Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 19.07.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú verður að kunna að áætla þér nægan tíma til að ljúka verkefnum sem þú tekur að þér. Ekki hafa allir sömu skoðanir og viðhorf til lífsins og þú. 20. apríl - 20. maí  Naut Með því að taka höndum saman við fólk sem hugsar eins og þú geturðu gert stórar breytingar. Hæfni þín til að tengja á mann- lega sviðinu leiðir til vináttu og jafnvel ástar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gefðu þér tíma til að íhuga lífið og tilveruna. Gerðu hvað þú getur til þess að víkka sjóndeildarhringinn. Mundu að upp- örvun skilar yfirleitt betri árangri en gagn- rýni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Afslöppun er ómissandi hluti af upp- skrift þinni að velgengni. Veldu úr þau verk- efni sem mest liggur á og frestaðu hinum. Vertu öðruvísi. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Mikilvægt fólk heillast auðveldlega af þér í dag. Kollurinn er fullur af hugrenningum og hvötum. Reddingar geta dregið langan hala á eftir sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðar- áformum lítilsháttar. Reyndu því að láta orð fylgja athöfn svo allt falli í ljúfa löð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það skiptir miklu að þú metir sköp- unarhæfileika þína, sama hvert lífsviðurværi þitt er. Auðvitað þarftu að vera svalur og stríða elskhuganum um leið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver sem ekkert er að gerast hjá er ekki skemmtilegur viðmælandi þessa dagana. Hlýddu á ráð góðs vinar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Sumum finnst þeir þurfa að fegra hlutina en það á ekki við um þig. Láttu áhyggjurnar ekki hrannast upp heldur gakktu strax í málið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hungrar þig í athygli einhvers? Þú færð hana – um leið og þú seður hungrið öðruvísi. Kannski vinnufélagi kveðji og þú fáir að leiða meira skapandi verkefni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það gefur lífinu lit að upplifa eitt- hvað nýtt og spennandi. Listin er bara að vita hvað á við hverju sinni! Leyfðu eðlisávísuninni að hjálpa þér í bland við rökhyggjuna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fólk nálgast þig og biður þig að taka að þér flókin verkefni. Góður undirbúningur tryggir farsæla framkvæmd. Ég sá á Boðnarmiði skemmtilegamynd og enn skemmtilegri limru, – „Fuglalimru dagins“ eftir Anton Helga Jónsson: Ef smá fugl hér smælandi sá fugl um smáfugl oft hugsaði þá fugl. Eitt er að þrá fugl annað hvað má fugl. Hvað á fugl að gera sem páfugl? Þetta gaf Þorsteini Valdimarssyni tóninn – og það var svanasöngur (flug) á heiði!: Sjáðu fuglana, frændi minn! Ja, frændi hver andskotinn fljótur hér framundan þér þeir fljúga með rófuna á undan sér! Gísli Jónsson orti: Alltaf leita til laupanna hrafnar og ég læt þér í staup, Anna Rafnar, sagði Lí Pó frá Kína við lagskonu sína, er þau komu til Kaupmannahafnar. Guðmundur Arnfinnsson hefur þýtt nokkrar limrur eftir Edward Le- ar, þar á meðal þessa: Hann Skeggi strauk skeggið á sér og skríkti: „ég fann þetta á mér tvær uglur, þrír haukar, fimm hrossagaukar eiga hreiður í skegginu á mér.“ Páll Imsland skrifaði „Hanalimru“ í Leirinn í síðustu viku „á sól- arlausum degi sunnanlands“:l Á haugnum stóð haninn og gól. Hann minnti á prestinn í stól með hausinn svo reigðan og hálsinn svo teygðan og hann var í skrautlegum kjól. Þessi limra kallar fram í hugann aðra eftir dr. Sturlu Friðriksson: Með ástarhug klókan og kænan hún kúrði við hlaðvarpann grænan og flennti út sitt stél svo færi það vel. „Og hana nú,“ sagði svo hænan. Ekki veit ég hvort þessi limra Kristjáns Karlssonar fellur að efninu: Einn sægreifi sunnan úr Höfnum sat á fundi með hröfnum. Þeir settu sig á hann þeir sóðuðu á hann og sendu ’ann til baka með dröfnum. Það var sjaldséð sjón sem blasti við Davíð Hjálmari Haraldssyni: Ég sá klógulan háfjallahauk heimsækja einmana gauk og gaukinn svo kátan uns grimmfyglið át ’ann með grænmeti, sósu og lauk. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svo flýgur hver fugl sem hann er fjaðraður Í klípu „HANN SAGÐI MÉR AÐ ÞÚ HEFÐIR ÞURFT AÐ SNÚA UPP Á HANDLEGGINN Á HONUM TIL ÞESS AÐ FÁ HANN TIL ÞESS AÐ KOMA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „OG HVERJAR YRÐU SVO „EKKJUBÆTURNAR“, SEGJUM TIL DÆMIS EFTIR HÁLFT ÁR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar ein ást endist út ævina. KOMDU, VINUR! ÁST ER AÐ ÞOLA ANDAR- DRÁTTINN ÚR HUNDINUM ÉG VERÐ AÐ SEGJA ÞÉR FRÚ, AÐ MAÐURINN ÞINN ER FULLKOMINN ÖLL HIN SÆTIN VORU UPPTEKIN! HERRAMAÐUR… Djasspíanistinn Herbie Hancockheldur annað kvöld aðra tón- leika sína á Íslandi. Fyrir rúmum 30 árum spilaði hann á skemmtistaðn- um Broadway. Hancock lýsir þeirri heimsókn í ævisögu sinni, Possibili- ties: „Við áttum að halda tónleika á Íslandi og ég velti fyrir mér hvort þar væri einhver sérstakur staður þar sem ég gæti komist í námunda við eitthvað ævafornt. Ég kannaði málið og rakst á jökulinn Snæfells- jökul, sem einnig er sagður vera orkusvelgur, nokkurs konar þunga- miðja andlegrar orku.“ Er Hancock kom til Reykjavíkur spurðist hann fyrir um jökulinn og „hitti að lokum þennan rauðhærða, íslenska náunga, sem þekkti hann vel. „Þú getur aðeins flogið yfir jök- ulinn,“ sagði hann mér. „Það er hvergi hægt að lenda og engin önnur leið að komast þangað.“ Eins ótrú- lega og það hljómar átti náunginn sína eigin flugvél, litla fjögurra sæta vél, og hann bauðst til að fara með mig að jöklinum næsta dag.“ x x x Næsta dag var lagt í hann:„Skyndilega birtist jökullinn, gríðarlegt flæmi aldagamals íss. Þegar við flugum yfir honum miðjum byrjaði ég skyndilega að gráta af engri sýnilegri ástæðu. Til- finningarnar tóku völdin. Ég starði út um gluggann og reyndi að fela grátinn því að þetta var allt svo und- arlegt. Tárin streymdu niður andlit- ið á mér og axlirnar skulfu – en síðan um leið og við komum að hinni hlið jökulsins hætti þetta. Á augabragði leið mér aftur venjulega og hafði ekki hugmynd um hvað hafði gerst. Ég þurrkaði tárin og reyndi að hemja mig, en svo réð ég ekki við mig, sneri mér að ferðafélögunum og sagði: „Ég grét bara eins og barn og veit ekki hvers vegna!“ Og þá sagði rauðhærði íslenski náunginn, „Já, þú fannst fyrir því. Þetta er krafturinn, þess vegna kalla þeir hann orkusvelg.“ Hann var alls ekki hissa og það gerði mig enn meira hissa. Enn í dag get ég ekki útskýrt það sem kom fyrir mig yfir jöklinum – þetta er ein undarlegasta reynsla, sem ég hef nokkurn tíma orðið fyr- ir.“ Og hver skyldi sá rauðhærði hafa verið? vikverji@mbl.is Víkverji Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. (Jóh. 1:1)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.