Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.02.2003, Síða 2

Víkurfréttir - 13.02.2003, Síða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Þrjátíu og sex ára þota af gerðinni B727-100 hafði viðdvöl á Keflavíkurflugvelli sl. fimmtudag en þotan hét upphaflega Gullfaxi og var í eigu Flugfélags Íslands. Var hún fyrsta þotan sem Íslendingar eignuðust og kom hingað til lands sumarið 1967. Þotan er nú í eigu flutningafyrirtækisins UPS og sinnir fraktflutningum. Kennsluvikan 17. til 21.febrúar verður með mjögóhefðbundnu sniði í Tón- listarskóla Reykjanesbæjar. Hið venjubundna skólastarf verður þá brotið upp og efnt til ýmis konar annarrar tónlistar- upplifunar en venjulegrar tón- listarkennslu. Þessi vika hefur fengið heitið „Opin vika“. Fyrirkomulag kennslunnar verð- ur tvíþætt. Annars vegar eiga nemendur að mæta í ákveðna skyldukúrsa sem tengjast beinlín- is hljóðfæranámi þeirra og/eða þeirri deild sem þeir tilheyra í skólanum. Hins vegar velja nem- endur sér a.m.k. einn annan kúrs og er þar um nokkra valmögu- leika að ræða. Það sem nemend- um verður meðal annars boðið upp á sem valgrein er tónlistar- iðkun sem kallast „Stomp“, dansstílarnir Afro og Freestyle, nemendum býðst að fá að kynn- ast ástralska frumbyggjahljóð- færinu Didgeridoo og bjöllukór verður á boðstólum. Leiðbeinendur í opnu vikunni verða nokkrir af okkar bestu og reyndustu listamönnum eins og til dæmis Jónas Ingimundarson, píanóleikari, Jóhann Ásmunds- son bassaleikari sem þekktastur er sem meðlimur hljómsveitar- innar Mezzoforte auk ýmissa jazzhljómsveita, Emilía Jónsdótt- ir, danskennari, Garðar Cortes, óperusöngvari og Tatu Kanto- maa, harmónikuleikari. Einnig munu nokkrir af kennurum skól- ans verða virkir leiðbeinendur, en aðrir kennarar verða leiðbeinend- um til aðstoðar. Fyrir utan þetta verða haldnir nemendatónleikar í nokkrum af stofnunum Reykjanesbæjar. Opnu vikunni lýkur svo með dagskrá í Kirkjulundi á Degi tón- listarskólanna, laugardaginn 22. febrúar, þar sem afrakstur Opnu vikunnar verður opinberaður áheyrendum. Vegna meira atvinnuleys-is en búist var við ákvaðríkisstjórnin að verja 6,3 milljörðum króna til ýmissa vegaframkvæmda umfram þau flýtiverkefni sem ákveðið hefur verið að ráðast í. Meðal annars verður 500 milljónum króna varið til Suðurstrand- arvegar á Reykjanesi.Að sögn Hjálmars Árnasonar, varafor- manns samgöngunefndar, er vegurinn að koma úr um- hverfismati og ætti fram- kvæmdin að geta farið í útboð mjög fljótlega. Hjálmar segir 500 milljónirnar sem komu til verks í dag séu til viðbótar við það fé sem áður hefur verið úthlutað til verksins. Það að Suðurstrandarvegur sé lagður á sama tíma og unnið er að tvöföldun Reykjanesbrautar sé mikið hagsmunamál fyrir Suðurnesjamenn.Vegurinn komi sér vel bæði frá sjónar- miðum atvinnu og ferðaþjón- ustu. Í samtali við Víkurfréttir átti Hjálmar jafnframt von á að framkvæmdir við Ósabotnaveg milli Hafna og Sandgerðis hæfust á vormánuðum. Að- spurður um aðstöðu lögreglunn- ar á Keflavíkurflugvelli, sagðist Hjálmar hafa rætt málið við ut- anríkisráðherra í morgun. Ljóst sé að byggja þurfi stjórnsýslu- hús við Leifsstöð og það verk- efni er komið í góðan farveg. Slík framkvæmd yrði einnig sprauta fyrir atvinnulífið á Suð- urnesjum, sem og bygging 2500 fermetra nýbyggingar Fjöl- brautaskóla Suðurnesja sem senn verður boðin út. Önnur verkefni sem ríkisstjórn- in ætlar að verja fjármagni til, má nefna að m.a. verða settar 1000 milljónir til vegafram- kvæmda á höfuðborgarsvæðinu, 1000 milljónir til framkvæmda á norðaustursvæðinu, 500 millj- ónir í Suðurstrandaveg á Reykjanesi, 200 milljónir í veg um Hellisheiði, 200 milljónir í Gjábakkaveg, 1000 milljónir í vegagerð á Vestfjörðum, 200 milljónir í Þverárfjallsveg og 500 milljónir til gangagerðar undir Almannaskarð. Þá verða 700 milljónir settar í atvinnu- átak á vegum Byggðastofnunar og 1000 milljónir til byggingar menningarhúsa á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Til að fjármagna þetta verða öll bréf ríkisins í Búnaðarbanka og Landsbanka og Íslenskum aðal- verktökum seld á markaði. Talið er að áætlaðar tekjur af því verði um 5 milljarðar króna. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar: Opin vika og Dagur tónlistarskólanna 500 milljónir í Suðurstrandarveg Stórhýsi byggð og vegir lagðir til að bregðast við atvinnuleysi: - Ósabotnavegur í vor og 2500 fermetra fjölbrautaskóli Gullfaxi í heimahögum! Bónusverslun munverða opnuð í versl-unarhúsnæði því sem verslunin Hagkaup hefur notað í Njarðvík eftir einn til tvo mánuði. Bónusbúðin í Reykjanesbæ verður með stærri verslunum keðjunn- ar eða svipuð að stærð og Bónus í Holtagörðum. Frá þessu er greint á Suður- nesjasíðu Morgunblaðsins í dag. Verslunin Hagkaup tilkynnti í síðasta mánuði lokun í Njarðvík og að öllu starfs- fólki yrði sagt upp störfum. Unnið verður að endurbótum á húsnæðinu og mun Bón- usverslun verða opnuð þar þegar þeirri vinnu er lokið, í síðasta lagi 1. apríl, að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. BÓNUS TIL NJARÐVÍKUR Aðfaranótt mánudags varbifreið stolið frá Vallar-götu í Keflavík. Bifreiðin er ný-uppgerð rauð Nissan 100NX fólksbifreið árgerð 1993. Lögreglan leitar enn bif- reiðarinnar og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um af- drif hennar beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 420-2400 eða í síma 112. Bifreið stolið frá Vallargötu Torfa Stefánssonar, Faxabraut 24, Keflavík. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Stefán Torfason, Auður Anna Torfadóttir, Torfi Þór Torfason, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, fimmtudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 14. febrúar kl. 14. Hólmfríður Guðmundsdóttir, Kirkjuvegi 15, Keflavík Árni Þ. Þorgrímsson, Helga Árnadóttir, Árni Árnason, Þorgrímur St. Árnason, Ásdís M. Óskarsdóttir, Eiríka G. Árnadóttir, Þórður M. Kjartansson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Guðjón I. Guðjónsson og barnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, 7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 18:15 Page 2

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.