Morgunblaðið - 19.07.2017, Side 31
Ekki eru öll kurl komin til grafar
varðandi uppsögn Steve Whitmire
sem fór með hlutverk ástsæla
frosksins Kermit í 27 ár. Hann rauf
loks þögnina í símaviðtali við New
York Times þar sem hann líkir upp-
sögninni við svik. Hann hafi helgað
líf sitt því að halda arfleifð stofn-
anda Prúðuleikaranna, Jim Hen-
son, á lífi.
Whitmire segir ástæður upp-
sagnarinnar hafa verið lít-
ilvægar og kveðst ekki
skilja hvers vegna ekki
hafi verið hægt að koma
á sáttum. Nefnir hann
tvær ástæður sem hon-
um eiga að hafa verið
gefnar fyrir uppsögn-
inni: Athugasemdir til
listrænna stjórnanda
nýjustu þáttaraðar
Prúðuleikaranna,
The Muppets, og
að í eitt sinn
hafi hann að
ráði stétt-
arfélags hafn-
að verkefni
vegna ágrein-
ings um
launa-
greiðslur.
Disney-
fyrirtækið, sem tók við umboði fyr-
ir Prúðuleikarana árið 2004, hefur
aðra sögu að segja. Þeir segja Whit-
man hafa verið fjandsamlegan við
samstarfsmenn sína og virkilega
erfiðan í samningaviðræðum til
margra ára. Hann hafi ekki bætt
ráð sitt þrátt fyrir aðvaranir og því
hafi sú erfiða ákvörðun verið tekin
í samráði við Henson-fjölskylduna
að segja Whitman upp.
Sögurnar sem þau
segja meðal annars af
Whitmire er að hann
hafi neitað að hafa
staðgengil fyrir
hlutverk Kermit og
reynt að klekkja á
yngri og óreyndari
brúðuleikurum með
því að neita að koma
fram með þeim. Enn-
fremur hafi hann sent
bréf og tölvupósta
þar sem hann
réðst á sam-
starfsfólk sitt.
Þrátt fyrir allt
segist Whitmire
myndu ganga
beint aftur inn í
hlutverk Kermit
ef tækifærið gæf-
ist.
Enn af uppsögn
Steve Whitmire
Ástsæll
Kermit
froskur.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017
Árni Matthíasson
arnim.@mbl.is
Í kynningu útgefanda á
skáldverkinu Pínulítil ken-
opsía - Varúð hér leynast
krókódílar eftir Jóhönnu
Maríu Einarsdóttur segir að
bókin sé uppreisn gegn hefð-
inni „að því leyti að það er
andstæða við flest það sem
má kallast „góður skáld-
skapur“.“
Jóhanna
er mennt-
aður bók-
mennta- og
ritlistar-
fræðingur
og hefur
birt sögur
og ljóð í
tímaritinu
Stínu,
Blekfjelaginu, vefsíðunni
Sirkustjaldinu og víðar. Hún
segir að upphaf kenopsíunn-
ar sé einnar blaðsíðu texti
sem finna megi fremst í bók-
inni, þar sem hún fer með
lesandann í ferðalag, biður
hann um að taka eftir hinu
og þessu. „Síðan einhvern-
veginn náði ég að tengja alls-
konar öðruvísi texta saman
við með þráðum eins gíröff-
um og og krókódílum; þetta
spannst áfram og ég held að
þessi bók sé að einhverju
leyti verk undirvitundar-
innar.“
- Skrifaði þessi bók sig
sjálf eða ertu einhversstaðar
með risastórt Excel-skjal þar
sem þú varst búin að skipu-
leggja allt út í hörgul?
„Þetta er ekki Excel-skjal
og ég kann ekki einu sinni á
lesandann, rífst við hann,
segir honum ósatt og skjallar
hann. Svo birtist líka innri
rödd sem fer að rífast við
höfundinn, sem flækir málið
enn meira.
„Það var einhver sem las
handritið fyrir mig sem
sagði: Ég held að þú sért bú-
in að flækja þetta aðeins of
mikið þegar lesandi og inn-
byggður lesandi og höfundur
og innbyggður höfundur eru
farnir að tala saman,“ segir
Jóhanna og hlær.
- Svo undir lokin birtist
eftirmáli bókmenntafræð-
ingsins Jóhönnu Maríu Ein-
arsdóttur og lesandi kemst
að því að bókin er alls ekki
eins og hann hélt að hún væri
og þarf að byrja upp á nýtt.
„Já, að sjálfsögðu, þetta er
hringlaga skáldskapur eins
og allur póstmódernískur
skáldskapur.“
„Maður verður að
treysta lesandanum“
Í nýju skáldverki brýtur
Jóhanna María Einarsdóttir
flestar reglur skáldskaparins
Gaman Jóhanna María segir að treysta verði lesandanum til
að skilja og ef hann skilji ekki þá geti hann samt notið textans.
Excel,“ segir Jóhanna og
hlær, „nema að Excelið sé í
höfðinu á mér. Þetta var eng-
in guðleg íhlutun. Ég byrjaði
að skrifa fyrir tveimur árum
og bókin var upphaflega
meistaraverkefni í ritlist í
Háskólanum þar sem Her-
mann Stefánsson var leið-
beinandi minn.“
- Varstu með einhvern
ákveðinn lesanda í huga og
þá á ég ekki við tiltekinn ein-
stakling?
„Ekki beinlínis, lesandinn
er alltaf óorðuð persóna, en
skrifar maður ekki til sjálfs
sín að einhverju leyti? Ég
held að bestu bækurnar verði
þannig til, að naður skrifi
eitthvað sem mann langar
sjálfan til að lesa.“
Lesandinn kemur
af fjöllum
- Þú ert að leika þér mikið
í textanum, brjóta allskyns
reglur og gera skandala, var
ekki gaman að skrifa þessa
bók?
„Það var mjög gaman og ef
maður hlær ekki að sjálfum
sér þá veit ég ekki hver gerir
það. Það eru örugglega
textar þarna inni þar sem
lesandinn mun koma af fjöll-
um, en það er alltaf þannig.
Ég þoli ekki þegar ég les
texta þar sem er alltaf verið
að endurtaka hluti fram og til
baka og maður fær ógeð á
söguþræðinum. Maður verð-
ur að treysta lesandanum til
að skilja og ef hann skilur
ekki þá getur hann samt not-
ið textans.“
- Þú ferð ekki hefðbundnar
leiðir í skrifunum, ávarpar
Úrval ljóða eftir Sigurð Páls-
son hefur verið gefið út í
Danmörku í þýðingu hins
margverðlaunaða Erik
Skyum-Nielsen. Bókin ber
heitið Mit Hus og hefur hlot-
ið mikið lof gagnrýnenda.
Úrvalið hefur að geyma ljóð
úr fimmtán bókum Sigurðar
sem komu út á árunum 1975
til 2012.
Thomas Bredsdorff, gagn-
rýnandi Politiken, gefur bók-
inn fimm hjörtu af sex mögu-
legum. Í dómi sínum segir
hann Sigurð vera skáld sem
hafi allt á valdi sínu. Enn-
fremur kveður hann ljóð Sig-
urðar „svar ljóðlistarinnar
við Goldberg-tilbrigðum
Bachs eða etýðum Czernys“.
Bredsdorff lofsamar
Skyum-Nielsen ekki síður og
segir þar fara helsta sér-
fræðing Danmerkur í ís-
lenskum nútímabókmennt-
um.
Hann segir hið séríslenska
við ljóðin vera hæfileika
þeirra til að ferðast um tím-
ann. Telur hann að það megi
rekja til þess að miðaldabók-
menntir okkar Íslendinga
séu aðgengilegar nútíma-
mönnum eins og þær hefðu
verið skrifaðar í gær.
Morgunblaðið/Golli
Á dönsku Úrval ljóða eftir Sigurð hefur verið gefið út í Danmörku.
Skáld sem hefur allt á valdi sínu
R&B-tónlistarmaðurinn R.
Kelly hefur lengi verið ásak-
aður fyrir óviðeigandi kyn-
lífshegðun en aldrei verið
dæmdur. Nú hefur honum
verið gefið að sök að heila-
þvo fjölda kvenna í því sem
foreldrar þeirra kalla sér-
trúarsöfnuð. Fjölskyldur
kvennanna sem um ræðir,
ásamt þremur kunningjum
tónlistarmannsins, lýsa hon-
um sem stjórnsömum manni
sem vilji ráða hvernig konur
hegði sér og klæði sig. Kon-
urnar sem hann hafi „í
haldi“ þurfi að biðja um mat
og fá leyfi til þess að nota
salernið.
Lögregla hefur haft sam-
band við nokkrar kvennanna
sem eru í umsjá R. Kelly og
segjast þær vera þar með
fullu samþykki.
Fjölskyldur kvennanna
vilja meina að þær hafi verið
heilaþvegnar og að R. Kelly
stjórni þeim eins og brúðum.
R. Kelly sakaður um heilaþvott
AFP
Stjórnsamur R. Kelly er ásak-
aður um að heilaþvo stúlkur.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og