Víkurfréttir - 27.02.2003, Síða 15
Enn eitt árið leggja íslensk börn
land undir fót til styrktar nauð-
stöddum börnum. Sjötta árlega
söfnunarátak ABC hjálparstarfs
er að hefjast. Söfnunin stendur
yfir dagana 1. - 21. mars. Að
þessu sinni verður safnað fyrir
skólabyggingu með 5 kennslu-
stofum fyrir ABC barnaskólann í
Uganda og 1. áfanga verk-
menntaskóla á Heimili litlu
ljósanna á Indlandi. ABC hjálp-
arstarf er byggt á kristilegum
grundvelli og hefur það að mark-
miði að veita munaðarlausum og
fátækum börnum kost á heimili,
menntun, læknisþjónustu og ást-
ríkri umönnun. Flest þessara
barna eru munaðarlaus götubörn
eða börn fátækra foreldra sem
ekki geta séð þeim farborða sjálf
og lenda þau þess vegna á göt-
unni. Þar lenda þau gjarnan í
klóm glæpamanna ef þau á ann-
að borð lifa af. Starfið hefur
byggt upp tvö heimili á Indlandi,
Heimili litlu ljósanna í Orissa
héraði á Norður Indlandi en þar
búa 1700 börn og El Shaddai
barnaheimilið utan við Madras á
Suður Indlandi en þar búa um
150 börn. ABC hjálparstarf er
einnig með starf á Filippseyjum,
Kambódíu og Úganda. Starfið
byggist upp á styrktaraðilakerfi,
þ.e. styrktaraðilar á Íslandi taka
að sér eitt eða fleiri börn og
borga vissa fjárhæð á hverjum
mánuði sem sér fyrir þörfum
barnsins. Hægt er að vera í bréfa-
skriftum við barnið og sendar eru
myndir, einkunnir og fréttir af
barninu til styrktaraðila þess. Við
þetta myndast persónulegt sam-
band á milli styrktaraðila og „
fósturbarnsins „ og er það barn-
inu mikils virði. ABC hjálpar-
starf á 15 ára afmæli á þessu ári.
Starfið hefur vaxið jafnt og þétt
og fjöldi styrktarbarna er nú
kominn í 3700. Í söfnun ABC
hjálparstarfs síðasta ári söfnuðust
rúmar 6 milljónir ísl. kr. Þessi
fjárhæð fór til nýbyggingar
barnaheimilisins El Shaddai.
Mikil gleði ríkir nú þar um slóðir
þar sem börnin eru þessa dagana
að flytja inn í nýja húsið sem þau
höfðu beðið svo lengi eftir. Áður
bjuggu þau í húsi með stráþaki
og í hvert sinn sem rigndi, lak
inn og töluvert var um veikindi á
börnunum. Börnin eru mjög
þakklát Íslendingum fyrir nýja
húsið sitt eins og nærri má geta.
Flestir grunnskólar á landinu
taka þátt í söfnuninni. Börnin
fara tvö og tvö saman, þau eru
með sérstaka söfnunarbauka
merkta ABC hjálparstarfi , barm-
merki og bæklinga með upplýs-
ingum um starfið. Á næstunni
munu þessi duglegu grunnskóla-
börn banka upp á hjá ykkur með
baukana sína og veit ég að þið
Suðurnesjamenn munuð taka vel
á móti þeim. Hlutur okkar hér á
svæðinu hefur verið mjög góður
á landsvísu og trúi ég því að svo
verði einnig í ár. Baukar munu
einnig standa í stofnunum og fyr-
irtækjum yfir söfnunartímann.
Suðurnesjamenn, berum um-
hyggju fyrir náunga okkar og
sýnum hana í verki!!
Þeir sem hafa áhuga á nánari
upplýsingum um ABC hjálpar-
starf eða vilja taka að sér styrkt-
arbarn vinsamlega hafið sam-
band við undirritaða eða skrif-
stofu ABC hjálparstarfs Sóltúni
3, Reykjavík sími: 561 6117.
Fyrir hönd ABC hjálparstarfs
Bestu kveðjur og fyrirfram þökk
fyrir stuðninginn.
María Magnúsdóttir Fulltrúi
ABC á Suðurnesjum.
VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003 I 15
30 BRL. SKIPSTJÓRNARNÁMSKEIÐ
PUNGAPRÓF
Börn hjálpa börnum 2003
Kvenfélag
Keflavíkur
Aðalfundur verður
haldinn 10.mars að
Smiðjuvöllum 8
kl.:20:30 athugið
breyttur fundartími
konur.
vf.is
9. tbl. 2003 - 24 hbb 26.2.2003 17:20 Page 15