Fréttablaðið - 08.01.2018, Page 2

Fréttablaðið - 08.01.2018, Page 2
Veður Sunnan 8-13 og skúrir eða él, en norðlægari og rigning/snjókoma um tíma norðaustan til. Hvessir um tíma kringum hádegi. Gengur í suðaustan hvassviðri eða storm í kvöld. Hiti 1 til 7 stig. sjá síðu 16 BRIDS SKÓLINN BYRJENDUR 22. janúar 8 mánudagar frá 20-23 VÖRNIN 24. janúar 5 miðvikudagar frá 20-23 • byrjendur Á byrjendanámskeiði er farið vel yfir leikreglur spilsins og undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfis. Ekkert mál að mæta ein/einn. • vörnin Samskiptareglur varnarinnar eru fjórar: útspilin, kall í sama lit, hliðarkall og talning. Hvernig eru reglurnar og hvenær gilda þær? • Staður . . . Síðumúli 37, Reykjavík • Sjá nánar á . . . bridge.is/fræðsla • Upplýsingar og innritun í síma . . . 898-5427 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Sigríður Klingenberg spáir í spilin á nýju ári Sigríður Klingenberg, athafnakona og ástsælasta spákona landsins, stóð fyrir nýárs bingókvöldi á Sæta svíninu í miðborginni í gærkvöldi þar sem margt var um manninn og fólk skemmti sér konunglega. Sigríður var að vanda glæsileg á meðan hún spáði fyrir gestum og gangandi um hvað nýja árið gæti borið í skauti sér og ræddi við viðstadda um stöðu stjarnanna á því herrans ári 2018, sem nú er gengið í garð. Fréttablaðið/steFán sAMFÉLAG „Þetta er nú bara rétt að komast inn á teikniborðið,“ segir Helga Halldórsdóttir, íbúi í Borgar- nesi. Helga fer fyrir félagi sem stefnir að því að koma á koppinn skemmti- garði sem byggir á grunnhugmynd- inni um Latabæ. Í Lögbirtingablaðinu á dögunum birtist tilkynning um skráningu hlutafélagsins Upplifunargarður Borgarnesi ehf. en tilgangur þess, að því er fram kemur í tilkynning- unni, er „[u]ppbygging afþreyingar í ferðaþjónustu í Borgarnesi og nágrenni, byggt á grunnhugmynd- inni um Latabæ.“ Latabæ kannast flestir Íslendingar við en árið 1991 kom út barnabókin Áfram Latibær! eftir Magnús Schev- ing þolfimikappa og síðar íþrótta- mann ársins. Sagan segir frá Sollu stirðu, Sigga sæta, Nenna níska og öðrum íbúum Latabæjar en líf þeirra tekur stakkaskiptum eftir að Íþróttaálfurinn birtist í bænum og rífur þá úr letirútínu sinni. Sagan rataði síðar í leikhús og að endingu voru gerðir sjónvarpsþættir um bæjarbúa. „Verkefnið er til skoðunar hjá hópi fólks sem hefur áhuga á að koma einhverju á laggirnar sem byggt er á hugmyndafræði Magnús- ar Scheving,“ segir Helga. „Magnús er auðvitað Borgnesingur og hefur sterkar rætur hingað heim í hérað.“ Hópurinn fékk á dögun- um þriggja milljóna króna styrk úr uppbyggingarsjóði Vesturlands en styrkveitingin var grundvöllur fyrir stofnun félagsins. „Á næstu dögum munum við ráða verkefnastjóra, sem gert er ráð fyrir að starfi í sex mánuði hið minnsta, til að kanna möguleg staðsetningu og útfærslur fyrir garðinn auk þess að kanna áhuga fjárfesta á verkefn- inu,“ segir Helga. Helga segir að upphafsmaðurinn Magnús komi meðal annars að vinnunni og að slíkt muni miklu. Hann hafi skapað sér nafn út fyrir landsteinana auk þess sem Latibær sé auðvitað þekkt merki á erlendri grund. „Næstu sex mánuðir eru með- göngutími og síðan verður að skýr- ast í júlí hver næstu skref hjá okkur verða. Það veltur auðvitað að stærst- um hluta á áhuga fjárfesta og ann- arra sem leitað verður til varðandi aðkomu að verkefninu,“ segir Helga. Líkt og áður segir er verkefnið á algjöru frumstigi og því óljóst hve- nær garðurinn gæti verið opnaður ef hann nær á það stig. „Fyrir mitt leyti þá mætti það ekki taka meira en þrjú til fimm ár að koma þessu í gagnið,“ segir Helga. johannoli@frettabladid.is Borgnesingar vilja fá Latabæjargarð í plássið Félag um uppbyggingu afþreyingar sem byggð er á grunnhugmyndinni um Latabæ fékk þriggja milljóna styrk. Möguleg staðsetning og áhugi fjárfesta til skoðunar. Íþróttaálfurinn sjálfur er frá Borgarnesi og kemur að verkefninu. latibær hefur ratað í leikhús, sjónvarp og verið gerður að borðspili. nú er stefnt að skemmtigarði. Fréttablaðið/anDri MarinÓ Jóhannes Gunnarsson látinn Jóhannes Gunnarsson, fyrrverandi formaður Neytenda- samtakanna, lést á laugar- dag, 68 ára. Hann var fæddur 3. október 1949. Hann barðist fyrir hagsmunum neytenda í áratugi og gegndi stöðu formanns Neytendasamtakanna í rúm 30 ár. Jóhannes var fyrst kjörinn for- maður 1984 eftir að hafa setið í stjórn samtakanna. Hann útskrifaðist úr mjólkurfræði frá Højby mejeri í Danmörku 1971 og sinnti störfum við mjólkur- framleiðslu til 1980. Þá var hann útgáfustjóri Verðlagsstofnunar. Jóhannes var tvíkvæntur og lætur eftir sig fimm uppkomin börn. FRAMKVÆMDIR „Hingað til höfum við farið eftir ráðleggingum sér- fræðinga en nú tökum við þetta bara niður með okkar lagi,“ segir Þórarinn Auðunn Pétursson, fram- kvæmdastjóri Work North ehf. Work North sér um niðurrif á gömlu Sementsverksmiðjunni á Akranesi en það hefur vakið athygli undanfarna daga hve illa hefur gengið að fella fjögur síló sem standa á lóð verksmiðjunnar. Fyrsta atrenna átti sér stað síðasta laugar- dag síðasta árs en þá var dýnamít brúkað til verksins. Þeirri tilraun lauk með því að turnarnir halla nú nokkuð en standa enn. Önnur til- raun var gerð viku síðar, laugardag- inn 6. janúar, en sprengiefnið beit ekki á geymunum sem hreyfðust ekki. „Við vildum flýta ferlinu með því að nota sprengiefni. Teikningarnar af sílóunum eru hins vegar gamlar og það er ekki alveg að marka þær. Í þeim er mikil steypa og mikið af steypustyrktarjárni. Skammt frá er 60 metra hár strompur sem á að lifa niðurrifið af þannig að það þurfti að vanda til verka,“ segir Þórarinn. Þórarinn á ekki von á því að reynt verði að sanna hið fornkveðna að allt sé þegar þrennt er. „Nú tökum við þetta bara niður með vélum.“ – jóe Sílóin rifin niður með gamla laginu sílóin hafa staðið af sér tvær spreng- ingar en mæta nú vinnuvélum. Fréttablaðið/antOn brinK 8 . j A n ú A R 2 0 1 8 M á n u D A G u R2 F R É t t I R ∙ F R É t t A B L A ð I ð 0 8 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A D -7 4 9 4 1 E A D -7 3 5 8 1 E A D -7 2 1 C 1 E A D -7 0 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.