og ekki síst til að fá gott faðmlag. Ég mun sakna þín, elsku fal- lega ammsí mín, og mun ætíð varðveita minningu þína. Elska þig. Þín ömmustelpa, Bjarnveig Rós. Enginn var tilbúinn að kveðja þennan snilling sem hún amma mín var. Hún var yndisleg í alla staði og algjör nagli, það verður ekki tekið af henni. Amma er mín stærsta fyrirmynd og ég vona að ég nái einhvern tímann tánum þangað sem hún hafði hælana, ég fer ekki fram á meira en það. Amma tók manni alltaf opnum örmum og ég er viss um að hún amma mín hafi gefið bestu ömmu- knúsin. Þar sem ég var svo heppin að búa nálægt ömmu og gat séð hana á hverjum degi var ömmu- hús eins og mitt annað heimili. Maður fór alltaf sæll og glaður og með hlýju í hjarta þegar maður var búinn að vera hjá ömmu. Ég var ekki bara að missa ömmu mína heldur einnig trúnað- arvin og mína stærstu fyrirmynd. Hún átti hjartað hjá öllum sem þekktu hana og því er afar sárt að missa hana úr hinu mannlega lífi en við missum hana þó aldrei úr hjarta okkar. Minning hennar mun lifa. Stella Dröfn Bjarnadóttir. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilsustofnunar NLFÍ, Hveragerði verður haldinn á Heilsustofnun NLFÍ í Hvera- gerði kl. 20.00 miðvikudaginn 26. júlí. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Hvetjum hollvini og áhugasama um Heilsu- stofnunina til að mæta. Stjórnin. Tilboð/útboð Kjósarhreppur auglýsir skv.41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillaga í landi Eilífsdals Deiliskipulagstillagan var samþykkt í sveitarstjórn 6 júlí 2017. Deiliskipulagssvæðið nær utan um íbúðarhús, bílskúr og aflögð útihús. Í tillögunni er gert ráð fyrir breyttri landnotkun á 1,2 ha landspildu í kringum alifuglahús fyrir ferðaþjónustu, Einnig er afmörkuð innan deiliskipulagssvæðisiins 5,1 ha. spilda í tengslum við alifuglahús og 3 ha. spilda undir íbúðahús og bílskúr. Aðkoma að íbúðarhúsi er um afleggjara frá Eyrarfjallvegi (460) en aðkoma að aflögðu alifuglahúsi / ferðaþjónustu verður um afleggjara að frístundabyggð við Valshamar. Tillögurnar verða til sýnis frá og með 19 júlí 2017 til og með 31 ágúst 2017 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu sveitarfélagsins að Ásgarði í Kjós Á heimasíðu sveitarfélagsins, www.kjos.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar at- hugasemdir við skipulagstillögunar. Athuga- semdir skulu hafa borist eigi síðar en 31 ágúst 2017. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Ásgarði, 276 Mosfellsbær eða á netfangið jon@kjos.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipu- lagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkja hana. Kjósarhreppur 17 júlí 2017 Jón Eiríkur Guðmundsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Sungið með Helgu sem spilar á píanó kl. 10.30. Handavinna kl. 8.30-16. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Ljósbrotið prjónaklúbbur kl. 13-16. Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45. Hádegismatur, fiskibollur, kl. 11.40-12.45. Kaffiveitingar á vægu verði kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir nær og fjær. Dalbraut 18-20 Morgunsopi og dagblöð kl. 9, hádegismatur 11.30. Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara í síma 617- 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 10-14. Félagsvist með vinning- um kl. 13. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Gjábakki kl. 9 Handavinna, kl. 13 Félagsvist. Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kvennabridge kl. 13, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hvassaleiti 56 -5 8 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Handavinnuhópur kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Sumaropnun Félagsmiðstöðin er opin frá 10-14 í júlímánuði nánar í síma 411-2790. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Ganga frá Skólabraut kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl.18.30. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristniboðs- salnum. Ræðumaður Hermann Bjarnason. Allir velkomnir. Hörgshlíð 12 Samkoma fellur niður í kvöld Smáauglýsingar Húsnæði óskast Fjölskylda óskar eftir 4+herb íbúð Fimm manna fjölskyldu frá Akureyri bráð vantar 4+ herb íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Reyklaus og skilvirkum greiðslu heitið. Email: 55@55.is, S: 771 3455. Mbk, Sindri. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Ýmislegt Bátar Trilla til sölu Trillan Fákur er til sölu. Hann er 5,80 m, ekki skoðanaskildur. 20 hö búk, disel, dýptarmælir, áttaviti, 4 m björgunarbátur, báturinn er á vagni. Sími 456 3842 eða 899 3842. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningar- grein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.