Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2003, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 27.02.2003, Qupperneq 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Hefur þú ábendingu um skemmtilegan mannlífsviðburð sem á heima á síðum Víkurfrétta? Er góugleði eða árshátíð framundan? Látið okkur vita á johannes@vf.is eða í símum 899 2225 og 421 0004 Bandaríska fyrirtækið International Pipeand Tube mun taka ákvörðun um bygg-ingu Stálpípuverksmiðju í Helguvík um miðjan mars að sögn David Snyder fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. David sagði í sam- tali við Víkurfréttir að fundum með verktökum hefði verið frestað um eina viku: „Við munum eiga fundi með verktökum, m.a. íslenskum næsta fimmtudag og föstudag þar sem þeir munu leggja fram sín tilboð. Við gerum ráð fyrir að ákvörðun liggi fyrir um miðjan mars um það hvort fyrirtækið muni hefja byggingu stálpípu- verksmiðju í Helguvík,“ sagði David Snyder í samtali við Víkurfréttir. Blóðugar nágrannaerjur í Keflavík Tilkynnt var um slagsmál milli tveggja karlmanna sem búa á sitt hvorri hæðinni í sama húsi í Keflavík rétt fyrir miðnætti á fimmtudag í síðustu viku. Ágreiningur er búinn að vera milli þeirra um tíma og sauð uppúr á fimmtudagskvöldið. Báðir þurfa að leita læknis vegna skurða á hendi. Rúða í útidyra- hurð brotnaði í átökunum. Litlir strákar teknir á torfæruhjólum Lögreglumenn stöðvuðu akstur tveggja torfæruhjóla á Stapavegi í síðustu viku. Var annar öku- maðurinn 13 ára og hinn 14 ára og því hvorugur með ökuréttindi. Bæði voru hjólin óskráð og ótryggð. Einn ökumaður var kærður fyrir stöðvunarskyldubrot og settir voru gjaldseðlar á níu bifreiðar þar sem þeim var ranglega lagt. Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur á Grindavíkurvegi og var sá sem hraðar ók á 136 km. hraða. Þjófar stöðvaðir Um klukkan hálf fjögur á föstu- dag var tilkynnt um grunsamleg- ar ferðir tveggja manna í Kefla- vík. Höfðu þeir farið í tvær versl- anir og vitni sagðist hafa séð þá stinga munum inn á sig. Síðan hefðu þeir ekið á brott en vitni gat gefið upp skráningarnúmer bifreiðarinnar. Lögregla í Kefla- vík leitaði mannanna. Skömmu síðar voru þessir aðilar stöðvaðir, af lögreglunni í Hafnarfirði, á Reykjanesbraut. Í bifreiðinni fundust hinir ýmsu munir sem þeir viðurkenndu að hafa tekið ófrjálsri hendi úr verslunum í Keflavík. Mennirnir voru í haldi lögreglu í Hafnar- firði meðan málið var í rann- sókn, málið telst upplýst. Söfnunarkassar tæmdir í innbroti Tilkynnt var um innbrot í veit- ingahúsið Vitann í Sandgerði í vikunni. Höfðu verið brotnir upp tveir söfnunarkassar og þeir tæmdir. Ekki kemur fram í bók- um lögreglunnar hversu mikil fjárhæð var í kössunum. Klukkan 14.43 á mánudag í síðust viku var tilkynnt um skemmdarverk í Grunnskóla Grindavíkur. Hafði verið brotin rúða á suðurhlið skólans. Einnig höfðu verið unnar skemmdir á útihurðum í tveimur nýjum úti- stofum skólans. Klukkan 23:04 á fimmtudag fyrir viku var tilkynnt að ekið hafi verið á kyrrstæða og mann- lausa bifreið við Heiðarhvamm í Keflavík og að tjónvaldur hafi horfið af vettvangi án þess að láta vita af sér. Dæld er á vinstri afturhurð. Steralyf og kannabisefni fundust við húsleit Aðfaranótt laugardagsins hafði Lögreglan í Keflavík afskipti af ungum dreng vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit í her- bergi hans fannst smáræði af kannabisefnum, auk þess sem eitt hylki af steralyfjum fannst við húsleitina. Hjólbarðastuldur og skemmdarverk í Garðinum Skömmu eftir hádegi var tilkynnt um þjófnað í Garði. Þar hafði verið farið í fyrirtæki og stolið fjórum hjólbörðum á felgum. Um er að ræða 38“ hjólbarða og nokkurt tjón fyrir eiganda þar sem andvirði er talið um 200 þúsund krónur. Bifreiðum illa lagt Lögreglan í Keflavík hafði af- skipti af bifreiðum sem var illa lagt við Fjölbrautaskóla Suður- nesja sl. föstudag. Þremur bif- reiðum var lagt upp í grasi á veg- kanti, en á skilti sem stendur þar við kemur fram að bannað er að leggja bifreiðum á þessum stað. Lögreglan tók myndir af bifreið- unum og sektaði eigendur bif- reiðanna. Á bæn til Mekka áður en hann fór í Keflavíkurrútuna! Rúmlega hálfsjö á sunnudag var tilkynnt um öldauðan mann við Umferðarmiðstöðina í Reykja- vík. Þegar lögreglan kom á vett- vang kom í ljós að maðurinn var allsgáður, segir í dagbók lögregl- unnar. Hann var útlendingur og hafði verið á bæn og snúið sér í átt til Mekka á meðan hann beið eftir rútu til Keflavíkur. Ekki fer sögum af því hvernig ferðin til Keflavíkur gekk eða hvert ferðinni var heitið hjá þess- um trúheita ferðalangi. Stuttar frá löggunni Stuttar frá löggunni Stálpípuverksmiðja í Helguvík: Ákvörðun tekin um miðjan mars Samningur um byggingu nýrrar álmu í FS undirritaður Gengið hefur verið fráskrift samnings um bygg-ingu nýrrar 2800 fer- metra álmu við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja.Aðilar að samningnum eru menntamála- ráðuneyti og fjármálaráðu- neyti fyrir hönd ríkisins og Gerðahreppur, Grindavíkur- bær, Reykjanesbær, Sandgerð- isbær og Vatnsleysustrandar- hreppur fyrir hönd sveitarfé- laga á Suðurnesjum. Kom fram við undirritunina að nýja álman muni uppfylla þarfir skólans næstu tíu árin. Eftir það vonast menn til að hægt verið að hefja byggingu á nýjum fram- haldsskóla á Suðurnesum. Undirbúningur fyrirnæstu hvalaskoðunar-vertíð er hafinn. Þrír stórir hvalaskoðunarbátar eru nú í slipp hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Skipin sem tekin hafa verið í slipp eru Moby Dick, Húni II og Hafsúlan, sem er tveggja skrokka skip. Á meðfylgjandi mynd sjást tvö fyrrnefndu skipin en Hafsúlan var komin inn í hús hjá skipa- smíðastöðinni. Stefán Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri skipasmíðastöðv- arinnar, sagði í samtali við Vík- urfréttir að verkefnastaða stöðv- arinnar væri ekki góð sem stend- ur og því hentaði það báðum að- ilum vel að taka hvalaskoðunar- skipin í slipp á þessum árstíma. Þá væri það einnig ljóst að ekki væru stór verkefni framundan. Skipasmíðastöðin er hins vegar mjög vel búin og getur tekið mjög stór fiskiskip til viðgerða og viðhalds innanhúss. Hvalaskoðunarflotinn í slipp í Njarðvík Ingibjörg Sólrún í Keflavík Aðalfundur Samfylk-ingarinnar í Reykja-nesbæ verður hald- inn mánudaginn 3. mars nk. í Víkinni að Hafnargötu 80 í Keflavík. Fundurinn hefst kl. 20:00 og er fund- arefni venjuleg aðalfundar- störf ásamt öðrum málum. Gestir fundarins verða þau Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Moby Dick og Húni II á athafnasvæði Skipasmíðastöðvar Njarð- víkur. Hafsúlan er inni í húsinu sem sést í baksýn. 9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:35 Page 2

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.