Víkurfréttir - 13.02.2003, Side 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VFBÍLAR
R E Y N S L U A K S T U R
Það er ekki ólíklegt svo vægt sé
til orða tekiðað Toyota
Landcruiser haldi toppsætinu
á jeppamarkaðnum með nýja
90 bílnum. Honum hefur verið
vel tekið og ekki að ástæðu-
lausu því breytingarnar eru
mjög vel heppnaðar.
Útlitið nýja 90 bílsins er nýtísku-
legt og stór munur á því og á
gamla bílnum. Síðan eru ýmsar
nýjungar í nýja bílnum eins og
tölvustýrð fjöðrun (TEMS) og
loftpúðafjöðrun sem hingað til
hefur einungis verið í 100 bílnum
og er nú orðinn staðalbúnaður í
90 bílnum. Undirritaður prófaði
bílinn í hálku og snjó á ekki
mjög grófum snjódekkjum og
kom stöðugleikastýringin frábær-
lega vel út í því prófi. Það er
reyndar ekki staðalbúnað heldur
valbúnaður. Sama má segja um
spólvörnina sem er nauðsynleg
ekki síst þegar bílar eins og þessi
er kominn með svona stóra vél
og mikinn kraft. Þetta er reyndar
sama vél og í bílnum fyrir breyt-
ingu en hún er þriggja lítra dísil
túrbó, „common-rail“ (eins og
undirritaður prófaði), geysilega
öflug en jafnframt sparneytin.
Það get ég staðfest eftir að hafa
átt sjálfur 90 bíl (fyrir breytingu).
Ekki var prófaður bíll með bens-
ínvél en hún hefur einnig fengið
afbragðs dóma. Hins vegar er
megnið af seldum jeppum með
dísilvélum.
Meðal fleiri skemmtilegra breyt-
inga er „innvolsið“, innréttingin
er komin með Lexus-útlit ef svo
má segja. Upplýsingaskjáir eru í
mælaborði þar sem lesa má ýms-
ar gagnlegar upplýsingar, t.d.
stefnu samkvæmt áttavita og
halla og stöðu ökutækisins. Í
bílnum er tveggja þrepa loftpúði
og sæti eru góð. Góðir mælar.
Plássið er rúmt og meðal staðal-
breytinga frá eldri gerð er að nú
er aukasætaröð, reyndar bara í
VX gerðinni. Þá eru smáhlutir í
góðu lagi eins og glasa/flösku-
haldarar og gott geymsluhólf á
milli sæta. Í VX gerðinni er leð-
urinnrétting en tau í hinum sem
staðalbúnaður. Meðal nýjunga
eru betri hljómflutningstæki;
fjöldiskaspilari, segulbandstæki
(sem allir eru hættir að nota, hélt
ég) og 9 hátalarar. Hörku sánd!
Það er flest í þessum bíl sem
hugurinn girnist, nánast allt raf-
drifið, upphitaðir speglar og sæti.
Það er ljóst að þessi bíll kemur til
með að vera í fararbroddi enda
hefur hann allt til að bera, útlitið,
gæðin og „gáfurnar“!
Páll Ketilsson
TOYOTA
Land Cruiser
90 VX
Skráðir Landcuiser 90 bílar á Suðurnesjum eru í dag rétt tæplega 200 og er án efa fjölmennastijeppinn á götunum og sennilega með fjölmennustu tegundum á heildina yfir allar gerðir bíla.Ævar Ingólfsson, eigandi Toyota-salarins í Njarðvík segir að strax þegar Landcruiser 90 kom á
markaðinn árið 1996 hafi hann hlotið feikna góðar viðtökur. Bíllinn hefur ekki breyst mikið síðan þá
en alltaf selst vel. „Ástæðan fyrir velgengni bifreiðarinnar er augljós. Þetta er góður bíll með fáa eða
eins og ég myndi segja, nánast enga veikleika. Nýi bíllinn með þetta útlit og nýjungar í búnaði er frá-
bær. Allir sem prófa bílinn eru sammála því, hvort sem þeir kaupa hann eða ekki. Eitt aðalsmerkja
okkar og Toyota er síðan þjónustan. Við leggjum mikið upp úr henni“, sagði Ævar sem hóf bílaferil
sinn hjá Bílasölu Brynleifs. Hann keypti síðan bílasöluna af Brynleifi Jóhannessyni sem er þó enn að
vinna við bíla hjá Ævari.
KRÚSERINN ER VINSÆLL Á SUÐURNESJUM
Glæsilegt útlit og gæði
7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 17:52 Page 14