Víkurfréttir - 13.02.2003, Side 12
ÍGarðinum er verið að geraupp fornbíl af gerðinniAMC Javelin árgerð 1969
með 360 vél og er það Ingvar
Gissurarson sem hefur eytt
drjúgum tíma síðasta eina og
hálfa árið í vinnu við uppbygg-
ingu bílsins. Bíllinn sem Ingvar
gerir upp var síðast skoðaður
árið 1982 og afskráður 5 árum
síðar. Ingvar segir að hann hafi
heitið sjálfum sér því að þegar
hann væri kominn með góða
aðstöðu til að vinna í bílum þá
ætlaði hann að gera upp
gamlan bíl: „Fyrsti bíllinn sem
ég átti var ‘68 módelið af Merc-
ury Coucar en ég formæli enn
þeim degi þegar ég seldi hann.
En nú er ég kominn með tvö-
faldan bílskúr og ég stóð við
heit mitt.“
Ingvar fékk bílinn hjá Birgi
Pálmasyni í Keflavík en þá var
hann byrjaður að gera bílinn upp
og búinn að rífa hann: „Þegar ég
fékk bílinn vantaði vél og skipt-
ingu, en það fylgdu með honum
allt sem skipti máli s.s. tvöfaldur
gangur af frambrettum, rúður,
ljós og tvöfaldan gang af krómi
og fleira. Þannig að það er nóg til
af varahlutum. Bíllinn var nánast
alveg óryðgaður og meira að
segja gólfið var heilt í honum.
Hann var skemmdur á afturend-
anum eftir aftanákeyrslu og ég
hef verið að gera við það.
Boddýið í bílnum er rosalega
sterkt, en ég komst að því þegar
ég fór að gera við hann að aftan.“
Ingvar keypti vélina í bútum og
kom henni saman. Hann hefur
tekið mælaborðið alveg í gegn,
en bíllinn var plussaður að innan:
„Þetta var náttúrulega bara tískan
á þessum tíma, en plussið var sett
í bílinn árið 1977 og hefur haldið
sér ótrúlega vel. En hún fær nú
að víkja þegar fjárráð leyfa.“
Ingvar segir að það sé dýrt að
gera svona bíl upp, en hann ætlar
að gefa sér góðan tíma í það:
„Peningarnir sem ég hef eytt í
þennan bíl eru svipaðir og ef ég
hefði reykt hálfan pakka af
sígarettum á dag frá því ég byrj-
aði að vinna í bílnum.“
Oft þegar rætt er um karlmenn
sem nota stóran hluta af frítíma
sínum í að gera upp bíla þá kem-
ur sú spurning upp: „Hvað segir
konan þín við þessu?“ Ingvar
segir að hann þurfi ekki að hafa
áhyggjur því konan hans, Mar-
grét Hallgrímsdóttir hefur mik-
inn áhuga á bílum: „Hún var
búin að eiga Mustang og Trans-
am áður en ég kynntist henni
þannig að hún hefur áhuga á bíl-
um. Hún nennir hins vegar ekk-
ert að vinna í þessum en hún er
alveg tilbúin til að keyra bílinn
þegar hann verður tilbúinn,“ seg-
ir Ingvar og hlær.
Mörg hundruð vinnustundir ligg-
ja að baki því að gera upp gamla
bíla og segir Ingvar að hann hafi
lagt gríðarlega vinnu í bílinn:
„Maður verður náttúrulega að
gera þetta í samráði við fjöl-
skylduna. En ég hef rosalega
gaman af þessu. Þessa stundina
er ég að gera við skemmdina aft-
an á bílnum og legg áherslu á að
klára boddývinnuna og koma lit
á skrokkinn,“ segir Ingvar og
þegar hann er spurður að því
hvenær hann telji að bíllinn verði
tilbúinn á götuna segir hann að
það sé örugglega eitt og hálft ár
þangað til: „Það er náttúrulega
buddan sem ræður og ég á eftir
að ná mér í nokkra dýra vara-
hluti. En ég geri ráð fyrir því að
bíllinn klárist útlitslega seint á
þessu ári eða snemma á því
næsta,“ segir Ingvar að lokum og
án efa geta Suðurnesjamenn bar-
ið þennan dýrgrip augum sumar-
ið 2004.
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VFBÍLAR
B Í L S K Ú R S K A R L I N N
-segir Ingvar Gissurarson í viðtali við VF Bíla
KOSTAR ÞAÐ SAMA OG AÐ
REYKJA HÁLFAN PAKKA Á DAG
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:53 Page 12