Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Ég er núna í Belgrad og kærasta mín skipulagði óvissuferð fyrirmig í tilefni dagsins. Ég veit voða lítið hvað ég er að fara aðgera en þetta er framandi og spennandi borg svo það kemur
margt til greina,“ segir Ármann Kojic, framkvæmdastjóri Apon, en
hann á 40 ára afmæli í dag. Kærasta hans er Joanna Marcinkowska, frá
Póllandi, en hún vinnur í tæknigeiranum eins og Ármann og vann með-
al annars hjá stofnanda Twitter.
„Svo höldum við í átt að Adríahafinu, en þar eru fallegustu strend-
urnar í Evrópu, og verðum í Petrovac í Svartfjallalandi. Afi minn var
serbneskur og ég hef oft verið á þessum slóðum. Ég kom fyrst til Petro-
vac þegar ég var átta ára svo það er vel við hæfi að fara þangað núna,
taka smá nostalgíu á 40 ára afmælinu. Svo tala ég líka serbnesku þann-
ig að það er mjög þægilegt að vera hérna. Ég held síðan partí fyrir vini
og vandamenn á Íslandi þegar ég kem til baka seinna í sumar.“
Fyrirtækið Apon sér um að búa til snjallsímalausnir og svokallaðan
snjallhraðal fyrir fyrirtæki svo þau geti búið til eigin snjallsímaforrit.
„Snjallhraðall er íslenskasta orðið sem við gátum fundið yfir það sem
við erum að gera. Fyrirtæki umbreyta skjölum yfir í snjallsímaforrit,
bæta við gagnvirkni og geta líka verið í beinum samskiptum við við-
skiptavini sína í gegnum snjalltæki. Dæmi um gangnvirkni er þegar
fyrirtæki birtir t.d. matseðil fyrir starfsmenn í appinu sínu og vill mæla
og vita hve margir starfsmenn eru í húsinu svo það viti hvað á að panta
mikið af mat. Svo er t.d. skipafélag sem vill búa til gagnvirka öryggis-
handbók þannig að sá sem gengur inn á eitt öryggissvæði fær þá upp-
lýsingar í rauntíma um það svæði en ekki skjal yfir alla öryggisþætti
fyrirtækisins.
Fyrirtækið Apon byrjaði sem auglýsingastofa árið 2012 en svo fórum
við yfir í að vera nýsköpunarfyrirtæki. Ég er mikið í nýsköpunarheim-
inum og sæki í þann reynslubanka með því að fara á ráðstefnur erlendis
og svo æfi ég líka ólympískan kappróður,“ segir Ármann að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdastjórinn Ármann í höfuðstöðvum Apon.
Staddur í Belgrad
Ármann Kojic er fertugur í dag
G
uðmundur Guðmunds-
son, eða Erró, er fædd-
ur í Ólafsvík 19. júlí
1932 og ólst upp hjá
móður sinni, fyrst í
Reykjavík til þriggja ára aldurs en
síðan á Kirkjubæjarklaustri þar
sem móðir hans giftist Siggeiri Lár-
ussyni, bónda þar.
Erró fór til náms í Reykjavík
1950 og stundaði þá jafnframt
teikninám í kvöldskóla en innrit-
aðist síðan í teiknikennaradeild
Handíða- og myndlistaskólans.
Erró kynntist föður sínum og fjöl-
skyldu hans um þetta leyti. Guð-
mundur studdi hann til náms í Ósló
og sá í honum mikla hæfileika sem
listamanni og hvatti hann til utan-
landsfarar.
Erró var við myndlistarnám í
Listaháskólanum í Ósló 1951-54 og
starfaði síðan í Flórens um skeið.
Þá stundaði hann nám í gerð mósa-
íkmynda í Ravenna í tvö ár og vann
síðan við mósaíkmyndir í nokkur ár.
Erró dvaldi í Ísrael í átta mánuði
árið 1957 en flutti næsta ár til Par-
ísar þar sem hann kynntist flestum
fremstu listamönnum súrreal-
istahreyfingarinnar. Hann hóf 1958
að vinna samklippimyndir samhliða
málverkinu og árið 1963 fór Erró í
fyrsta sinn til New York og komst í
kynni við popplistina sem þá var að
ryðja sér til rúms. Hann hóf þá að
nota samklippurnar í málverk sín
og notaði þá myndvarpa í síauknum
mæli. Á sjöunda áratugnum skrifaði
hann undir tímabundinn samning
við Gallery Schwartz í Mílanó og
tók þá þátt í sýningum víðs vegar
um Evrópu en starfaði aðallega
með galleríinu Saint Germain.
Erró listmálari – 85 ára
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Í Breiðholti Önnur af tveimur veggmyndum Errós sem voru afhjúpaðar í Efra-Breiðholti árið 2014.
Enn að og með stórar
sýningar í vinnslu
Morgunblaðið/Ómar
Í París Erró á vinnustofu sinni.
Kristmundur Vápni Bjarnason, Sverrir Þór Ragnarsson, Hinrik Huldar Bragason
og Hulda Margrét Ragnarsdóttir seldu djús fyrir utan Garðsapótek á Sogavegi
og gáfu ágóðann, 4.265 kr, til Rauða krossins á Íslandi.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is