Víkurfréttir - 20.04.2005, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Petr únella Skúla dótt ir, nýkjör in Fegurðardrottning Suðurnesja fæddist 1. ágúst 1985 og er Grindavíkurmær.
Petrúnella stundar nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og hefur æft körfuknattleik frá
unga aldri og spilaði fyrst með Grindavík í
meistaraflokk árið 2000. Síðasta ár færði hún
sig um set og spilaði með Njarðvík í 1. deild
kvenna. Kærasti Petrúnellu er Guðmundur
Jónsson leikmaður bikarmeistara Njarðvíkur
í körfuknattleik.
Foreldrar Petrúnellu eru Skúli Eyfeld Harðarson
og Bryndís Hauksdóttir og á hún tvær systur,
Hrund Skúladóttur og Sigurbjörg Eyfeld Skúla-
dóttur.
Petrúnella segir Fegurðarsamkeppnina hafa
verið virkilega skemmtilegt tímabil og var mjög
ánægð með hópinn sem tók þátt í ár. Hún seg-
ist ekki hafa verið stressuð á lokakvöldinu. „Ég
fann fyrir litlu stressi í keppninni sjálfri. Það var
meira stress í general prufunni því þá æfðum
við í fyrsta skipti á sviðinu sjálfu,“ sagði Petr-
únella sem bjóst alls ekki við því að standa uppi
sem Fegurðardrottning Suðurnesja. „Ég bjóst
engan vegin við að hreppa 1. sætið. Ég var orðin
sátt með kvöldið eftir að hafa verið valin K-
sport stúlkan áður en sætin voru tilkynnt,” sagði
fegurðardrottningin sem fær litla pásu frá feg-
urðarsamkeppni þar sem undirbúningur fyrir
Ungfrú Ísland hefst eftir innan við viku.
en lék með Njarðvík í vetur
Petrúnella slappar af með fjölskyldunni og kærastanum. Brátt hefst
undirbúningurinn fyrir Ungfrú Ísland á Broadway.
Linda María Hauksdóttir
er Ljósmyndafyrirsæta
Suðurnesja 2005.
Guðrún Lára
Sveinbjörnsdóttir hlaut
nafbótina vinsælasta stúlkan.
Björg Áskelsdóttir er
Bláa Lóns stúlkan í ár.
Sigurlaug Guðmundsdóttir
lenti í öðru sæti í keppninni.
Harpa
Gunnarsdóttir
lenti í því
þriðja.
Keppendur skörtuðu sínu fegursta í kvöldkjólunum.
Grindvísk körfuboltadama
Suðurnesjafegurð
Petrúnella Skúladóttir er Fegurðardrottning Suðurnesja 2005. Hún þótt i skar a fr amúr föngule gum hópi Suðurnesjakvenna, en hún var einnig valin K-sportstúlkan.
Í öðru sæti keppninnar var Sigurlaug Guðmundsdóttir og Harpa
Gunnarsdóttir var í því þriðja.
Linda María Hauksdóttir var valin Ljósmyndafyrirsæta ársins,
Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir var vinsælasta stúlkan og Björg
Áskelsdóttir er Bláa Lónsstúlkan í ár.
Kvöldið var afar glæsilegt sem endranær og var fjölmennt í Stapa
þar sem fólk fylgdist með drottningunum og snæddi ljúffengan mat.