Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.02.2003, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 13.02.2003, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Árið 2001 fóru systurnar á nám- skeið fyrir leiðbeinendur og áhugafólk um reiðþjálfun fatl- aðra sem haldið var í Skagafirði, mekka hestamanna á Íslandi. Þær fóru á námskeiðið að frumkvæði Hestamannafélagsins Mána og Þroskahjálpar á Suðurnesjum og þær voru mjög ánægðar með námskeiðið: „Við viljum vekja athygli á reiðþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga og vonum að fleiri foreldrar kynni sér þennan val- kost fyrir börn sín,“ segja syst- urnar. Eins og áður segir er öll fjöl- skyldan á kafi í hestamennsku og litla systir stelpnanna Margrét Lilja hefur alist upp í hesthúsun- um á Mánagrund, en hún er 11 ára gömul: „Hestamennskan er aðaláhugamál fjölskyldunnar og við förum upp í hesthús á hverj- um degi. Það fara margir klukku- tímar í hestamennskuna á hverj- um degi, en þetta er bara svo svakalega skemmtilegt.“ Eftir að systurnar fóru á nám- skeiðið í Skagafirði fóru þær, ásamt hestamannafélaginu Mána og Þroskahjálp á Suðurnesjum að kynna reiðnámskeið fyrir fatl- aða. Þær urðu varar við mikinn áhuga foreldra fatlaðra barna á námskeiðinu og sá fyrsti sem kom á námskeið til þeirra var einhverfur drengur sem heitir Bergur Edgar Kristinsson og býr í Reykjanesbæ. Systurnar segja að það sé mjög gefandi að vinna með fötluðum börnum og segja sérstaklega gaman að sjá hvernig þau breytast við það að fara á hestbak: „Maður sér hvað börnin ljóma um leið og þau koma inn í hesthúsið. Þeim finnst þetta rosa- lega gaman og vita nákvæmlega hvað þau eru að fara að gera þeg- ar þau koma í hesthúsið.“ Hestar eru skynsöm dýr og syst- urnar segja að hestarnir séu ró- legri þegar börn fara á bak þeim: „Við erum með mjög góða hesta fyrir börnin og þeir eru mjög ró- legir þegar þau eru á baki. Börn- in umgangast hestana líka áður en þau fara á bak, hjálpa t.d. við að kemba þeim, gefa þeim og hreinsa til eftir þá. Barnið kemst því í töluverða snertingu við hestinn áður en það fer á bak,“ segja systurnar og það er greini- legt að þær hafa mjög gaman af þjálfuninni. Fatlaður einstaklingur sem fer í reiðþjálfun styrkir vöðva sína verulega með þesskonar þjálfun: „Við reiðþjálfun á hesti kemst hreyfing á allan líkamann og við það styrkjast vöðvarnir, en þjálfunin hentar líka mjög vel til þess að styrkja vöðvana við og um hrygginn,“ segir Sóley. Reiðþjálfun fatlaðra hefur aukist töluvert síðustu árin og segja systurnar að þjálfunin sé á mikilli uppleið þó hún hafi hingað til ekki verið mjög þekkt hér á landi: „Við ætlum að halda þess- ari þjálfun áfram og vonum bara að við fáum fleiri börn til okkar,“ segja systurnar en þær stunda báðar nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sóley hyggur á nám við Íþróttaháskólann á Laugar- vatni og Elva hefur mikinn hug á að læra tannlækningar: „Elva systir ætlar að verða tannlæknir þannig að hún hafi nægan tíma til að sinna hestunum. Eftir að ég klára íþróttaháskólann gæti ég vel hugsað mér að fara til Noregs í nám tengt reiðþjálfun fatlaðra,“ segir Sóley brosandi og það er greinilegt að þær systur gera ráð fyrir hestamennskunni í framtíð- aráformum sínum. Ástvaldur RagnarBjarnason er fjölfatlað-ur 10 ára drengur sem býr í Sandgerði. Ástvaldur er bundinn við hjólastól, en hann þjáist af Cerebral Palsy (CP) hreyfihömlun sem orsakast af óafturkræfum skemmdum á heila, sem verða áður en hann nær fullum þroska. Þessar skemmdir geta orðið fyrir, í eða á fyrstu árum eftir fæð- ingu Hreyfingar Ástvaldar eru spastískar og hefur hann litla stjórn á þeim. Ástvaldur stundar nám við Grunnskól- ann í Sandgerði þar sem hann nýtur liðsinnis stuðningsfull- trúa. Foreldrar Ástvaldar eru Hafdís Jóhannsdóttir og Bjarni Ástvaldsson. Hafdís segir að það að stunda hestamennskuna gefi honum mjög mikið og hún segir að hann ljómi um leið og hann finni hestalyktina: „Ástvaldur byrjaði á reiðnámskeiðinu hjá Sóley og Elvu í janúar og frá upphafi hefur hann haft mikinn áhuga á þessu. Hann er ekkert hræddur við hestinn og hjálpar til við að kemba honum og er mikið í kringum hann.“ Ástvaldur getur tjáð sig og segir Hafdís að þeir sem ekki þekkja hann eigi stundum erfitt með að skilja hvað hann er að segja. Bergur Edgar Kristinssoner einhverfur drengursem hefur stundað reið- þjálfun um nokkurt skeið og síðustu tvö árin hefur hann verið í þjálfun hjá Sóleyju og Elvu. Foreldrar Bergs eru Kristinn Edgar Jóhannsson og Inga Sveina Ásmundsdóttir. Bergur er 7 ára gamall en hann hóf reiðþjálfun fyrir þremur árum síðan hjá Ástu Pétursdóttur í Fáki. Þá var hann keyrður einu sinni í viku til Reykjavíkur í þjálfun þá 4 ára gamall. Inga Sveina segir að Bergur fari í reiðþjálfun einu sinni í viku: „Honum finnst þetta alveg meiriháttar og hann getur varla beðið eftir að komast á hestbak. Þetta er mjög gott fyrir hann félagslega og líkamlega og ómissandi þáttur í hans lífi.“ Fjölskylda Ingu Sveinu hefur verið mikið í hestamennsku og Bergur kynntist hestamennsk- unni þar. Inga segir að Bergur hafi þroskast mikið á því að um- gangast hestana og að hann hafi sýnt framfarir á mörgum sviðum: „Hann vildi sjálfur umgangast hestana og fara á bak og það er algjört grunnatriði að börnin vilji það sjálf. Þegar hann byrjaði gerðum við okkur vonir um að hann myndi styrkja vöðvana í kringum mjaðmagrindina og bæta þannig göngulag hans. Við litum svo á að allt annað væri uppbót eins og kom á daginn, því hann sýndi miklar framfarir í máli sem við gerðum ekki ráð fyrir. Um leið og hann var farinn á bak var hann farinn að tala og má segja að í byrjun hafi um 80% orðaforða hans tengst hest- húsinu og hestamennskunni, en þá var málið reyndar mjög stutt á veg komið. Einhverfan gerir það að verkum að skynjun hans lok- ast stundum en í kringum hest- ana eykst skynjunin til muna og til að upplifa hestana neyðist hann til að „opna“. Við sjáum að hann hefur fundið í hesta- mennskunni hluti sem veita hon- um gleði og félagsskap sem mun styrkja hann í samskiptum sem eru svo slök hjá einhverfum. Bergur hefur eignast góðan vin sem hlustar á hann og hann hefur einnig eignast áhugamál sem er mjög mikilvægt því það er ekki létt líf að vera fatlaður í ófatlaðri veröld,“ segir Inga og bætir við að hann verði áfram í þjálfun hjá stelpunum: „Þær eru að gera frá- bæra hluti og fyrir mig sem móð- ur einhverfs barns er það mikil- vægt að svona þjónusta sé í boði hér á Suðurnesjum,“ segir Inga að lokum. Reiðþjálfun fatlaðra hefur aukist töluvert síðustu árin: Bergur Edgar 7 ára drengur úr Keflavík: Ástvaldur Ragnar er 10 ára úr Sandgerði: Gefandi að starfa með fötluðum í hestamennsku Systurnar Sóley og Elva Björk Margeirsdætur eru í hestamennsku ásamt allri fjölskyldunni, enþau starfa mikið með hestamannafélaginu Mána. Foreldrar þeirra eru þau Margeir Þorgeirssonog Ástríður Lilja Guðjónsdóttir en þau eru kunnir hestamenn og m.a. er Margeir formaður hestamannafélagsins Mána og Ástríður formaður æskulýðsdeildar félagsins. Þær systur nota allan sinn frítíma í hesthúsunum og þeim leiðist ekki. Þær hafa verið með reiðþjálfun fyrir fötluð börn og síðustu 2 árin hafa þær þjálfað Berg Kristinsson 9 ára, en hann er einhverfur. Systurnar hafa tekið að sér þjálfun tveggja fatlaðra einstaklinga til viðbótar og þær segja að starfið sé mjög gefandi: „Þetta er rosalega gaman og mjög gefandi starf,“ segja systurnar en þær nota sérsmíðaðan hnakk sem smíðað- ur er af Erlendi Sigurðssyni söðlasmið en hnakkurinn er sérstaklega ætlaður fötluðum börnum. Kiwanisklúbburinn Keilir gaf hestamannafélaginu Mána hnakkinn. Getur varla beðið eftir að komast á hestbak Ljómar um leið og hann f Te xt i o g m yn di r: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n • jo ha nn es @ vf .is Eftir að systurnar fóru á námskeiðið í Skagafirði fóru þær, ásamt hestamannafélaginu Mána og Þroskahjálp á Suðurnesjum að kynna reiðnámskeið fyrir fatlaða. „Einhverfan gerir það að verkum að skynjun hans lokast stundum en í kring- um hestana eykst skynjunin til muna og til að upplifa hestana neyðist hann til að „opna“ á skynjunina.“ „Þegar Ástvaldur liggur á hestinum nær hann alveg að slaka á. Hann liggur á maganum og leggur vangann á hestinn.“ „Maður sér hvað börnin ljóma um leið og þau koma inn í hest- húsið. Þeim finnst þetta rosalega gaman og vita nákvæmlega hvað þau eru að fara að gera þegar þau koma í hesthúsið.“ 7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:46 Page 6

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.