Fréttablaðið - 08.01.2018, Side 30
Yndislegur eiginmaður minn og besti
vinur, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og sonur,
Haraldur Ragnarsson
húsasmíðameistari,
Gauksási 49, Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
miðvikudaginn 3. janúar. Útförin verður auglýst síðar.
Kristín Þóra Sigurðardóttir
Árni Mar Haraldsson Ágústa Sigurlaug Guðjónsd.
Ívar Örn Haraldsson Lára Björk Bragadóttir
Sigurður Ragnar Haraldsson Margrét Eva Einarsdóttir
Arnór Gauti Haraldsson Vífill Harðarson
Salóme Kristín Haraldsdóttir
barnabörn
Bjarney Gréta Sigurðardóttir
Ástkær móðir,
tengdamóðir og amma,
Hólmfríður Benediktsdóttir
frá Garði í Aðaldal,
síðar til heimilis á Barðaströnd 8,
Seltjarnarnesi,
lést 2. janúar 2018 á Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 12. janúar kl. 11.00 fyrir hádegi.
Magnús Benedikt Guðjónsson Ólöf Jóna Jónsdóttir
Ása Hrönn og Hólmfríður Inga
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Vigfússon
Keilusíðu 3a,
lést á Þorláksmessu 23. desember.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Alzheimersamtökin.
Ásta Svanhvít Þórðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
TÍMAMÓT Læknafélag Íslands var stofnað
árið 1918 og verður 100 ára núna í janú-
ar. Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er
stofnun félagsins gerð góð skil. Einnig
er fjallað um þema afmælisársins sem
er Læknirinn og umhverfið. Bæði er þá
vísað til umhverfis læknisins sjálfs og til
umhverfisins og breytinga á því vegna
hlýnunar jarðar.
Vegleg dagskrá verður allt árið um
kring en þar má nefna sem dæmi Lista-
smiðjur lækna í febrúar, flugukastsnám-
skeið í mars og fjallgöngu með FÍFL, eða
Félagi fjallalækna í september.
„Við erum að reyna að efla félags-
andann hjá okkur og samstöðuna. Við
verðum að horfast í augu við það sem er
að gerast víða og hjá okkur líka. Það er
mikið álag á lækna og við erum farin að
sjá aukin merki um kulnun í starfi. Þetta
er kannski stærsta ógnin sem við sjáum
hjá okkur læknum,“ segir formaður
Læknafélags Íslands, Reynir Arngríms-
son.
„Heilbrigðisyfirvöld í öðrum löndum
hafa verulegar áhyggjur af þessari þróun.
Læknar eru að keyra sig út í vinnu og
detta út af vinnumarkaði allt of snemma
vegna kulnunar í starfi. Við viljum nota
árið til að vekja athygli stjórnvalda á
þessari þróun. Það er ekki bara vanda-
mál læknisins sem lendir í þessu. Þetta
er vandamál fyrir stofnunina sem hann
vinnur fyrir og heilbrigðiskerfið í heild
sinni.“
Einnig verður lögð áhersla á sjónar-
mið lækna í umræðum um umhverfis- og
lofslagsbreytingar. „Læknar úti í heimi
hafa verið að fylgjast með þessari þróun
og reyna að gera sér í hugarlund hvaða
áhrif þetta hefur á heilsu eða lýðheilsu.
Það sem menn sjá fyrir sér eru til dæmis
breytingar á útbreiðslu smitsjúkdóma.
Við höfum séð faraldra eins og ebólu
og zika síðustu ár í Afríku og Ameríku.
En þetta gæti breyst með
hlýnun jarðar. Svo er það
mengunin og áhrif hennar á
heilsufar,“ segir Reynir.
„En menn eru einnig að
velta fyrir sér hvort það séu
tækifæri í þessu, hvort það
sé hægt að bregðast við
þessu. Við þurfum að nota
bílinn minna, fólk færi að
hreyfa sig meira og þetta
hefur líka áhrif á matvæla-
framleiðslu. Það eru þann-
ig ýmis neikvæð áhrif, en ef
við bregðumst við fyrr en
síðar gæti það haft jákvæð
lýðheilsuleg áhrif.“
„Dagarnir eru öllum
opnir en sérstaklega
hvetjum við þá sem hafa
áhrif í umhverfismálum
að mæta og taka þátt
í umræðunni. Ég held
það sé mikilvægt fyrir
almenning, fræðimenn
á öðrum sviðum og
ráðamenn að koma og
heyra þessi sjónarmið
frá læknum. Þetta snýst
um svo miklu meira
en bara mengun. Þetta
snýst um hvernig heil-
brigðisþjónustan mun
þróast,“ segir Reynir.
Á L æ k n a d ö g u m
verður mjög fjölbreytt
dagskrá en meðal þeirra sem flytja
ávörp eru Andri Snær Magnason, Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands, doktor
Antonty Costello, framkvæmdastjóri
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
og doktor Karine Nordstrand, formaður
norsku landssamtakanna Læknar án
landamæra.
lovisaa@frettabladid.is
Læknafélag Íslands fagnar
hundrað ára starfsafmæli
Umhverfið verður í aðalhlutverki á 100 ára afmæli Læknafélags Íslands. Afmælisárið
hefst með pompi og prakt á Læknadögum í Eldborg 15. til 19. janúar þar sem almenningi
er boðið að taka þátt í umræðunni um umhverfisvandamál og stöðu heilbrigðiskerfisins.
Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands. mynd/ÞoRkeLL ÞoRkeLsson
Úrklippa úr Læknablaði
Íslands eftir stofnfund
félagsins árið 1918
sem sýnir stofnmeð-
limi þess. Læknafé-
lagið stefnir á að efla
samstöðuna í félaginu
á 100. starfsárinu.
Stjörnufræðingurinn Galileo Galilei lést þennan dag árið
1642 í Acetri á Ítalíu, 77 ára að aldri. Galileo fæddist þann
15. febrúar 1564 í Pisa, í Toskanahéraði á Ítalíu. Hann hóf
læknanám, sneri sér þó fljótlega að stærðfræði og heimspeki
og hætti í háskóla árið 1585 án þess að ljúka prófi.
Hann hefur verið kallaður faðir nútímastjörnufræði, faðir
eðlisfræðinnar og faðir vísinda vegna ótrúlegra uppgötvana
sinna.
Galileo starfaði
lengst af sem stærð-
fræðikennari og
prófessor og vann að
tilraunum með afl-
fræði og velti fyrir sér
stjörnufræði. Hann
smíðaði sjónauka
og beindi honum að
himintunglunum. Hann
var fyrstur manna til
að birta niðurstöður
vísindalegra athugana á
himintunglum gegnum
kíki. Hann sá meðal
annars höf og fjöll á
tunglinu og uppgötvaði
fjögur stærstu tungl
Júpíters, sem hafa síðar
verið kölluð Galileo-
tunglin.
Hann setti einnig
fram kenningar um sólbletti og lenti í deilum við ýmsa sem
mótmæltu því sem hann hélt fram enda stönguðust hug-
myndir hans á við heimsmynd Aristótelesar og kirkjunnar.
Helstu vandræði Galileos sköpuðust þó við það að hann lýsti
yfir stuðningi við sólmiðjukenningu Kópernikusar. Hann fékk
áminningu frá kirkjunni og var síðar dreginn fyrir rannsóknar-
réttinn í Róm sem dæmdi hann í lífstíðarfangelsi fyrir villutrú.
Hann var fundinn sekur árið 1633 og dæmdur í lífstíðar-
fangelsi en vegna aldurs og slæmrar heilsu mátti hann sitja
dóminn af sér í stofufangelsi, sem hann gerði hjá vini sínum,
Piccolomini, erkibiskupi í Síena.
Þ ETTA G E R ð i ST : 8 . JA N úA R 1 6 4 2
Galileo Galilei lést á Ítalíu
8 . j A n ú A r 2 0 1 8 M Á n U D A G U r14 T Í M A M Ó T ∙ F r É T T A B L A ð i ð
tímamót
0
8
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
D
-7
9
8
4
1
E
A
D
-7
8
4
8
1
E
A
D
-7
7
0
C
1
E
A
D
-7
5
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K