Víkurfréttir - 13.02.2003, Side 7
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 I 7
Ívar Egilsson er 9 ára gamallen hann er með erfðagallasem nefnist Prader Wille
heilkenni. Fötlun Ívars lýsir sér
á marga vegu, bæði andlega og
líkamlega. Ívar stundar nám í
Gerðaskóla og er í 3ja bekk
þar sem hann er með jafnöldr-
um sínum og nýtur líka stuðn-
ingskennslu. Ívar hefur verið
mjög virkur með íþróttafélag-
inu Nes og meðal annars varð
hann í fyrsta sæti í liðakeppni
og í einstaklingskeppni í Boccia
fyrir stuttu. Foreldrar Ívars
eru Egill Egilsson og Gunnrún
Theodórsdóttir. Ívar er búinn
að vera í reiðþjálfun hjá Sóley
og Elvu frá því í janúar og
hann er mjög ánægður og
áhugasamur um hestana.
Egill faðir hans segir að þau sjái
mjög jákvæðar breytingar á Ívari
og að þessi þjálfun sé stór þáttur í
að honum líði vel: „Reiðþjálfun-
in stuðlar að betra andlegu jafn-
vægi hjá Ívari og hann lærir að
umgangast hesta og auðvitað að
sitja þá. Vegna fötlunar hans eru
vissir vöðvar slakir og með
þjálfuninni styrkjast vöðvar hans
sem er mjög mikilvægt,“ segir
Egill.
Síðasta sumar var Ívar í tvær vik-
ur hjá frænda sínum á Raufar-
höfn þar sem hann umgekkst
hesta sem frændi hans á. Egill
segir að áhugi Ívars hafi kviknað
þar á hestamennskunni: „Hann
var mikið í kringum hestana hjá
frænda sínum og hann hefur m.a.
sagt okkur að hann eigi smá hlut
í þeim,“ segir Egill og hlær.
Eins og áður segir hefur Ívar
mikinn áhuga á hestum og reið-
þjálfuninni og segir Egill faðir
hans að þær systur Sóley og Elva
eigi mikið hrós skilið: „Þær eru
að vinna frábært starf og ná góðu
sambandi við krakkana. Ég vil
bara hvetja foreldra fatlaðra
barna á Suðurnesjum til að
kynna sér það starf sem þær eru
að vinna,“ segir Egill að lokum.
Ívar Egilsson, 9 ára strákur úr Garðinum:
Sökum fötlunar sinnar getur
Ástvaldur ekki haldið höfðinu
uppi þegar hann er í hjólastóln-
um og þarf höfuðstuðning við
öll hjálpartæki, en þegar hann er
kominn á hestbak nær hann að
halda höfðinu stöðugu: „Hann
er mjög þrjóskur strákurinn og
hann ætlar sér að ná því að
halda höfði næsta vetur. Þegar
hann er á hestbaki þá þjálfast
hálsvöðvarnir vel, enda er hann
oft gríðarlega þreyttur eftir hvert
námskeið. En hann ætlar sér að
ná þessu og ég veit að honum
tekst það,“ segir Hafdís
Ein af aðferðunum sem systurn-
ar lærðu á námskeiðinu í Skaga-
firði var að leggja teppi yfir bak
hestsins og láta barnið liggja á
maganum á hestinum. Þessi að-
ferð er mjög góð til að fá barnið
til að slaka á öllum vöðvum, en
fjölfötluð spastísk börn eru með
mjög spennta vöðva: „Þegar
Ástvaldur liggur á hestinum nær
hann alveg að slaka á. Hann
liggur á maganum og leggur
vangann á hestinn. Þetta er frá-
bær slökun fyrir hann og sér-
staklega eftir æfingarnar sem
fram fara á námskeiðinu,“ segir
móðir hans og þegar Ástvaldur
var lagstur á hestinn söng hann
af tilfinningu: „We are the
champions“ og átti við sig og
hestinn.
hann finnur hestalyktina
Reiðþjálfunin stuðlar að
betra andlegu jafnvægi
Sökum fötlunar
sinnar getur Ást-
valdur ekki hald-
ið höfðinu uppi
þegar hann er í
hjólastólnum, en
þegar hann er
kominn á hestbak
nær hann að
halda höfðinu
stöðugu.
„Reiðþjálfunin stuðlar að betra
andlegu jafnvægi hjá Ívari og
hann lærir að umgangast hesta
og auðvitað að sitja þá.“
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:47 Page 7