Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 36

Morgunblaðið - 19.07.2017, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Slökktu á netinu og lugu um vélarbilun 2. Urðu fyrir aðkasti í húsbíl 3. Brotnaði saman eftir skilaboð … 4. „Ætli þeir séu komnir til að sækja mig?“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Það verður líf og fjör í Havaríi í hlöðunni á Karlsstöðum í Berufirði næstu daga. Á morgun, 20. júlí, treð- ur rappsveitin Úlfur Úlfur þar upp með taumlausu rímnaflæði og á föstudaginn, 21. júlí, mæta Vestfirð- ingarnir Mugison og Lára Rúnars ásamt föruneyti og halda tónleika. Á sunnudaginn er svo komið að söngvaranum og básúnuleikaranum Valdimar Guðmundssyni sem heldur tónleika með gítarleikaranum Erni Eldjárn. Á undan þeim stígur á svið Anya Shaddock, sigurvegari Samfés 2017. Tónleikar hefjast allir klukkan 21 og fer miðasala fram á tix.is og á staðnum. Svavar Pétur Eysteinsson, einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, og eiginkona hans, Berglind Häsler, reka gistiheimili, matstofu, lífræna grænmetisrækt og bjóða upp á menningarstarfsemi undir merkinu Havarí á Karlsstöðum. Mikið havarí á Karls- stöðum í Berufirði  Myndlist- armennirnir Kol- brún Inga Söring og Mustafa Boga opnuðu 6. júlí sl. sýninguna Fjórða menningin – ör- þjóðin í Listastof- unni að Hringbraut 119 í Reykjavík. Á henni varpa þau fram spurningum um ósýnilegar og sýnilegar skipt- ingar í samfélaginu, s.s. landamæri. Listamennirnir munu í kvöld kl. 19 bjóða upp á leiðsögn um sýninguna með umræðum í lokin. Leiðsögn og umræð- ur í Listastofunni Á fimmtudag Austan og suðaustan 5-10 m/s og víða lítilsháttar væta af og til, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast norðaustanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-15 m/s, en hægari vestantil. Rigning syðra og síðan vestanlands síðdegis, en lengst af bjartviðri norðaustantil. Hlýnar og hiti að 25 stigum norðaustanlands. VEÐUR „Við ætluðum okkur að sækja þrjú stig. Það er al- veg grátlegt að ná því ekki, eða að minnsta kosti einu stigi,“ sagði Fanndís Frið- riksdóttir um frammistöðu Íslands gegn Frakklandi í fyrsta leik sínum á EM í Hollandi í gærkvöldi. Ís- lenska liðið átti lengi svör við öllu því sem Frakkar reyndu að gera og var þjálfara þeirra ekki skemmt. »1-3 Þjálfari Frakka var froðufellandi „Við breyttum aldrei markmiði okkar. Deildin er svo jöfn, við hopp- uðum upp í áttunda sæti og eigum leik til góða gegn KR. Ef við vinnum erum við komnir með 15 stig og þá í fimmta til sjötta sæti. Það er mjög stutt á milli, við höldum bara áfram. Það eru ennþá líkur á að við náum að komast í Evr- ópukeppnina,“ segir Hans Viktor Guð- mundsson sem átti mjög góðan leik í vörn Fjölnis þegar liðið vann stór- sigur á Grindvík- ingum. »4 Við getum ennþá komist í Evrópukeppni FH tryggði sér í gærkvöldi sæti í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir 2:0- útisigur á Víkingi Götu frá Færeyjum. Það þýðir jafnframt að það veltur á því hvernig næsta einvígi FH-inga fer hvort þeir munu spila umspilsleiki um sæti í riðlakeppni Meistaradeild- arinnar eða Evrópudeildarinnar fyrir næsta vetur. »3 FH-ingar munu fara í umspil um riðlakeppni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Það er rosamargt skemmtilegt í gangi hjá okkur í Rammagerðinni,“ segir Lovísa Óladóttir, fram- kvæmdastýra Rammagerðarinnar, en fyrirtækið hefur opnað tvær nýj- ar verslanir í Perlunni og LAVA, eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöð Ís- lands, sem er á Hvolsvelli. Hún segir að gríðarlegur fjöldi leggi nú leið sína í Perluna. „Það er skemmst frá því að segja að maður verður hissa á hverjum degi yfir öll- um fjöldanum af fólki sem fer um Perluna. Fyrir utan almennt streymi frá einkabílum þá er hreint ótrúlegur fjöldi sem kemur með rút- um, bæði frá skemmtiferðaskip- unum og hópferðafyrirtækjum. Það er alveg mögnuð stemning í Perl- unni á hverjum einasta degi.“ Lovísa nefnir að Íslendingar hafi einnig mikinn áhuga á Perlunni og segir þá vera mjög fjölmenna þar. „Það var greinilega kominn tími á að Perlan gengi í endurnýjun. Það hafa allir skoðun á henni, hún blasir við okkur öllum sem búum á höfuðborg- arsvæðinu og hún skipar sess í okk- ar daglegu lífi.“ Spurð hvernig hafi gengið að setja upp verslunina í Perlunni segir Lovísa: „Nú er þetta gömul bygging sem var alls ekki hönnuð með gjafa- vöruverslun í huga þannig að við fengum Marcos og Rut hjá arki- tektastofunni Basalt til að hugsa þetta með okkur. Útkoman er að vekja stórkostlega athygli.“ Lovísa segir að áherslan á vöruúr- valinu tengist þemanu á staðnum og að í raun sé verslunin í Perlunni safnabúð. „Varan er tengd því sem er til sýnis í húsinu og mun þróast eftir því sem jöklasýning Perlu norð- ursins vex fiskur um hrygg á næstu misserum, t.d. þegar Náttúru- gripasafnið verður opnað á næsta ári.“ Kaupa ódýrari vörur Rammagerðin hefur einnig opnað nýja og glæsilega verslun í LAVA, eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöð Ís- lands. ,,Eins og í Perlunni þá leggj- um við áherslu á það í Eldfjallasetr- inu að varan sé tengd sýningunni, því erum við með talsvert af eld- fjallatengdri vöru. Vörur sem fást í Eldfjallasetrinu eru því ekki endi- lega til í Perlunni. Lovísa segir að þar sem krónan sé svo sterk um þessar mundir þá sé innkaupamynstrið hjá ferðamönnum nokkuð breytt, ,,fólk er að kaupa að- eins ódýrari vörur og er afskaplega verðmeðvitað. Það má því segja að í augnablikinu séum við með öll loft- net uppi og fylgjumst náið með. Ég er alla daga að reyna að lesa í það hjá ferðamönnunum hvað þeir vilja og hvað þeir vilja ekki,“ segir Lovísa og hlær. Mögnuð stemning í Perlunni  Ferðamenn af- skaplega meðvit- aðir um verð Morgunblaðið/Árni Sæberg Perlan Lovísa segir að gríðarlegur fjöldi leggi nú leið sína í Perluna á hverjum degi en mikil endurnýjun hefur ver- ið á starfsemi hússins. Rammagerðin hefur meðal annars opnað þar verslun á fjórðu hæð. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson Hvolsvöllur Rammagerðin hefur einnig opnað nýja verslun í LAVA – eld- fjalla- og jarðskjálftamiðstöð Íslands þar sem finna má eldfjallatengda vöru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.