Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.02.2003, Side 17

Víkurfréttir - 13.02.2003, Side 17
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 I 17 Ídag er torfærubifreiðarflokkaðar í þrjá flokka: Ífyrsta lagi hefðbundna jeppa, sem eru sérbúnir til aksturs á vegleysum, í öðru lagi frístundabílar sem byggja á lífstílshugmyndum, og eru einkum byggðir fyrir þjóð- vegaakstur og loks bifreiðir sem ætlað er að sameina báða þessa kosti. Báðir fyrri flokk- arnir hafa sína kosti, en oft á kostnað annarra eignleika sem verður að fórna. Þetta á ekki við Touareg: Þrátt fyrir raunverulega kosti til aksturs á vegleysum, býður hann upp á þægindi lúxusfólksbíls sam- hliða aksturseiginleikum sportbíla í götuakstri. Touareg er ætlað að keppa í efsta flokki jeppa. Núverandi staða Volkswagen á markaði gefur upplagt tækifæri til að láta Touareg ná fótfestu á heims- markaði - sérstaklega með það í huga að auðveldara er að láta bifreið sem er með yfirburði á svo mörgum sviðum fá fljúg- andi start. Sex strokka, 3,2 lítra bensínvélin er sérstaklega hönnuð til að hæfa torfærubifreið. Meðal þess sem hefur verið aðlagað fyrir torfæruakstur er endurbætt olíu- dæla með breyttu inntaki og breytt olíupanna sem tekur mið af halla til hliðar og fram og aft- ur. Hámarksvaðdýpt Touareg er 580 mm. Hin algjörlega nýja V10 TDI díselvél er hinn tæknilegi há- punktur Touaregs. Með yfir- burða afli - allt að 750 Nm snúningsvægi við 2000 snún- inga á mínútu - nær hún að takast á við erfiðustu torfærur. Og þessi Volkswagen-bifreið með slíkri vél býður upp á akst- urseiginleika sportbíls, með til þess að gera, lítilli eldsneyt- iseyðslu. Hröðun Touareg V10 frá 0 til 100 km/klst er aðeins 7.8 sekúndur, hann nær há- markshraðanum 225 km/klst, en notar aðeins 12.2 lítra af elds- neyti á hverja 100 kílómetra. Touareg er 4754 mm langur, 1928 mm breiður, 1726 mm hár með 2855 mm hjólahaf, og á því heima í flokki með stórum jepp- um. Galvanhúðuð yfirbyggingin er lengst og breiðust í sínum flokki. En samtímis er Touareg lægri en allir aðrir stórir jeppar - mikilvægur punktur í heildar ímynd bifreiðarinnar. Þessi út- litshlutföll koma fram í sérlega aflmiklu og glæsilegu yf ir- bragði. Búnaður innanrýmis er í fyrsta flokki og Touareg V6 er með 555 til 1570 lítra farmrými (Touareg V10: 500 til 1525 lítr- ar) sem er eitt hið stærsta í þess- um flokki. Aflið frá vélinni í Touareg er flutt til hjólanna um sítengt aldrif, 4XMOTION. Þessi bún- aður gefur ekki aðeins yfirburða eiginleika í akstri á vegleysum, heldur einnig mikið öryggi og bætir aksturseiginleika á vegum með bundnu slitlagi. Afldreifing til drifhjólanna fer um milligír- kassa, og þaðan um mismuna- drif á fram- og afturás. Eftir að- stæðum er hægt að flytja allt að 100% af drifaflinu til annars ásanna tveggja (mismuna- drifslæsingunni er í fyrsta lagi stýrt af snúningsvægi vélarinnar og í öðru lagi frá hjóli sem spól- ar). Ökumaðurinn getur valið um að virkja driflæsingarnar í 100% læsingu handvirkt með snúningsrofa í mælaborði, en þá aftengir hann um leið sjálfvirkni læsingarinnar. EDL-búnaður á öllum fjórum hjólum er staðal- búnaður og sér um að fínjafna drifaflinu. Til viðbótar kemur Touareg einnig með læsingu á miðmis- munadrif i sem staðalbúnað ásamt lægra drifi. Þannig búinn getur Touareg tekist á við brött- ustu brekkur eða allt að 45°. Touareg er búinn hátæknilegum hjólabúnaði með sjálfstæðri fjöðrun á hverju hjóli. Aukabún- aður á V6 og staðalbúnaður á Touareg V10 TDI er CDC loft- fjöðrun, með sjálfvirkri halla- stillingu og rafeindastýrðri höggdeyfingu (CDC: Continu- ous Damping Control). Með þessari fjöðrun hækkar há- markshæð frá jörð upp í 300 mm. Loftpúðafjöðrunin tryggir ein- staklega mikil þægindi og með sjálfvirkum búnaði sem lækkar bifreiðina í tveimur þrepum eftir því sem hraðar er ekið fær bíll- inn sportlegri aksturseiginleika þegar ekið er á bundnu slitlagi. Loftfjöðrunin sér til þess að halda Touareg stöðugt í sömu hæð frá jörðu. Volkswagen Touareg - lúxustorfærubifreiðin 7. tbl. 2003 - 32 pages copy 12.2.2003 18:17 Page 17

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.