Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2003, Page 13

Víkurfréttir - 27.02.2003, Page 13
* VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 I 13 * * * Nafn: Lilja Karen Steinþórsdóttir Aldur: 15 Uppáhaldstala: 7 Stjörnumerki: vog Er mikið að gera sem formaður nemendafélagsins? Ekkert meira en vanalega en ég tel mig ekki vera að gera alla vinnuna, það taka allir jafn mikinn þátt í verkefnum eins og ég en ég tek frekar á mig ábyrgðina. Hvað hefur verið að gerast í félagslífinu í Heiðarskóla? Spurningakeppni Grunnskólanna „Gettu enn betur“ var haldin hér í skólanum fyrir stuttu og svo eru það bara diskótekin og þetta venju- lega. Hvað er á döfinni? Körfuboltamót grunnskólanna verður haldið hérna á næstunni og svo veit maður aldrei ef við gerum eitthvað skemmtilegt á öskudaginn... Hver eru þín helstu áhugamál? vinir, dans, tónlist, kvikmyndir, snjóbretti, félagslíf og bara eitthvað sem mér dettur í hug að gera. Uppáhaldshljómsveit? Þær eru svo margar að ég get ómögulega valið mér eina! Hverjar eru uppáhalds vefsíðurnar þínar? nulleinn.is og margar aðrar, fer eftir því hverju ég er að leita af. Hvaða geisladisk keyptirðu síðast? Það man ég ekki! Það er svo langt síðan. Hvað ætlarðu að verða? Það er ekki ákveðið en mig langar helst að vera lögfræðingur eða hót- elstýra - eitthvað sem launar vel. Hvað myndirðu kaupa ef þú ættir að eyða þúsundkalli? Ég myndi líklega fara í bíó með vinum mínum. Eitt orð sem kemur upp í hugann þegar þú heyrir eftirfarandi: -Britney Spears: Katrín systir mín. -Ísbjörn: Kók -Æskan: tímarit -Kaffi: langafi -www.vf.is: fréttir Hvernig heldurðu að heimurinn verði árið 2500? Hungur og fátækt heyra sögunni til og allir lifa í sátt og samlyndi í tæknivæddari heimi. ungt fólk á Suðurnesjum Við segjum að sautján sé á miðri leið! VF17 er sérefni fyrir ungt fólk á aldrinum 10-24 ára. Þetta er breiður hópur en þættinum er hér með ýtt úr vör. Efnishugmyndir berist til pc@vf.is Af vefnum Grunnskólavefir Reykjanesbæjar vel uppfærðir í flestum tilvikum Á dögunum fékk vefsíða Reykjanesbæjar bestu heild- arútkomu í úttekt á þjónustuhlutverki 20 stærstu sveit- arfélaga landsins. Allir grunnskólar Reykjanesbæjar, sem eru undirstofnanir Reykjanesbæjar eru með sínar eigin vefsíður þar sem ýmsar upplýsingar um skólana koma fram. Svo virðist sem 3 af 4 vefjanna séu vel uppfærðir og með ýmsum fréttum og upplýsingum úr skólastarfinu sem foreldrar geta nýtt sér til að fylgjast með skóla- starfinu. Á vef Heiðarskóla virðist sem vefnum sé ekki sinnt sem skyldi, því þar gefur að líta matseðil nem- enda frá því í desember, auk þess sem forsíða vefjarins er nær án upplýsinga. Í næstu VF-17 verða formenn nemendafélaga allra grunnskóla á Suðurnesjum kynntir og spurðir spjörunum úr. Lilja Karen Steinþórsdóttir er formaður nemendaráðs Heiðarskóla og hennar helstu áhugamál eru m.a. snjóbretti, kvikmyndir og félagslíf. Hvernig verður HEIMURINN árið 2500? Viljum heyra frá ungu fólki í Garði, Sandgerði, Vogum og Grindavík • e-mail: pc@vf.is * * Útskriftarhópur Fjölbrautaskóla Suð- urnesja hefur ákveðið að bjóða fram aðstoð sína til nemenda í 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum og aðstoða við heimanám fyrir samræmdu próf- in. Sigríður Kristín og Þórunn Katla eru í útskriftarhópnum og segja þær að hópur- inn hafi ákveðið þetta til að safna fyrir útskriftarferðinni og leggja sitt af mörk- um til að hækka meðaleinkunn sam- ræmdu prófanna á Suðurnesjum. Hópur- inn fer í útskriftarferð til Majorka 26. maí nk. Sigríður og Þórunn segja að hóp- urinn noti margar aðferðir til að afla pen- inga til ferðarinnar og er þetta ein af þeim, en hópurinn býður einnig fram þjónustu sína við framreiðslu í ferming- arveislum og öðrum veislum. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa aðstoð og þjónustu eru bent á að hafa samband í eftirfarandi símanúmer: 421-3100, 868- 9410, 421-8008 og 866-2300. Aðstoða grunnskólanemendur fyrir samræmdu prófin og taka að sér þjónustu í fermingarveislum Útskriftarhópur Fjölbrautaskóla Suðurnesja aflar fjár með ýmsum hætti: 9. tbl. 2003 - 24 hbb 2/26/03 16:47 Page 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.