Víkurfréttir - 13.02.2003, Qupperneq 4
HAFNARGATAN er að deyja! Verslanir leggja
upp laupana og þjónustan hverfur úr sveitarfélag-
inu. Á meðan þetta er að gerast koma bæjaryfirvöld
með framtíðarsýn sem mið-
ar eingöngu að því að
skreyta götuna sjálfa. En er
það nóg? Mörg húsanna á
Hafnargötunni eru beinlínis
ljót. Til að fegra þessa
verslunargötu Suðurnesja
þarf að huga að heildinni.
Það þarf að laga og fegra
húsin sem standa við göt-
una. Það er ekki nóg að
hola niður trjám og skreyta
stéttar. Það er heildarmyndin sem skiptir máli.
OG HVERNIG væri að koma fyrir menningarleg-
um reitum á Hafnargötuna? Kallinum er spurn af
hverju þjónustumiðstöð ferðamála sé staðsett í
bókasafninu. Væri ekki sniðugra að koma þessari
nauðsynlegu skrifstofu fyrir á Hafnargötunni?
Túristar leita til slíkra upplýsingaskrifstofa og án
efa myndi það virka söluhvetjandi að staðsetja slíka
miðstöð nálægt verslunum. Kallinn efast um að út-
lendingarnir sem koma í Reykjanesbæ ákveði að
leigja sér bók þegar þeir loksins finna upplýsinga-
miðstöð ferðamála. Þeir gætu hinsvegar ákveðið að
kaupa sér föt, listaverk eða pylsu og kók ef skrif-
stofan væri staðsett nálægt verslunum. Og einmitt
þannig lifnar líf á Hafnargötunni.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur fína stefnu í
sjávarútvegsmálum, en hvaða stefnu hefur hann í
öðrum málum? Af málflutningi forsvarsmanna
flokksins að dæma hefur ekki verið mörkuð stefna í
öðrum málaflokkum. Gunnar Örlygsson forsvars-
maður Ungra Frjálslyndra skrifar kostulega grein í
Vestmannaeyjablaðið Fréttir frá 6. febrúar sl. Grein-
in ber yfirskriftina „Hrói höttur - Bréf til unga
fólksins“ og segist höfundur ætla að skrifa um
mannauðinn og sjávarauðlindina - sem hann kallar
tvær mikilvægustu auðlindir okkar. Hann minnist
varla á mannauðinn, heldur skammast út í Sjálf-
stæðisflokkinn og Hannes Hólmstein Gissurarson
og kennir kvótakerfinu og hringamyndun í atvinnu-
lífinu um slæm kjör unga fólksins. Í lok kaflans um
mannauðinn segir hann helsta markmið Frjálslynda
flokksins að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld.
Síðari hluti greinarinnar fjallar síðan um helsta bar-
áttumál flokksins - afnám kvótakerfisins. Ef að
málflutningur forsvarsmanna flokksins verður á
þessa leið er barátta þeirra vonlaus. Það þarf heild-
stæða stefnu í öllum helstu málum. Kallinn hvetur
alla til að lesa þessa grein því hún lýsir fátæklegri
hugmyndafræði F-flokksins á ansi góðan hátt.
FRÁBÆRT að Suðurstrandarvegur sé nú væntan-
legur, en er engin kosningalykt af þessu? Sjáið til -
nú munu þingmennirnir koma í hrönnum og segja
að nú sé verið að vinna bug á atvinnuleysinu. En
hverjir fá þessa vinnu? Eru það konur? Eru það
kannski bara gröfu- og vörubílakallar?
KRISTJÁN Pálsson fær aldrei leyfi miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins til að bjóða fram undir merkj-
um DD. Það er ljóst. En Kristján á að sjálfsögðu að
bjóða fram sérframboð og það er trú Kallsins að
hann myndi ná inn á Alþingi. Það er staðreynd að
Kristján er að týna töluvert af atkvæðum af Sjálf-
stæðisflokknum og það fer í „pirrurnar“ á forsvars-
mönnum flokksins. Það var farið illa með Kristján
af kjörnefndinni og nú er rétti tíminn til að hefna
alls þess sem á hans hlut var gert í óþökk kjósenda.
Forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi þurfa að skilja það að það er ekki farið illa
með menn sem hafa starfað um árabil fyrir flokkinn
og njóta virðingar kjósenda. Kristján - sprengdu þig
inn á þing!
MÖGULEIKAR Kristjáns eru náttúrulega gríðar-
legir því hann getur komist í ríkisstjórn. Miðað við
síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins fær Samfylk-
ingin 29 þingmenn og ef það yrði niðurstaða kosn-
inganna þyrfti ekki nema 3 menn til að mynda
meirihluta. Kristján kæmi þar sterkur inn og hugs-
anlega 2 frjálslyndir. Semsagt ríkisstjórn sérfram-
boðs Kristjáns Pálssonar, Samfylkingar og Frjáls-
lynda flokksins.
FRÁBÆRT framtak hjá Samkaupsmönnum að
ætla í samkeppni við Bónus í Reykjavík. En þurfa
þeir ekki að líta sér aðeins nær? Með tilkomu Bón-
uss að Fitjum er ljóst að gríðarleg samkeppni verður
á milli Kaskó og Bónuss. Samkaupsmenn eru
greinilega tilbúnir í þá baráttu, en mikilvægt er að
hlúð verði Kaskó búðinni og leiðir farnar sem við-
skiptavinirnir verða ánægðir með. Og án efa munu
Samkaupsmenn standa sig fyllilega í þeim efnum.
Áfram Kaskó!
Kveðja, Kallinn@vf.is
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKUR
FRÉTTIR
VÍKUR
FRÉTTIR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
sími 421 0008 kristin@vf.is,
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0009 jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
MUNDI
Reykjanesbær brúaði
heimsálfur á Reykjanesi, ríkis-
stjórnin tengir saman
kjördæmið með Suðurstrandarvegi
Kallinn á kassanum Fundur um
stefnumótun
þjóðkirkjunnar
í Kirkjulundi í
Keflavík
Dr. Guðfinna S. Bjarna-dóttir rektor Háskólansí Reykjavík fjallar um
stöðu þjóðkirkjunnar í
Kirkjulundi í Keflavík
fimmtudaginn 13. febrúar kl.
20:30. Þjóðkirkjan er að
vinna að stefnumótun á
vormisseri og Guðfinna mun
fjalla um svo kallaða SVÓT-
könnun, þar sem komið er
inn á styrkleika, veikleika,
tækifæri og það sem ógnar
þjóðkirkjunni.
Guðfinna, sem er Keflvíkingur,
hefur lokið námi frá Kennara-
háskóla Íslands, B.A. prófi í
sálfræði frá Háskóla Íslands og
meistara og doktorsprófi í sál-
fræði frá West Virginia Uni-
versity. Allt áhugafólk um mál-
efni þjóðkirkjunnar er velkom-
ið á fundinn. Kaffiveitingar
verða í boði sóknarnefndar.
Kanna áhuga á
strætóferðum
um helgar í
Reykjanesbæ
Reykjanesbær í samstarfivið SBK vill kannamöguleika á að bæta við
strætóferðum í Reykjanesbæ
um helgar, þ.e. á laugardögum
og sunnudögum. Gert er ráð
fyrir tveimur til fjórum ferð-
um á dag til að byrja með.
Bæjaryfirvöld hafa formlega
óskað eftir ábendingum íbúa um
á hvaða tíma dags hentugast er
að ferðir séu farnar. Ábendingar
berist til Reykjanesbæjar í síma
421-6706 eða á netfangið stra-
eto@reykjanesbaer.is
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:43 Page 4