Víkurfréttir - 07.07.2004, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR I 28. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 8. JÚLÍ 2004 I 9
Þann 7. júlí varð TómasTómasson vinur minn 80ára.
Um leið og ég óska honum til
hamingju með áfangann vil ég
þakka honum og Hædý konu hans
frábær kynni og einlæga vináttu
við mig og mína í áratugi. Kynni
mín af Tómasi hófust við störf í
bæjarstjórn Keflavíkur 1954, en þá
var ég varamaður, áður hafði ég
rétt kannast við hann, sá hann þeg-
ar þau voru að heimsækja móðir
hans á Ásabrautina.
Ég man líka að okkur Suðurnesja-
mönnum þótti mikið til koma þeg-
ar Tómas komst í fréttir fyrir frá-
bæran árangur við stúdentspróf, að einhver af Suð-
urnesjum réðist í það að læra til stútents var frétt og
árangur Tómasar var toppur á fréttina. Við vorum á
öndverðum með í pólitíkinni, en það kom ekki í veg
fyrir að við ættum gott með að vinna saman.
Með stuttum hléum vorum við saman í bæjarstjórn
til ársins 1986, höfðum þá báðir verið í bæjarstjórn
Keflavíkur í 24 ár.
Þegar Tómas kom í bæjarstjórn eftir 8 ára hlé 1968
var hann kjörinn forseti bæjarstjórnar og var það til
1986, oftast kosinn einróma. Það segir nokkuð um
störf hans.
Þótt ég væri öll þessi ár í minni-
hlutanum og lengi í forystu hans,
varð samstarf okkar og vinátta
traustari með hverju árinu sem leið.
Okkur greindi á með köflum en
við lærðum að meta skoðanir hvers
annars og ekki man ég að okkur
greindi á þegar um stærri mál var
að ræða.
Tómas er mikill gæfumaður í
einkalífi sínu, enda vart við öðru
að búast með slíkan öðling.
Störf hans voru margvísleg um
dagana allt frá því að vera sendill
með meiru hjá Flugfélaginu í bern-
sku flugsins til þess að vera spari-
sjóðsstjóri, en við það starfaði hann
lengst eða í um aldarfjórðung.
Tómas var alltaf og allstaðar virtur og vinsæll af
þeim sem hann starfaði með eða fyrir. Velvilji og
lipurð einkenndu öll hans störf og gera það enn hvar
sem hann kemur.
Síðustu ár hefir Tómas kennt krankleika, í þeirri
baráttu sem öðru hefir Hædý stutt hann og styrkt.
Góði vinur, fyrir mig og mína árna ég þér og allri
þinni fjölskyldu blessunar og heilla um ókomin ár,
sem ég vona að verði sem flest og við góða heilsu.
Lifið heil.
Ólafur Björnsson
I celandair gaf fyrir helgiHerði Helgasyni, föðurHelga Einars Harðarsson-
ar hjartaþega fjóra flugmiða til
Kaupmannahafnar.
Hörður hélt til Kaupmannahafn-
ar um helgina ásamt bróður
Helga, mágkonu og dóttur þeirra.
Þar munu þau heimsækja Helga
Einar á Sahlgrenska sjúkrahúsið
í Gautaborg, en Helgi gekkst ný-
verið undir hjartaskipti í annað
sinn og hefur hann náð ótrúleg-
um bata á stuttum tíma. Hann er
fyrsti íslendingurinn sem gengst
undir hjartaskipti í annað sinn.
Ármann Harðarson bróðir Helga
tók við flugmiðunum fyrir hönd
föður síns.
➤ Fjölskyldan heimsækir Helga til Gautaborgar:
Þorbjörg Björnsdóttir yfirmaður söluskrifstofu Icelandair á Loftleiðum afhenti
Ármanni Harðarsyni flugmiðana fjóra á aðalskrifstofu Icelandair fyrir helgi.
Icelandair gaf flugmiðaH
elgi Einar Harðar-
son hjartaþegi
braggast vel á Sa-
hlgrenska sjúkrahúsinu í
Gautaborg. Á mánudag
voru tekin 8 sýni úr hjarta
Helga og var niðurstaðan
úr þeirri sýnatöku mjög
jákvæð. Næstu daga verð-
ur tekin ákvörðun um
hvort Helgi verði útskrif-
aður af sjúkrahúsinu.
„Þegar ég verð útskrifaður
verð ég tíður gestur á göngu-
deildinni. Annars líður mér
mjög vel og finn varla fyrir
hjartaskurðinum. Það eru
smá bólgur við nýrnaskurð-
inn en læknarnir segja að
það sé eðlilegt,“ sagði Helgi
í samtali við Víkurfréttir.
Læknar á sjúkrahúsinu eru
undrandi á hröðum bata
Helga Einars en tiltölulega
fáir gangast undir hjartaað-
gerðir í annað sinn á hverju
ári. Helgi Einar vill koma á
framfæri þakklæti til
Icelandair og þá sérstaklega
Sigurðar Helgasonar for-
stjóra félagsins og eiginkonu
hans, en þau höfðu milli-
göngu um að útvega fjöl-
skyldu Helga Einars flug-
miða til Gautaborgar.
Helga Einari líður vel á sjúkrahúsinu
Auglýsingasíminn
421 0000
Tómas Tómasson áttræður
28. tbl. 2004 - 24Stefan7 7.7.2004 12:49 Page 9