Víkurfréttir - 27.02.2003, Qupperneq 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hagnaður Sparisjóðsins íKeflavík fyrir árið 2002nam 140,7 m.kr. króna
fyrir skatta samanborið við
130,6 m. kr. árið áður sem er
um 8% aukning á milli ára.
Hagnaður eftir skatta nam
117,6 m. kr. samanborið við
170,2 m. kr. árið áður. Arð-
semi eigin fjár var 6,75%.
Í rekstraráætlun fyrir árið 2003
er gert ráð fyrir sambærilegri
rekstrarafkomu. Vaxtatekjur
Sparisjóðsins námu á árinu
1.794 m.kr. og vaxtagjöld 1.040
m.kr. Hreinar vaxtatekjur námu
því 754,4 m.kr. samanborið við
602,3 m.kr. árið 2001. Vaxta-
munur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í
hlutfalli af meðalstöðu fjár-
magns var 4,04%. Aðrar rekstr-
artekjur voru 277,7 m.kr. á ár-
inu. Rekstrarkostnaður nam alls
752,5 m.kr. og jókst um 18%
frá fyrra ári. Beinn launakostn-
aður jókst um 12% en laun og
launatengd gjöld jukust um
24%. Annar almennur rekstrar-
kostnaður jókst um 12%.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall
af niðurstöðu efnahagsreiknings
var 3,97% en var 3,76% árið
áður. Kostnaðarhlutfall árið
2002 var 73% á móti 68,7 árið
áður. Framlag í afskriftareikn-
ing útlána var 138,8 m.kr. árið
2002 en var 159,9 m.kr. árið
áður. Sem hlutfall af niðurstöðu
efnahagsreiknings var framlagið
0,73% en var 0,94% árið áður.
Heildarinnlán í Sparisjóðnum í
árslok 2002 ásamt lántöku
námu um síðustu áramót 14.358
m.kr. og er aukningin því
20,4%. Útlán Sparisjóðsins
ásamt markaðsskuldabréfum
námu 15.600 m.kr. í árslok
2002 og höfðu aukist um 1.094
m.kr. eða um 7,5%. Í árslok var
niðurstöðutala efnahagsreikn-
ings 18.910 m.kr. og hafði hún
hækkað á árinu um 1.972 m.kr.
eða 12%. Eigið fé Sparisjóðsins
í árslok nam 1.813 m.kr. og hef-
ur eigið fé aukist um 71,4 m.kr.
eða 4,5%. Eiginfjárhlutfall
Sparisjóðsins samkvæmt CAD-
reglum er 10,54% en var
11,35% árið áður.Í lok árs var
stofnfé 600 m.kr. króna að nafn-
virði og voru stofnfjáraðilar 555
talsins.Við gerð þessa ársreikn-
ings er í meginatriðum fylgt
sömu reikningsskilaaðferðum
og árið áður að öðru leyti en því
að verðleiðréttingu reiknings-
skilanna hefur verið hætt.Spari-
sjóðurinn í Keflavík er alhliða
fjármálafyrirtæki sem hefur
starfað í 95 ár.
Sparisjóðurinn var stofnaður
1907 og byggir á traustum
grunni. Sparisjóðurinn rekur
fimm afgreiðslur sem starfrækt-
ar eru í Keflavík, Njarðvík,
Garði, Grindavík og Vogum en
höfuðstöðvar Sparisjóðsins eru í
Keflavík. Starfssemi Sparisjóðs-
ins er fjölbreytt og hann býður
uppá mismunandi vörur og
þjónustu sem henta breiðum
hópi viðskiptavina hans. Stöðu-
gildi í lok ársins voru 70,7.
Aðalfundur Sparisjóðsins í
Keflavík verður haldinn föstu-
daginn 14. mars n.k. Stjórn
sjóðsins leggur til að greiddur
verði 7% arður á uppreiknað
stofnfé. Auk þess sem nýttar
verði heimildir laga um endur-
mat og viðbótarendurmat þann-
ig að nafnávöxtun stofnfjár
verði 10,68%.
Hagnaður SPKEF eykst milli ára
Suðurgata 1, Keflavík.
Lítið og fallegt einbýli á 2
hæðum sem er mikið endurn.
Hagstæð lán áhvílandi.
8.800.000.-
Vallargata 14, Sandgerði.
89m2 íbúð á eh. í tvíbýli með
sér inng. 4 svefnherbergi. Sk. á
einbýli koma til greina. Eign í
góðu ástandi, frábært útsýni.
8.200.000,-
Brekkustígur 10, Sandgerði.
Gott 87m2 einbýli á 2 hæðum
sem gefur mikla möguleika.
Kjallari undir húsinu. Hagstæð
lán. Laust strax. 5.200.000.-
Garðbraut 51, Garði.
122m2 einbýli með 3 svefnh.
Mikið endurnýjað að innan og
utan. Skolp og miðst.lögn
nýleg. Heitur pottur á baklóð.
9.700.000.-
Kirkjuvegur 14, Keflavík.
104m2 íbúð á 2. hæð í fjölbýli.
Íbúð í góðu ástandi. Laus
fljótlega. 11.900.000.-
Mávabraut 11, Keflavík.
Endaíbúð á 2. hæð með 3
svefnh. 74m2 að stærð, nýir
gluggar. Laus strax. Hagstæð
lán áhvílandi. 7.300.000.-
Baldursgata 10, Keflavík.
Góð 90m2 3ja herb. íbúð á
neðri hæð með sérinngangi.
Hagstæð lán áhvílandi.
7.500.000.-
Vesturgata 44, Keflavík.
Gott 113m2 einbýli með risi
hægt að gera herb. 3 svefnh. og
25m2 bílskúr. Eign í góðu
ástandi, tölvert endunýjað.
13.100.000. -
Suðurgata 23, Keflavík.
130m2 parhús á 3 hæðum. Lítil
íbúð í kjallara með sérinngangi
sem hægt er að leigja út. Mikið
endurnýjað að innan. Bílskúr
32m2 Hagstæð lán. 10.700.000.-
Norðurvellir 58, Keflavík.
Gott 118m2 raðhús með 3
svefnh. og 36m2 bílskúr. Parket
og flísar á gólfum. Hagstæð lán
áhvílandi. Laust strax.
Tilboð
Faxabraut 2, Keflavík.
Ný standsett glæsileg 96m2 3ja
herbergja íbúð á 1. hæð með
sérinngangi. Laust strax.
9.600.000.-
Suðurgata 48, Keflavík.
120m2 parhús á 2 hæðum með 4
svefnh. og 23m2 bílskúr. Endur-
nýjað að innan, ný eldhúsinnr. og
tæki, neysluvatnslagnir endurn.,
skolplagnir nýlegar. 12.200.000.-
Faxabraut 34b, Keflavík.
50m2 íbúð í kjallara. 1 svefn-
herb. Íbúð í ágætu standi.
Búið að endurnýja skolplagnir.
4.400.000.-
Heiðarholt 22, Keflavík.
Einstaklingsíbúð á 1. hæð á
góðum stað. Hagstæð lán áhví-
landi. Laus strax.
6.100.000.-
9. tbl. 2003 - 24 hbb 26.2.2003 17:46 Page 22