Víkurfréttir - 20.04.2005, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sportið
Stórskyttan Magnús Gunnarsson hefur átt frábært tímabil með Íslandsmeisturum Keflavíkur í körfuknattleik í vetur. Góður leikur Magnúsar hefur ekki bara vakið athygli hér
heima heldur hefur leikur hans vakið athygli út fyrir landsteina.
Franskt lið er að leita að skotbakverði fyrir lokaátök í frönsku
deildinni og hefur fengið ábendingar um Magnús. Málin eru þó
en á byrjunarstigi og er verið að tala um hugsanlega einn mánuð
með liðinu. „Þetta er ekkert komið á hreint, það var bara mælt
með mér og þeir eru að skoða þessa hluti. Ég heyrði þetta bara í
gær en ég veit að það er smá áhugi hjá þessu liði og hann er gagn-
kvæmur. Þetta er ekki beint fyrir næsta tímabil heldur er verið að
tala um síðasta mánuðinn í frönsku deildinni”, sagði Magnús í
samtali við Víkurfréttir.
Mikið hefur verið talað um að körfuknattleiksmaðurinn Friðrik Stef-
ánsson í Njarðvík sé að fara frá bikarmeisturunum. Þessi orðrómur
hefur sérstaklega myndast þar sem Friðrik varð samningslaus eftir
tímabilið. Friðrik sagði hinsvegar í samtali við Víkurfréttir að þessar
sögusagnir séu ekki á neinum rökum reistar „Ég er ekki á förum
neitt og á bara eftir að skrifa undir hjá Njarðvík á næstu dögum. Ég
hef ekkert verið að hleypa öðrum liðum að mér og ætla mér að spila
með Njarðvík á næsta tímabili”, sagði Friðrik, en hugur hans er hjá
Njarðvík.
Páll Kristinsson lék sitt fyrsta tímabil með Njarðvík árið 1995 og hefur leikið í græna búningnum allar götur síðan. Hann ákvað rétt fyrir helgi að takast á við nýtt verkefni og
gerði tveggja ára samning við Grindvíkinga. Brotthvarf hans er
mikil blóðtaka fyrir Njarðvíkinga en um leið mikill hvalreki fyrir
lið Grindavíkur því Páll er gríðarlega öflugur leikmaður og hefur
verið einn mikilvægasti leikmaður Njarðvíkur síðustu ár.
„Það er stutt að fara og það hefur legið í loftinu í nokkur ár að fara
til Grindavíkur. Þeir hafa talað við mig síðustu árin og það hefur
alltaf kitlað mann aðeins að breyta til og prófa að spila einhvers-
staðar annarsstaðar. Það kom ekkert annað lið til greina, ég á marga
ættingja í Grindavík og ég er að vinna þar nálægt, þannig að maður
þekkir ágætlega til þarna og ég þekki strákana í liðinu”, sagði Páll
um félagsskiptin og óttast það ekki að fara í Ljónagryfjuna og spila
við gömlu liðsfélagana í Njarðvík á næsta tímabili „Það verður bara
gaman að koma í Ljónagryfjuna næsta tímabil og það truflar mig
ekkert. Þetta var allt gert í góðu og ég ræddi þessi mál við formann-
inn og þjálfarann og þetta var ákvörðun sem ég tók. Það er ekkert
sem að ég hef útá stjórn eða þjálfara að setja, þessi ákvörðun kemur
því ekkert við. Ef ég ætla að halda eitthvað áfram í þessu varð ég
bara að prófa eitthvað nýtt til að finna mig aftur. Fá smá áskorun“,
sagði Páll sem er farinn að hlakka til að taka þátt í baráttunni með
Grindavík á næsta tímabili en hefur trú á því að hann eigi aftur eftir
að klæðast græna búningnum.
Palli Kristins
til UMFG
Frikki áfram í UMFN
Maggi Gunn
til Frakklands?
Lið Reykjanesbæjar vann gullið
í boccia
Lið Reykjanesbæjar hrósaði sigri
á bocciamóti eldri borgara sem
haldið var í Laugardalshöll 15.
apríl 2005.
Alls tóku 27 lið þátt í mótinu að
þessu sinni og sendi Reykjanes-
bær 2 lið. A-liðið vann gullið,
en B- liðið féll úr keppni í 8 liða
úrslitum. Í öðru sæti varð lið frá
félagsmiðstöðinni Norðurbrún
og í 3ja sæti varð lið frá Seltjarn-
arnesi.
Keppnin er á vegum Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra
og var þetta afmælismót í tilefni
20 ára afmælis félagsins.
Reykjanesbær hefur einu sinni
áður unnið gullverðlaun fyrir
nokkrum árum, en ætíð verið í
toppbaráttunni.
Sundmenn ÍRB stóðu sig vel á
alþjóðlegu sundmóti
Sundmenn ÍRB stóðu sig vel
á alþjóðlegu sundmóti i Edin-
borg um helgina. Erla Dögg
Haraldsdóttir vann til ferna
verðlauna; gull i 100m bringu,
silfur i 200m flugsundi, silfur
í 200m bringusundi og brons
i 100m flugsundi. Helena Ósk
Ívarsdóttir vann til tvennra verð-
launa; gull i 100m bringu og
silfur i 200m bringu. Þá náði
Guðni Emilsson silfurverð-
launum í 200m bringusundi.
Deildarbikarinn um helgina
Njarðvíkingar unnu öruggan
sigur á Árborg 7-1 í Reykjanes-
höllinni á laugardaginn síðast-
liðinn þar sem Michael Jónsson
setti þrennu og þeir Gunnar
Sveinsson, Kristinn Örn Agn-
arsson, Snorri Már Jónsson og
Aron Már Smárason skoruðu
sitt markið hver.
Grindvíkingar steinlágu gegn
Þórsurum 0-3 á Stjörnuvell-
inum og hafa þar með tapað
fyrstu sex leikjum sínum í Deild-
arbikarnum.
Á sunnudaginn vann meist-
araflokkur kvenna í Keflavík
lið Þór/KA/KS 3-1 í Reykjanes-
höllinni með mörkum frá Evu
Kristinsdóttur, Guðnýu Þórð-
ardóttur og Andreu Frímanns-
dóttur.
Víðismenn unnu góðan sigur
á Víkingi Ó. 1-0 á Stjörnuvelli
í gær með marki frá Birni
Vilhjálmssyni.
Hilmar og Sesselja sigruðu í pútt-
móti Íslandsbanka
Fimmtudaginn 14. apríl var
haldið Púttmót í Röstinni, alls
tóku 45 þátt í mótinu sem var
að hefðbundnu sniði og leiknar
2 x 18 holur, sigurvegarar urðu
eftirfarandi:
Kvennaflokkur:
1. Sesselja Þórðardóttir á 66
höggum.
2. Hrefna Ólafs dótt ir á 67
höggum.
3. Unnur Óskarsdóttir á 68
höggum eftir umspil við Maríu
Einarsdóttur sem einnig var á
68 höggum.
Flest bingó var Hrefna Ólafs-
dóttir með, eða 10.
Karlaflokkur:
1. Hilm ar Pét urs son á 60
höggum.
2. Guðmundur Ólafsson á 62
höggum.
3. Hólmgeir Guðmundsson á
62 höggum.
Flest bingó var Árni Guðgeirs-
son með eða 15.
Vinningar voru gefnir af Íslands-
bankanum og afhenti fulltrúi
hans vinninga.
Að móti loknu var haldinn aðal-
fundur Púttklúbbs Suðurnesja
og hafði Lórý Er lingsdótt ir
óskað eftir að hætta sem for-
maður og var Ingi Gunnarsson
kosinn formaður, varaformaður
Einar Guðmundsson, gjaldkeri
Jón Ísleifsson, ritari Sigurður
Guðbrandsson og meðstjórn-
andi Ísleifur Guðleifsson. Næsta
mót verður 28 apríl.
Lávarðardeild stofnuð
Stofnfundur Lávarðardeildar
Keflavíkur var haldinn á dög-
unum en það er félagsskapur
fyrrverandi leikmanna og stjórn-
armanna Keflavíkur og áður
ÍBK. Á fundinum var skipuð
stjórn en framhaldsstofnfundur
verður í tengslum við fyrsta leik
Keflavíkur í Landsbankadeild-
inni 16. maí og því er ennþá
tækifæri til að gerast stofnfé-
lagar. Hugmyndin af þessu fé-
lagsstarfi er að eldri leikmenn
og stjórnamenn hittist fyrir
leiki Keflavíkur, fái sér kaffi,
ræði um leikinn og ekki síður
að rifja upp gamlar og glæstar
minningar, svo mun starfið þró-
ast en frekar. Stjórn var kjörin í
félaginu sem fær endanlegt nafn
á framhaldsstofnfundi sem hald-
inn verður í tengslum við fyrsta
leik Keflavíkur í deildinni 16.
maí n.k. Þeir sem mæta á þann
fund teljast stofnfélagar. Stjórn-
ina skipa Magnús Torfason, Þor-
steinn Ólafsson, Sigurður Björg-
vinsson, Karl Finnbogason og
Gísli Eyjólfsson.
molar
Er Magnús á leið til Frakklands? Hér er hann með viðurkenninguna
fyrir besta leikmann Keflavíkur.