Víkurfréttir - 20.04.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
Grunnskóli Grindavíkur hefur vakið athygli und-anfarin misseri fyrir
gott starf.
Árangur nemenda hefur farið
vaxandi og almenn ánægja ríkt
með skólastarfið. Í vetur hefur
starfsfólk annara skóla, sérstak-
lega kennarar og skólastjórn-
endur, heimsótt skólann til þess
að kynna sér starf og stefnu skól-
ans.
„Já, það er rétt, hingað hefur
komið starfsfólk annarra skóla
í heimsókn til þess að kynna sér
hvað við erum að gera. Okkur
hefur gengið vel að undanförnu
og andinn í skólanum er góður.
Á þessu skólaári höf um við
unnið að því að tileinka okkur
ákveðna hugmyndafræði, upp-
byggingastefnuna, eða uppeldi
til ábyrgðar. Þessi stefna miðar
að því að efla sjálfsstjórn og sjálf-
saga. Henni er ætlað að kenna
nem end um að taka ábyrgð
á eigin orðum og gerðum og
leggja rækt við þau lífsgildi
sem samfélagið hefur sett sér.
Við teljum að nú þegar sé þessi
vinna farin að skila sér í skóla-
starf inu,“ sagði Gunnlaugur
Dan Ólafsson skólastjóri.
Foreldrafélag Grunnskólans
mun mánudaginn 25. apríl kl.
20.00 standa fyrir kynningu á
uppbyggingarstefnunni fyrir for-
eldra. Þar mun Páll Ólafsson frá
Félagsþjónustu Hafnarfjarðar
kynna þessa hugmyndafræði.
Páll gerir þetta á mjög sérstakan
og áhugaverðan hátt og eins og
Grindvíkingum er von og vísa
munu þeir eflaust fjölmenna til
hlýða á þennan áhugaverða fyr-
irlestur.
„Uppeldi til ábyrgðar”
í Grunnskóla Grindavíkur
Handverkshúsið og galleríð Sjólist opn-aði á nýjum stað á fimmtudaginn var. Fjöldi gesta var viðstaddur til að sam-
gleðjast eigendunum Lindu Oddsdóttur og
Sigmari Eðvarðssyni.
Sjólist var áður til húsa að Víkurbraut 1 en hefur
nú flutt í ný húsakynni Hópsness ehf. á 2 hæð
að Verbraut 3. Linda sagði í samtali við blaðið
að stefnt væri að því að hafa handverkshúsið
opið 2-3 daga í viku og getur listafólk þá komið
og unnið í leir eða málað. “Við höfum hér mjög
góða aðstöðu til að vinna með leir og salurinn
er bjartur og rúmgóður. Miðað við viðtökur
fólks lofar þetta góðu. Galleríið verður opið dag-
lega hjá okkur til kl. 17 00 og hægt er að finna
allar upplýsingar á heimasíðunni okkar, sjolist.
is.”sagði Linda glöð í bragði.
Í máli Eðvards Júlíussonar eiganda Hópsness
ehf. kom fram að í fyrstu hafi einungis staðið til
að lagfæra leka á þaki húsnæðisins en það hafi
undið upp á sig og raunin orðið önnur. Komin
væri fyrsta flokks sýningarsalur og aðstaða sem
býður upp á mikla möguleika og gott útsýni
væri til sjávar og sveita. Það er ekki ónýtt þegar
menn laga þakleka með þessum hætti.
Flest ir Grind vík ing ar gera lítið annað en að snúa sér í hringi og klóra
sér í hausnum þegar þeir fara
í inn kaupa ferð í Sam kaup
þessa dagana vegna breytinga
sem þar standa yfir. Eins og
greint hefur verið frá hér í Vík-
urfréttum mun Samkaup hf.
opna Nettó verslun í Grindavík
og hafa stórfelldar breytingar
átt sér stað undanfarna daga í
versluninni.
Samkaup hefur verið eina mat-
vörverslun Grindvíkinga til
margra ára og geta sumir við-
skiptavinir gengið nánast blind-
andi um verslunina. Starfsfólkið
hefur haft í nógu að snúast við
að liðsinna fólki sem ekki hefur
fundið þær vörur sem það leitar
að. Sólveig Óladóttir verslun-
arstjóri sagði að viðskiptavinir
verslunarinnar tækju þessum
breytingum af mestu rósemd og
að sjálfsögðu væru allir ánægðir
með að vöruverð muni lækka.
Sólveig sagði að viðskiptavinir
væru ánægðir með að verslunin
skuli aðeins loka í tvo daga og
bæði starfsfólk og viðskiptavinir
hlakka mikið til þegar Nettó
opnar á föstudaginn.
Grindvíkingar í vandræðum
með að finna vörurnar sínar
Sjólist opnar að nýju
Sjóðheitt Tímarit
Víkurfrétta fæst á næsta
blaðsölustað tvf