Víkurfréttir - 11.03.2004, Page 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
■ INTERSPORT-DEILDIN OG 1. DEILD KVENNA Í KÖRFUKNATTLEIK
■KEFLAVÍKURSTÚLKUR DEILDARMEISTARAR Í KÖRFUKNATTLEIK KVENNA
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712
sport@vf.is
Úrslitakeppni Intersport deildar-innar hefst í kvöld og má segja aðballið sé byrjað fyrir alvöru. Suð-
urnesjaliðin þrjú eru að sjálfsögðu í 8-
liða úrslitunum, en þar kljást Grindvík-
ingar við KR, Keflavík við Tindastól og
Njarðvík við Hauka.
Leikir Grindvíkinga og Njarðvíkinga
verða á morgun, á sunnudag og þriðju-
dag, en Keflavík leikur í kvöld, á laug-
ardag og þriðjudag. Öll liðin leika fyrsta
leikinn á heimavelli.
KEFLAVÍK-TINDASTÓLL
Keflvíkingar mæta Tindastóli í fyrsta leik
liðanna í 8-liða úrslitunum í kvöld. Þeir
hefðu eflaust viljað aðra andstæðinga þar
sem þeir töpuðu illa fyrir þeim þegar þeir
mættust síðast á Sauðárkrók.
Engu að síður eru Keflvíkingar með um-
talsvert sterkari mannskap sem hefur sýnt
hvað í þeim býr í öllum keppnum vetrar-
ins. Þeir gáfu ekki tommu eftir gegn stór-
um evrópskum liðum, en áttu líka til að
falla gersamlega niður í meðalmennsku
gegn liðum sem voru fyrirfram talin veik-
ari, þannig að augljóst er að rétt hugarfar
verður að vera til staðar fyrir leikina.
Falur Harðarson, annar þjálfara Keflvík-
inga, segir rimmuna leggjast vel í sig. „Nú
eru úrslitin að fara í gang og þessu bíða
menn eftir allan veturinn. Við gerðum
útum allar okkar vonir um deildarmeist-
aratitil með því að tapa illa á Króknum um
daginn og ætlum nú að sýna okkar rétta
andlit.“
GRINDAVÍK-KR
Grindvíkingar mæta KR á heimavelli sín-
um á morgun. Grindvíkingar unnu báðar
viðureignir liðanna í vetur og verða að telj-
ast líklegir til að komst áfram úr þessu ein-
vígi. Framan af tímabili virtust Grindvík-
ingar vera algerlega óstöðvandi, en lentu
svo í lægð eftir áramót. Ef nýju erlendu
leikmennirnir ná að blómstra ættu læri-
sveinar Friðriks Inga að ná að rétta úr
kútnum og gera harða atlögu að titlinum.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvík-
inga segir að nú sé komið að skemmtileg-
asta tíma vetrarins sem allir bíði eftir í of-
væni. „Þetta leggst ljómandi vel í mig.
Þetta eru allt þannig lið í úrslitakeppninni
að ekki er á vísan að róa með sigur. KR er
sterkt lið með þrjá góða útlendinga og
nokkra íslenska landsliðsmenn þannig að
þetta verða hörkuleikir. Ég vona líka að
allir sem koma nálægt körfuboltanum snúi
bökum saman til að fá sem flesta áhorf-
endur á leiki.“
NJARÐVÍK-HAUKAR
Njarðvíkingar mæta Haukum í fyrsta leik
liðanna í úrslitakeppninni á morgun.
Njarðvíkingar áttu ekki í miklum erfið-
leikum með Hafnfirðingana í fyrri viður-
eignum þeirra í vetur og hafa síðan bætt
við sig bandarískum leikmanni að nafni
Will Chavis. Sá mun eflaust koma til með
að styrkja Njarðvíkinga nokkuð, en Hauk-
ar eru hins vegar sýnd veiði en ekki gefin
eins og kom í ljós þegar þeir unnu góðan
sigur á Keflvíkingum í síðustu umferð
deildarkeppninnar.
Friðrik Ragnarsson þjálfari segist lítast vel
á átökin. „Ég er bara bjartsýnn fyrir þetta.
Það er búinn að vera uppgangur í okkar
liði að undanförnu og við höfum haft góð
tök á Haukum í vetur. Núna er hins vegar
meira í húfi og við eigum eftir að þurfa að
hafa fyrir hlutunum, enda eru Haukar með
ágætt lið. Það má segja að það sé lykilat-
riði fyrir okkur að Frikki nái góðum tök-
um á Manciel, og yfirhöfuð enda er hann
gríðarlega mikilvægur fyrir okkur.“
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK
Mikill Suðurnesjaslagur verður í undanúr-
slitum Íslandsmóts kvenna þegar deildar-
meistarar Keflvíkinga mæta Grindvíking-
um til að skera úr um það hvort liðið kom-
ist í úrslitarimmuna.
Keflvíkingar hafa verið í algerum sér-
flokki eftir áramót þar sem þær hafa unnið
alla sína leiki og hafa unnið alla titla sem
hafa verið í boði í vetur. Grindvíkingar
hafa hins vegar verið á stöðugri uppleið í
sínu spili og voru ekki fjarri því að leggja
Keflvíkinga að velli í síðasta leik liðanna.
Enginn vafi leikur þó á því að bæði liðin
verða að mæta til leiks tilbúnar að berjast
til síðasta manns því að nú skiptir hver
leikur máli og ekkert má útaf bera.
Pétur Guðmundsson, þjálfari Grindvík-
inga, segir sínar stúlkur hvergi smeykar
fyrir átökin. „Við ætlum að sýna Keflvík-
ingum að við getum staðið í þeim. Við
höfum verið að treysta mikið á KeKe að
undanförnu, en í síðustu leikjum hafa
yngri stelpurnar eins og Ólöf verið að
koma sterkar inn auk þess sem Sólveig
hefur verið jöfn í allan vetur. En ef við
hugsum um okkar leik í vörn og sókn þá
þurfum við ekki að hafa áhyggjur af leik-
mönnum Keflvíkinga.“
Hjörtur Harðarson hjá Keflavík segir sínar
stúlkur staðráðnar í að slá ekki slöku við
eftir velgengnina í vetur. „Við erum búnar
að vinna 16 leiki í röð og ætlum bara að
halda áfram. Við þurfum að hægja á Kan-
anum þeirra og vonum að hinar stelpurnar
eigi ekki góðan leik. Grindvíkingar eiga
fleiri góðar stelpur og eru betri en fjórða
sætið segir til um en breiddin hjá okkur er
það mikil að það er erfitt að ráða við okk-
ur.“
Leikir liðanna verða á mánudag, miðviku-
dag og á föstudag ef þarf að grípa til odda-
leiks.
Keflvíkingar fengu afhentverðlaunin fyrir deildar-meistaratitil kvenna á
mánudaginn eftir sigurleik
þeirra gegn Njarðvík, en þetta
var í áttunda sinn sem þær
vinna þennan titil. Stúlkurnar
eru vel að þessum verðlaunum
komnar þar sem þær hafa sýnt
mikla yfirburði í vetur, sérstak-
lega eftir áramót þar sem þær
unnu alla sína leiki. Ekkert
annað lið í deildinni hefur á
öðrum eins mannskap að skipa
og má segja að það eina sem
gæti stöðvað þær héðan í frá er
vanmat á andstæðingum og
kæruleysi sem þær gerðu sig
stundum sekar um í upphafi
tímabils.
Hjörtur Harðarson hefur gert
góða hluti með liðið á sínu fyrsta
ári sem þjálfari þeirra og var að
vonum ánægður með nýjustu
bikarana í safnið, en sagði þær
hvergi hættar. „Það er ennþá einn
titill eftir enn og það er sá stærsti
og við hættum ekki fyrr en hann
er kominn líka.“
Fyrirliði liðsins, Erla Þorsteins-
dóttir tók í sama streng og bætti
við að þótt þeim þætti alltaf jafn
gaman að vinna titla yrði að hafa
fyrir þeim. „Úrslitakeppnin verð-
ur pottþétt hörkuspennandi. Þetta
er bara ný keppni þar sem fyrri
úrslit skipta ekki neinu.“
ÚRSLITAKEPPNIN HEFST Í KVÖLD
ENN EINN BIKARINN Á LOFT
VF
-M
YN
D:
H
IL
M
AR
B
RA
GI
B
ÁR
ÐA
RS
O
N
11. tbl. 2004 umbrot 10.3.2004 15:20 Page 22