Víkurfréttir - 20.04.2005, Page 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Tónleikar:
Féll af bifhjóli
Kvöld eitt í síðustu viku féll
ökumaður bifhjóls af hjóli
sínu þar sem hann ók í Kefla-
vík. Hafði hann verið að nálg-
ast gatnamót þegar bifreið
var ekið í veg fyrir hann.
Ökumaður bifhjólsins snögg-
hemlaði með fyrrgreindum
afleiðingum. Var hann fluttur
með sjúkrabif reið á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja en
hann fann til eymsla í fótum
og baki.
Sprenging í raf-
magnsinntaki
Á fimmtudag voru lögregla
og slökkvilið send að íbúðar-
húsi við Smáratún í Keflavík.
Var eldur laus í húsinu en í
ljós kom að sprenging hafði
orðið í rafmagnsinntaki. Til
allrar lukku voru skemmdir
minniháttar.
Skömmu áður eða kl. 11:56
var tilkynnt um minniháttar
árekstur tveggja bifreiða á
mótum Hafnargötu og Flug-
vallarvegar í Reykjanesbæ.
Brunavarnir Suðurnesja tóku á föstudag nýtt hús í notkun, en það er sér-
hannað til æfinga á verkþáttum
slökkviliða. Húsið er staðsett
hjá gömlu sorpeyðingarstöð-
inni ofan við Hafnarveg.
Formleg vígsluathöfn byrjaði
með því að formaður stjórnar
BS, Sigurvin Guðfinnsson, bauð
gesti velkomna og rakti aðdrag-
anda ferils þessa framtaks. Þá
blessaði séra
Baldur Rafn
starfsemi BS
og þá starf-
s e m i s e m
fyrirhuguð
er í húsinu.
Í máli sínu
hafði Baldur
orð á því að
það væri ein-
kennileg og sérstök tilhugsun
að vígja nýtt hús sem síðan ætti
að kveikja í, en þetta væri eðli
starfsemi hússins og slökkviliðs-
mönnum til mikilla framfara.
Að því loknu rakti Sigmundur
Eyþórsson slökkviliðsstjóri BS,
forsögu málsins og þakkaði
þeim sem að málinu komu.
Brunamálastjóri, dr. Björn Karls-
son sagði í máli sínu að þeir hjá
Brunamálastofnun hefðu hug á
því að koma að þessari uppbygg-
ingu á svæðinu og vænti þess að
fleiri slökkvilið á landinu, ásamt
starfsemi Brunamálaskólans,
myndu nýta sér húsið og svæðið
til æfinga. Björn sagði að fyrir-
hugað væri að stofnunin styrkti
slökkvilið landshlutanna til upp-
bygginga á æfingasvæðum til
að styrkja samstarf slökkviliða
og efla einingar í landshlutum.
Björn sagði þetta mik inn
styrk og framtak Brunavarna
Suðurnesja og þakkaði góðan
hug og vilja sveitarfélaganna.
Framtíðin á svo eftir að leiða í
ljós hvort þetta verður megin
æfingasvæðið fyrir slökkviliðin
á Suður- og Suðvesturlandi eða
jafnvel fyrir allt landið.
Húsið er smíðað af forskrift
Brunavarna Suðurnesja og ann-
aðist þúsundþjalasmiðurinn
Freymóður
J e n s s o n ,
e i g a n d i
vél smiðju
He l l e s i n ,
smíðina.
Vi ð s a m a
t æ k i f æ r i
var tekin í
notkun ný
hitamynda-
vél sem er bylting í starfi reykka-
fara. Vélin er fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi. Slökkvilið
BS hefur undanfarið ár verið að
kynna sér hitamyndavélar til að
nota við erfiðar aðstæður t.d. í
reykköfun. Slíkur myndbúnaður
byggir á næmni á útfjólubláum
geislum þ.e. að skynja misjafnt
hitastig í efnum. Þessi tækni
getur verið gagnleg reykköf-
urum við að finna fórnarlömb
við erfiðar aðstæður sem og
hvar eldur er í byggingunni t.d.
í lokuðu rými s.s. inn í vegg á
milli þilja. Menn eru sammála
um ágæti og mikið notagildi
myndvélarinnar. Myndavélin
mun sannarlega auka lífsmögu-
leika fórnarlamba og slökkviliðs-
manna við erfiðar aðstæður og
auka öryggi í leit.
Bylting í aðstöðu Brunavarna Suðurnesja
Aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum var hald inn í Sel inu
Reykjanesbæ laugardaginn 16.
apríl 2005. Fundurinn var vel
sóttur.
Gestir fundarins voru: Ólafur
Ólafsson fyrrverandi formaður
Félags eldri borgara í Reykja-
vík, sem talaði um launamál
aldraðra og samskipti við ríkis-
valdið.
Þá fjallaði Sigrún Þorsteinsdóttir
frá Slysavarnarfélaginu Lands-
björg, um slysavarnir fyrir eldri
borgara.
Mikill kraftur er í starf semi
félagsins og fjölgaði félags-
mönnum um 130 á árinu og
eru nú 986.
Aðalstjórn félagsins var öll end-
urkjörin.
Í lok fundarins voru samþykktar
ályktanir og áskoranir um mál-
efni aldraðra.
Aðalfundur Félags eldri borgara 2005
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. efnir til forvals verktaka fyrir lokað útboð vegna stækkunar og breytinga í svokall-aðri norðurbyggingu flugstöðvarinnar (sem er hin upp-
runalega flugstöð).
Flugstöðvarbyggingin verður stækkuð til suðurs um 5.000 fer-
metra og skipulagi á 2. hæð verður jafnframt breytt svo mikið að
líkja má við umbyltingu. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist í júní
næstkomandi og því ljúki 1. júní 2006. Áætlaður framkvæmda-
kostnaður er 4,5 milljarðar króna.
Upphaflega var gert ráð fyrir því að hefja þessar framkvæmdir
ekki fyrr en í haust og að ljúka þeim veturinn 2006/2007. Veruleg
fjölgun farþega á Keflavíkurflugvelli gerir það aðkallandi að flýta
framkvæmdum verulega, en gert er ráð fyrir að ný og breytt flug-
stöð verði tekin í gagnið áður en annatími sumarsins 2006 hefst.
í stækkun á Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í
síðasta blaði að sigurvegari
Stóru Upplestrarkeppninnar
á S u ð u r n e s j u m , E l í s a
Sveinsdóttir, var sögð frá
Holtaskóla. Hún er hins vegar
úr Heiðarskóla og eru hún
og aðrir viðkomandi beðnir
afsökunar.
4,5 milljarðar