Víkurfréttir - 27.02.2003, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Magnús Þorsteinsson skoraði
eina mark Keflavíkur í 2-1 tapi
liðsins gegn Fram í deildarbik-
arnum sl. helgi. Keflvíkingar
þóttu leika betur en það er þó
ekki spurt að því.
Paul McShane og Grétar
Hjartarson skoruðu mörk
Grindvíkinga þegar liðið sigr-
aði sigraði ÍBV, 2:0, í deilda-
bikarkeppni karla í knattspyrnu
í Fífunni um helgina.
Logi Gunnarsson gerði sér
lítið fyrir og skoraði 31 stig í
sigri Ulm á Frankfurt, 110:76,
í þýsku 2. deildinni í
körfuknattleik. Ulm er í 2. sæti
deildarinnar með 36 stig en
Karlsruhe eru efstir með 38
stig.
Deildarbikarinn hefst um
helgina í Reykjaneshöllinni en
mótið hófst um sl. helgi. Á
laugardaginn kl. 14:00 mætast
Grindvíkingar og FH og strax
að þeim leik loknum mætast
Haukar og Þróttur.Fólki er
bennt á heimasíðu Reykjanes-
hallarinnar; reykjaneshollin.is
en þar er að finna allar upplýs-
ingar um niðurröðun leikja.
Kristinn Óskarsson FIBA
dómari hefur verið tilnefndur
af FIBA til að dæma í undan-
úrslitariðli drengjalandsliða
sem fram fer í Tyrklandi dag-
ana 17. - 21. apríl næstkom-
andi. Íslenska drengjalandslið-
ið vann sér rétt til að taka þátt í
mótinu með góðum árangri í
undankeppninni.
::Fyrst og fremst
19. umferð
Intersportdeildar
í stuttu máli:
KR - Keflavík:
78-105 (20-52)
Hann var ekki spennandi leik-
urinn á milli Keflavíkur og
KR. Gestirnir mættu greinilega
dýrvitlausir til leiks á meðan
KR-ingar hafa eflaust haldið
að leikurinn ætti að vera dag-
inn eftir. Edmund Saunders átti
góðan leik hjá Keflavík, skor-
aði 21 stig og hirti 15 fráköst.
Damon Johnson var með 24
stig og Guðjón Skúlason setti
20 stig.
Skallagrímur - UMFN:
89-87 (44-48)
Gestirnir úr Njarðvík mættu
kanalausir í Borganes og
bjuggust án efa við spennandi
leik, sú varð raunin. Þegar
staðan var jöfn og um tvær
sekúndur voru eftir skoraði
JoVann Johnson með skoti rétt
innan þriggjastigalínu og sigur
heimamanna raunin. Teitur Ör-
lygsson átti góðan leik hjá
gestunum með 27 stig og Páll
Kristinsson var með 17.
UMFG - Breiðablik: 104-
99 (50-44)
Heimamenn lentu í smá erfið-
leikum með Blikana en náðu
þó að landa sigri. Grindvíking-
ar hafa verið að leika vel í vet-
ur og eru nánast búnir að tryg-
gja sér deildarmeistaratitilinn.
Darrell Lewis átti stórleik hjá
Grindavík en hann skoraði 39
stig og hirti 1 5 fráköst en Páll
Axel Vilbergsson kom næstur
með 22 stig.
Grindvíkingar er efst með 32
stig, Keflavík er í 2. sæti með
28 stig og Njarðvíkingar eru í
6. sætið með 20 stig.
K eflavíkurstúlkur unnugranna sína úr Njarðvíkmeð 81 stigi gegn 71 í
Keflavík um helgina. Engin
breyting er því á stöðu liða í
fyrstu deild kvenna en Keflavík
er þar með yfirburða forystu.
Erla Þorsteinsdóttir var með
22 stig en Krystal Scott var
best í liði heimastúlkna með 28
stig.
Grindavíkurstúlkur töpuðu fyrir
ÍS, 65-62, á mánudag en staðan í
hálfleik var 29-27 heimastúlkum
í hag. Yvonne Shelton átti góðan
leik fyrir gestina úr Grindavík og
skoraði 20 stig og 8 fráköst. Þá
var Stefanía Ásmundsdóttir ein-
nig drjúg en hún skoraði 15 stig
og hirti 12 fráköst.
Keflavík er sem fyrr í toppsætinu
með 32 stig, Grindavík er í 3.
sæti með 16 stig, jafnmörg og
Njarðvík sem er í 4. sæti.
N jarðvíkingar hafa feng-ið nýjan bandarískanleikmann, Gregory
Harris, til reynslu og mætti
hann á sína fyrstu æfingu sl.
þriðjudag. Gregory Harris er
25 ára bakvörður sem lék með
Mount St. Mary´s skólanum í
bandarísku NCAA háskóla-
deildinni. Hann er 191 cm á
hæð og um 90 kg. Harris hefur
leikið í Belgíu undanfarin tvö
ár og og í Þýskalandi. Á síðasta
tímabili sínu í Belgíu var hann
með 13.4 stig, 4 fráköst og 5
stoðsendingar að meðaltali á
leik.
Friðrik Ragnarsson sagði í sam-
tali við Víkurfréttir að hann vissi
þó nokkuð um leikmanninn en
sagðist þó ætla að bíða og sjá
hvernig hann kæmi út, eða eins
og hann orðaði það: “Fæst orð
bera minnsta ábyrgð”.
Nýr leikmaður til UMFN
Nú er ljóst að DamonJohnson fer ekki tilGrikklands eins og leit
út fyrir á tímabili. Hrannar
Hólm, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur, sagði í
samtali við Víkurfréttir að
málið hefði lokast og nú gætu
leikmenn farið að einbeita sér
að því að gera atlögu að Ís-
landsmeistaratitlinum. Hann
sagði enn fremur að þetta væru
góðar fréttir fyrir leikmenn og
stuðningsmenn.
Hrannar sagði að Grikkirnir
hefðu dregið málið á langinn en
stjórn Keflavíkur ætlaði að ganga
frá málinu sl. föstudag. “Það
voru voðaleg vandræði á þeim og
við fengum misvísandi upplýs-
ingar. Þeir vildu svo fara að ná
niður verðinu en við vorum ekki
tilbúnir í það, enda vorum við
ekkert að leitast eftir því að selja
hann. Þegar á hólminn var komið
vildu gátu þeir ekki greitt þessa
ákveðnu upphæð og því datt
málið niður”, sagði Hrannar.
Damon áfram með Keflavík
Tomma og Jenna mót Keflavíkur og Grindavíkur í 5. flokki
karla í knattspyrnu var haldið í Reykjaneshöllinni á laugardag.
Knattspyrnudeildir Keflavíkur og Grindavíkur stóðu að mótinu í
sameiningu og þóttist það takast mjög vel. Suðurnesjaliðin
stóðu sig með ágætum en ekkert þeirra náði þó að sigra.
Elías Kristjánsson og Alfreð Elíasson spiluðu golf í blíðviðrinu
í gær en veðrið var vægast sagt frábært. Annars hefur verið
góð aðsókn í golfhermi og snóker i æfingahúsi GS sem er opið
alla daga vikunnar.
Feðgar í vetrargolfi
BIRNA
í baráttunni
BOLTA
FÍN
MEÐFERÐ HJÁ
STRÁKUNUM
9. tbl. 2003 - 24 hbb 26.2.2003 17:54 Page 6