Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.02.2003, Síða 23

Víkurfréttir - 13.02.2003, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR I 7. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 I 23 H jalti Gunnarsson og Júlí-us Símon Pálsson hafatekið við rekstri veitinga- salar og kaffihúss Flughótels- ins í Keflavík og þeir eru bjart- sýnir á möguleikana sem í rekstrinum felast. Hvað kom til að þið tókuð að ykkur rekstur Flughótels? Eftir tveggja ára dvöl í danmörku þar sem ég meðal annars fékkst við það að koma á laggirnar sjáv- arveitingastað á V-Jótlandi og að hanna sjávarrétta línuna fyrir Hilton/Scandik hótel í dan- mörku, en þessi verkefni tóku um það bil tvö ár. Eftir að því verkefni lauk lá leiðin aftur heim á klakann. Fljótlega eftir að ég kem heim hafði Axel Jónsson sambandi við mig og tjáði mér að hann væri í umboði Bergþóru Sigurjónsdóttur hótelstýru á Flughótel að leita eftir góðum veitingamanni til að taka að sér rekstur veitingasalsins og kaffi- hússins á Flughóteli. Eftir að hafa rætt við Bergþóru þá varð mér það ljóst að hér væri á ferð- inni metnaðarfullt fólk með góð- ar hugmyndir og því fannst mér þetta kjörið tækifæri til þess að bjóða landsmönnum upp á há- gæða þjónustu og mat í þessu fallega umhverfi. Eru einhverjar nýjungar sem þið ætlið að bjóða uppá? Já markmið okkar er að geta sí- fellt komið viðskiptavinum okkar á óvart með nýjum og spennandi réttum hvort sem það er í fisk eða kjöti. Hvernig líst ykkur á ferða- mannaiðnaðinn? Ljóst er að ferðamanna iðnaður- inn er sú auðlind Íslendinga sem er í hvað mestu vexti. Í ljósi krafta og starfa Bergþóru hótel- stýru munum við njóta góðs af þeim vexti sem á sér stað í ferða- manna iðnaðinum sem og allir landsmenn. Hvaða tækifæri sjáið þið í framtíðinni? Vitundarvakning hefur orðið hjá fólki gangvart lystaukum lífsins, að njóta góðrar þjónustu og góðs matar í fallegu umhverfi eru svo sannarlega góð leið til þess að njóta lífsins og það er okkar fag að láta fólki líða vel. Hvernig hefur fólk tekið ykk- ur? Á kynningarkvöldi okkar buðum við gestum upp á hlaðborð af fiskréttum og í kringum þetta myndaðist létt og góð stemming. Enginn vill þó hæla sjálfum sér og sennilega væri best að fá um- mæli frá viðskiptavinum okkar, óhætt er að segja að fólk hefur tekið okkur afskaplega vel. Nýir rekstraraðilar að veitingasal og kaffihúsi Flughótels 7. tbl. 2003 - 32 pages 12.2.2003 18:28 Page 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.