Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.03.2004, Síða 12

Víkurfréttir - 11.03.2004, Síða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Verslunin Kaskó í Reykja-nesbæ fagnar 10 ára af-mæli um þessar mundir, en verslunin hefur frá upphafi verið skilgreind sem lágvöru- verðsverslun. Verslunarstjóri Kaskó er Stefán Guðjónsson en hann varð fyrst verslunar- stjóri 19 ára gamall. „Ég er í raun fæddur og uppalinn hjá Samkaupum, en ég byrjaði 12 ára gamall að hjálpa til í versluninni í Njarðvík. Ætli það megi ekki segja að ég sé með kaupmennskublóð í æðum,“ segir Stefán en faðir hans er framkvæmdastjóri Samkaupa h.f. og afi hans var kaupfélagsstjóri í Sandgerði. Stefán er viðskipta- og rekstrar- fræðingur að mennt, en hann stundaði nám við Viðskiptahá- skólann að Bifröst. Í viðtali við Víkurfréttir segir Stefán að frá upphafi hafi Suðurnesjamenn tekið Kaskó mjög vel og hefur verslun aukist verulega síðustu ár. Stefán segir að á dagskránni sé að opna fleiri Kaskó verslanir og þá á höfuðborgarsvæðinu, en tvær Kaskó verslanir eru nú reknar, ein í Reykjanesbæ og önnur í Breiðholti. Kanntu vel við þetta? Já, þetta er það skemmtilegasta sem ég geri, er í senn líflegt og áhugavert starf með öllum sínum uppákomum. Hvað er það sem gerir starfið svona skemmtilegt? Það eru náttúrulega samskiptin við viðskiptavinina sem eru mjög gefandi, að þjóna þeim og hlusta á óskir þeirra og reyna að upp- fylla þær. Þarna er snertiflöturinn við neyslu fólksins og magn vöru sem kemur og fer í gegnum okk- ar hendur er gífurlega mikið. Þetta er bara líf og fjör frá kl 7 á morgnana fram á kvöld flesta daga vikunnar. Hvernig hefur verslunin gengið á þessum 10 árum? Kaskó var sett á laggirnar 1994 á þeim tíma þegar lágvöruverslanir voru að ryðja sér til rúms á Ís- landi. Undirtektirnar voru strax mjög góðar og ástæðan fyrir því að Kaskó hefur vegnað svo vel í 10 ár, eru góðar undirtektir Suð- urnesjamanna við því sem við höfum verið að gera. Búðin hefur vaxið mikið frá stofnun. Til að byrja með var gólfflötur verslun- arinnar um 400 fermetrar, en er í dag um 800 fermetrar. Hvað starfa margir í Kaskó ? Í Kaskó starfa um 14 starfsmenn, sumir í föstu starfi og aðrir í aukavinnu eða hlutastarfi. Þar kemur saman öflugt fólk með mikinn metnað. Hópurinn er samstilltur og er það án efa lykil- þáttur í gengi Kaskó. En hvað með vöruúrvalið? Vöruúrval lágvöruverðsverslana hefur verið að breytast og vænt- ingar viðskiptavina eru orðnar meiri en þær voru. Viðskiptavinir vilja meiri þjónustu og meira vöruúrval og að sama skapi að vöruverð haldist lágt. Lágvöru- verðsverslanir eru að verða mjög flottar verslanir, en þær ná samt aldrei því stigi sem er í þjónustu- verslununum hvað varðar þjón- ustu kjötborða, fatnað og ýmis- konar sérvöru. Er bara boðið upp á nauðsynja- vörur í Kaskó? Við bjóðum upp á rjómann af því úrvali sem fæst í hverjum vöru- flokki fyrir sig. Það eru náttúru- lega vissir vöruflokkar sem ekki er hægt að sinna eins og þjón- ustuverslanir gera, við reynum að uppfylla 95% af dagvöruþörf viðskiptavina. Ef við tökum t.d. grænmetið þá eru flestar lág- vöruverðsverslanir aðeins að bjóða upp hluta af því úrvali sem fæst í bestu þjónustuverslun- um. Hver er galdurinn við að halda vöruverði niðri? Það byggist náttúrulega fyrst og fremst á því að halda kostnaði niðri og þar kemur þjónustustigið helst inn sem er lægra í lágvöru- verðsverslununum. Boðið er upp á stærri pakkningar og meira magn er keypt í einu. Hvernig hefur verið að fást við aukna samkeppni á svæðinu? Við fundum fyrir því þegar nýr aðili kom inn á markaðinn á Suð- urnesjum á lágvöruverðssviði. En eftir að nýjabrumið fór af þeirri verslun þá jókst verslun hjá Kaskó aftur og salan verið stöðugt vaxandi. Fylgist þið vel með verðum í Bónus? Já, við gerum verðkönnun reglu- lega og teljum okkur vera á svip- uðum verðum, stundum aðeins lægri og í öðrum tilfellum örlítið hærri. Við stöndum þó ekki vakt í verslunum keppinauta, fylgj- umst ekki með hverri hreyfingu þar daglega og auglýsum okkur ekki á bílastæðum við anddyri verslana þeirra. Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér í rekstri lágvöruverðsversl- ana? Ég sé ákveðin hættumerki, því eins og allir vita er einn aðili orð- inn mjög stór á markaðnum og klárlega með markaðsráðandi stöðu. Það má deila um það hvað þessi þróun má ganga langt. Ég tel að íslenskir neytendur vilji heilbrigða og eðlilega sam- keppni, byggða á meira jafnræði með aðilum en nú er. Ég held að þróunin verði áfram sú að lág- vöruverðsverslanir færist nær þjónustuverslunum, haldi áfram að bæta þjónustu og vöruval. En hvernig sérðu framtíð Kaskó fyrir þér? Kaskó ætlar að fjölga verslunum á næstunni og horfir í því sam- bandi til Reykjavíkursvæðisins. Við finnum fyrir eftirspurn bæði utan af landi og úr Reykjavík. -verslunarstjórinn með kaupmennskuna í blóðinu. ➤ L Á G V Ö R U V E R Ð S V E R S L U N I N K A S K Ó 1 0 Á R A Verslun eykst í Kaskó VF -M YN D: JÓ H AN N ES K R. K RI ST JÁ N SS O N 11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:13 Page 12

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.