Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2003, Side 9

Víkurfréttir - 27.02.2003, Side 9
VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003 I 9 Dönsk bluegrass hljómsveit ásamt söngkonunni Sine Bach Rüttel mun spila á „Dönskum dögum“. Í þessari hljómsveit eru afburða hljóðfæra- leikarar auk Sine Bach Ruttel – en hún er jafnframt aðallagasmiður og textahöfundur sveitarinnar. Sine er aðalsöngvari hljómsveit- arinnar og leikur jafnframt á banjó og gítar og hefur hvarvetna vakið mikla athygli og hrifningu áhorfenda fyrir frábæra túlkun og sjarma. Auk þess að leika fyrir matargesti á „Dönskum dögum” þá mun hljómsveitin leika fyrir dansi á Fjörugarðinum föstudags- og laugardags- kvöldin 21. – 22. febrúar og 28. febrúar og 1. mars. Fjörugarðurinn: Hljómsveit hinnar stór- skemmtilegu Sine Bach Rüttel spilar fyrir dansi föstudag 21. og laugardag 22. febrúar og svo föstu- daginn 1. mars og laugar- dag 2. mars. Fjaran: Spennandi matseðill að dönskum hætti ásamt við eigandi drykkjarföngum með lifandi danskri tónlist í Fjörukránni 20. febrúar til 2.mars. Danskir dagar St afr æn a h ug m yn da sm ið jan /2 88 3 Það ríkti mikil gleði ogánægja í íþróttasal Heið-arskóla þegar fulltrúar Skipaafgreiðslu Suðurnesja (SAS) mættu þar á æfingar- tíma í gær hjá félögum íþrótta- félagsins Nes, sem er íþróttafé- lag fatlaðra á Suðurnesjum. Tilefni heimsóknar SAS var að færa félaginu gjöf að upphæð kr. 500.000.-, sem gefin er í til- efni 40 ára afmælis Skipaaf- greiðslunnar. F.h. SAS mættu Jón Norðfjörð, Ólafía Guð- jónsdóttir, Guðmundur R.J. Guðmundsson og Sólveig Þórð- ardóttir. Það var Gísli Jóhanns- son formaður ásamt fleiri stjórnarmönnum og félögum Ness sem veittu gjöfinni við- töku. 40 ára afmælis Skipaafgreiðsl- unnar verður minnst í 10. tbl. Víkurfrétta 6. mars n.k. og þar verða fjölmargar afmæliskveðjur frá viðskiptavinum fyrirtækisins. Ákveðið var að hluti tekna af af- mæliskveðjunum, ásamt fram- lagi SAS myndaði sjóð til að gefa til góðs málefnis á þessum tímamótum. Þannig eiga öll þau fyrirtæki og einstaklingar sem senda Skipaafgreiðslunni af- mæliskveðjur, sína hlutdeild í þessari gjöf og erum við hjá SAS mjög þakklát fyrir hve vel hefur tekist til, segir í frétt frá fyrirtæk- inu. Íþróttafélagið Nes heldur uppi þróttmiklu íþrótta- og félagsstarfi og eru markmið félagsins að efla íþróttir og félagslíf fatlaðra ein- staklinga á Suðurnesjum undir kjörorðunum „Það snýst allt um viðhorf“. Ýmsar upplýsingar um Nes má lesa á heimasíðu þeirra www.gi.is/nessport. Íþróttafélagið Nes hefur frjálsan ráðstöfunarrétt á gjafafénu, en það er ljóst að stuðningur af þessu tagi er félaginu mjög mik- ilvægur. Því hvetjum við hjá SAS alla til að styðja félagið og taka með því þátt í þessu góða og jákvæða uppbyggingarstarfi. Á myndinni má m.a. sjá ásamt föngulegum hóp íþróttamanna, stjórn Ness og eigendur SAS. Nes: Gísli Jóhannsson formaður, Jóhann Kristjánsson, Borgar Jónsson, Magnús Þórisson, Guð- mundur „Brói“ Sigurðsson, Haf- steinn Ingibergsson og Anna Lea Björnsdóttir þjálfari. SAS: Hjón- in Jón Norðfjörð og Ólafía Guð- jónsdóttir og hjónin Sólveig Þórðardóttir og Guðmundur R.J. Guðmundsson. Íþróttafélaginu Nes færð hálf milljón kr. að gjöf - frá fertugri Skipaafgreiðslu Suðurnesja Auglýsingasíminn er 421 0000 9. tbl. 2003 - 24 hbb 26.2.2003 17:30 Page 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.