Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.07.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2017 Fimmtán ár eru liðin frá þvíað banvæn veira þurrkaðiút meirihluta mannkyns-ins og gaf hópi apa á sama tíma greind á við menn. Simpansinn Caesar, leiðtogi apaættbálksins, á nú í stríði við her manna undir stjórn grimmlynds manns sem nefndur er „ofurstinn,“ en hann kennir öpunum um faraldurinn. Eftir að ofurstinn og menn hans ráðast inn í þorp ap- anna og drepa konu og son Caesars ákveður Caesar að láta ættbálkinn flytja á öruggari stað en fara sjálfur til að ná fram hefndum á ofurst- anum. Í leit að ofurstanum og her hans finna Caesar og bandamenn hans unga mállausa stúlku og taka hana að sér. Þeir komast að því að veiran sem drap mannkynið hefur stökkbreyst og hefur nú áhrif á mál- getu mannanna sem lifðu af. Ofurst- inn hyggst þurrka út þá smituðu ásamt öpunum. War for the Planet of the Apes er framhald af myndunum Rise of the Planet of the Apes (2011) og Dawn of the Planet of the Apes (2014) sem hafa sett hugmyndina um Apa- plánetuna úr kvikmyndunum frægu frá sjöunda og áttunda áratugnum í nýjan búning. Mér þykir hafa gætt talsverðra fordóma gagnvart þess- um myndum ýmissa hluta vegna: Vegna þess að of mikið sé um tölvu- brellur, vegna þess að þær séu end- urgerðir á sígildri kvikmyndaröð og vegna þess að myndir um talandi apa hljóti sjálfkrafa að vera kjána- legt bull. Ekkert af þessu stenst skoðun: Tölvubrellurnar, sér- staklega þær sem notaðar eru til að gæða titilpersónurnar lífi, eru með því besta sem sést hefur í kvikmynd- um; myndirnar segja sína eigin sögu þrátt fyrir að fá grunnhugmyndina lánaða frá eldri myndum; og nálgast efnið á alvörugefinn en þó trúverð- ugan máta. Aparnir í þessum myndum eru gæddir lífi með hreyfiskönnunar- tækni (e. motion capture) þar sem hreyfingar og svipbrigði leikara eru skönnuð, tekin upp og síðan hulin tölvugrímu. Andy Serkis, sem leikur hér Caesar í þriðja sinn, hefur byggt heilan feril á því að leika stórbrotnar persónur með þessu móti, þ. á m. Gollri, King Kong og Kolbein kaf- tein. Það er synd að hann mun lík- lega aldrei fá Óskarsverðlaun fyrir að leika „tölvupersónur“ því hann er frábær í hlutverki Caesars sem fyrr. Svipbrigði og látbragð Serkis ljá Caesar svo mikla dýpt að maður trú- ir því virkilega að maður sé að horfa á talandi, hugsandi simpansa. Það hjálpar þó einnig til að Caesar er einfaldlega frábær persóna sem ekki er hægt að komast hjá að finna til með. Hafi maður fylgst með honum í síðustu tveim myndum er ótrúlegt að hugsa til þess hve mikið persónan hefur þróast fyrir augum áhorfend- anna. Myndin er persónudrifin líkt og hinar fyrri þótt einnig séu í henni spennandi hasaratriði. Jafnvel ofurstinn, sem er kynntur til sög- unnar sem fremur einfeldningslegt illmenni, reynist ögn flóknari per- sóna en hann virðist við fyrstu sýn. Myndirnar þrjár hafa almennt séð staðið sig vel við að skapa trúverð- ugar og eftirminnilegar persónur. Ég verð einnig að hrósa myndunum fyrir að endurtaka sig ekki: Það er sjaldgæft að kvikmyndaröð endist þrjár myndir án þess að söguþráð- urinn sé endurtekinn á einhvern hátt, en það hefur tekist hér – Rise, Dawn og War segja hver sína sögu ólíka hinum. Ég myndi mæla með því að horfa á fyrri myndirnar áður en horft er á þá nýjustu, en þó tel ég það ekki bráðnauðsynlegt til að skilja söguna. Svo vikið sé að tækniatriðum einu sinni enn er þrívíddin í myndinni mjög vel unnin. Mér finnst þrívídd sjaldan bæta neinu við bíóupplifun- ina en hér var hún svo trúverðug að í nokkur skipti sem hlutir birtust í forgrunni hélt ég sem snöggvast að eitthvað stæði fyrir framan tjaldið. Þrívíddin sogar mann inn í eyðilegt landslagið sem hrun siðmenning- arinnar hefur skilið eftir og því myndi ég tvímælalaust mæla með því að sjá myndina þannig. Óárennilegur Simpansinn Caesar í War for the Planet of the Apes sem leikinn er af Andy Serkis. „Apaplánetan aftur?“ Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Borgarbíó og Sambíó Egilshöll War for the Planet of the Apes bbbbm Leikstjóri: Matt Reeves. Handrit: Mark Bomback og Matt Reeves. Aðalleikarar: Andy Serkis, Woody Harrelson og Steve Zahn. Bandaríkin, 2017. 140 mín. ÞORGRÍMUR KÁRI SNÆVARR KVIKMYNDIR Breski dægurlagasöngvarinn Ed Sheeran vakti litla lukku meðal aðdáenda sjónvarpsþáttanna sí- vínsælu Game of Thrones í fyrsta þætti nýju seríunnar sem byrjaði síðastliðinn sunnudag. Þar birtist hann í aukahlutverki þar sem hann syngur fyrir hóp Lannister- hermanna á meðan Arya Stark ríð- ur framhjá og uppskar fyrir það af- ar óvægnar athugasemdir á twitt- ersíðu sinni. „Þetta Ed Sheeran- hlutverk var skelfilegt,“ segir aðdáandi á Twitter. „Hefðu þeir ekki að minnsta kosti getað látið dreka steikja hann?“ Vegna um- mælanna hefur Sheeran eytt twitt- ersíðu sinni, um mánuði eftir að hann sagðist ætla að hætta að nota félagsmiðilinn. Hann er þó ekki hættur að birtast í vinsælum sjónvarpsþáttum því hann mun bráðum birtast í The Simpsons í hlutverki Brendans, ungs drengs sem Lisa Simpson fell- ir hug til. Frá þessu er greint á vef- miðli MNE. Þátturinn með Sheeran ber titilinn Haw-Haw Land og vísar til kvikmyndarinnar La La Land sem kom út í janúar. Persóna Sheerans verður byggð á persónu Ryans Goslings í þeirri mynd. Í þættinum, sem verður sýndur í október, mun hrekkjusvínið Nelson Muntz keppa við Brendan um at- hygli Lisu með því að reyna á eigin sönghæfileika. Krúnuleikar hrekja Sheeran af Twitter AFP Lokun Ed Sheeran hefur lokað twitter- reikningi sínum vegna óvæginna ummæla. Netflix hefur upp á síðkastið bætt við sig um 5,2 milljónum nýrra áskrifenda og þannig farið langt fram úr spám fjármálamarkaðar- ins, sem gerði ráð fyrir um 3,23 milljónum. Frá þessu er greint á vefmiðli CNBC. Fyrir vikið hefur verð á hlutabréfum Netflix snar- hækkað. Þetta stökk Netflix kemur til þrátt fyrir aukna samkeppni frá fyrirtækjum eins og Amazon og Apple í rafrænni sölu kvikmynda. Haft er eftir Reed Hastings, for- stjóra Netflix, að Amazon sé „býsna uggvekjandi“ andstæðingur. Fyr- irtækið fetar áfram metnaðarsama braut og hyggst framleiða 40 kvik- myndir á næstunni, „allt frá fokdýr- um poppkornsmyndum til sjálf- stæðra grasrótarmynda“. Verð á hlutabréfum Netflix snarhækkar Netflix Sjónvarpsþátta- og kvikmynda- veitan er í mikilli sókn þessa dagana. SMÁRALIND www.skornirthinir.is Útsöluverð 2.498 verð áður 4.995 stærðir 28-35 Margir litir Útsöluverð 3.498 verð áður 6.995 stærðir 36-41 Margir litir 30-70% afsláttur Útsalan í fullum gangi SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 6, 9 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 5, 8 Miðasala og nánari upplýsingar 5% ÍSL. 2D KL. 4, 6 ENSK. 2D KL. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.