Víkurfréttir - 11.03.2004, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Verslunin Kaskó í Reykja-nesbæ fagnar 10 ára af-mæli um þessar mundir,
en verslunin hefur frá upphafi
verið skilgreind sem lágvöru-
verðsverslun. Verslunarstjóri
Kaskó er Stefán Guðjónsson
en hann varð fyrst verslunar-
stjóri 19 ára gamall. „Ég er í
raun fæddur og uppalinn hjá
Samkaupum, en ég byrjaði 12
ára gamall að hjálpa til í
versluninni í Njarðvík. Ætli
það megi ekki segja að ég sé
með kaupmennskublóð í
æðum,“ segir Stefán en faðir
hans er framkvæmdastjóri
Samkaupa h.f. og afi hans var
kaupfélagsstjóri í Sandgerði.
Stefán er viðskipta- og rekstrar-
fræðingur að mennt, en hann
stundaði nám við Viðskiptahá-
skólann að Bifröst. Í viðtali við
Víkurfréttir segir Stefán að frá
upphafi hafi Suðurnesjamenn
tekið Kaskó mjög vel og hefur
verslun aukist verulega síðustu
ár. Stefán segir að á dagskránni
sé að opna fleiri Kaskó verslanir
og þá á höfuðborgarsvæðinu, en
tvær Kaskó verslanir eru nú
reknar, ein í Reykjanesbæ og
önnur í Breiðholti.
Kanntu vel við þetta?
Já, þetta er það skemmtilegasta
sem ég geri, er í senn líflegt og
áhugavert starf með öllum sínum
uppákomum.
Hvað er það sem gerir starfið
svona skemmtilegt?
Það eru náttúrulega samskiptin
við viðskiptavinina sem eru mjög
gefandi, að þjóna þeim og hlusta
á óskir þeirra og reyna að upp-
fylla þær. Þarna er snertiflöturinn
við neyslu fólksins og magn vöru
sem kemur og fer í gegnum okk-
ar hendur er gífurlega mikið.
Þetta er bara líf og fjör frá kl 7 á
morgnana fram á kvöld flesta
daga vikunnar.
Hvernig hefur verslunin gengið
á þessum 10 árum?
Kaskó var sett á laggirnar 1994 á
þeim tíma þegar lágvöruverslanir
voru að ryðja sér til rúms á Ís-
landi. Undirtektirnar voru strax
mjög góðar og ástæðan fyrir því
að Kaskó hefur vegnað svo vel í
10 ár, eru góðar undirtektir Suð-
urnesjamanna við því sem við
höfum verið að gera. Búðin hefur
vaxið mikið frá stofnun. Til að
byrja með var gólfflötur verslun-
arinnar um 400 fermetrar, en er í
dag um 800 fermetrar.
Hvað starfa margir í Kaskó ?
Í Kaskó starfa um 14 starfsmenn,
sumir í föstu starfi og aðrir í
aukavinnu eða hlutastarfi. Þar
kemur saman öflugt fólk með
mikinn metnað. Hópurinn er
samstilltur og er það án efa lykil-
þáttur í gengi Kaskó.
En hvað með vöruúrvalið?
Vöruúrval lágvöruverðsverslana
hefur verið að breytast og vænt-
ingar viðskiptavina eru orðnar
meiri en þær voru. Viðskiptavinir
vilja meiri þjónustu og meira
vöruúrval og að sama skapi að
vöruverð haldist lágt. Lágvöru-
verðsverslanir eru að verða mjög
flottar verslanir, en þær ná samt
aldrei því stigi sem er í þjónustu-
verslununum hvað varðar þjón-
ustu kjötborða, fatnað og ýmis-
konar sérvöru.
Er bara boðið upp á nauðsynja-
vörur í Kaskó?
Við bjóðum upp á rjómann af því
úrvali sem fæst í hverjum vöru-
flokki fyrir sig. Það eru náttúru-
lega vissir vöruflokkar sem ekki
er hægt að sinna eins og þjón-
ustuverslanir gera, við reynum að
uppfylla 95% af dagvöruþörf
viðskiptavina. Ef við tökum t.d.
grænmetið þá eru flestar lág-
vöruverðsverslanir aðeins að
bjóða upp hluta af því úrvali
sem fæst í bestu þjónustuverslun-
um.
Hver er galdurinn við að halda
vöruverði niðri?
Það byggist náttúrulega fyrst og
fremst á því að halda kostnaði
niðri og þar kemur þjónustustigið
helst inn sem er lægra í lágvöru-
verðsverslununum. Boðið er upp
á stærri pakkningar og meira
magn er keypt í einu.
Hvernig hefur verið að fást við
aukna samkeppni á svæðinu?
Við fundum fyrir því þegar nýr
aðili kom inn á markaðinn á Suð-
urnesjum á lágvöruverðssviði.
En eftir að nýjabrumið fór af
þeirri verslun þá jókst verslun hjá
Kaskó aftur og salan verið
stöðugt vaxandi.
Fylgist þið vel með verðum í
Bónus?
Já, við gerum verðkönnun reglu-
lega og teljum okkur vera á svip-
uðum verðum, stundum aðeins
lægri og í öðrum tilfellum örlítið
hærri. Við stöndum þó ekki vakt
í verslunum keppinauta, fylgj-
umst ekki með hverri hreyfingu
þar daglega og auglýsum okkur
ekki á bílastæðum við anddyri
verslana þeirra.
Hvernig sérðu framtíðina fyrir
þér í rekstri lágvöruverðsversl-
ana?
Ég sé ákveðin hættumerki, því
eins og allir vita er einn aðili orð-
inn mjög stór á markaðnum og
klárlega með markaðsráðandi
stöðu. Það má deila um það hvað
þessi þróun má ganga langt. Ég
tel að íslenskir neytendur vilji
heilbrigða og eðlilega sam-
keppni, byggða á meira jafnræði
með aðilum en nú er. Ég held að
þróunin verði áfram sú að lág-
vöruverðsverslanir færist nær
þjónustuverslunum, haldi áfram
að bæta þjónustu og vöruval.
En hvernig sérðu framtíð Kaskó
fyrir þér?
Kaskó ætlar að fjölga verslunum
á næstunni og horfir í því sam-
bandi til Reykjavíkursvæðisins.
Við finnum fyrir eftirspurn bæði
utan af landi og úr Reykjavík.
-verslunarstjórinn með kaupmennskuna í blóðinu.
➤ L Á G V Ö R U V E R Ð S V E R S L U N I N K A S K Ó 1 0 Á R A
Verslun eykst í Kaskó
VF
-M
YN
D:
JÓ
H
AN
N
ES
K
R.
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:13 Page 12