Víkurfréttir - 20.04.2005, Síða 19
VÍKURFRÉTTIR I 16. TÖLUBLAÐ I MIÐVIKUDAGURINN 20. apríl 2005 I 19
sport@vf.is
1 C.Palace - Liverpool 1 2 2 1X2
2 Aston Villa - Bolton X 1X2 X2
3 Middlesbro - W.B.A 1 X 1 1
4 Blackburn - Man.City 1 1X 1X2
5. Norwich - Charlton 1X2 1 1
6 Wigan - Q.P.R 1 1 1
7 Leeds - Ipswich X2 2 1
8 Derby - Gillingham 1 1 1
9 Cardiff - Reading 2 X2 X
10 Brighton - West Ham 2 2 2
11 Watford - Sheff.Utd. X 1X 2 1 2
12 Plymouth - Coventry 1 1 X
13 Hertha B. - Schalke 1X2 1X 1 2
Firmakeppni Keflavíkur
Seðill vikunnar
BS tóku forystuna í úrslitum tippkeppninnar með 10 rétta í síðustu
viku. Stuðlaberg var með 7 rétta og Viðhaldsdeild Varnarliðsins var
með 6 rétta og ætluðu því að taka áhættu í tippseðli vikunnar. Bent
er á að enn er hægt að vinna farseðil á leik Arsenal og Liverpool
þann 7. maí, en þeir sem tippa fyrir 500 eða meira í
K-Húsinu eru í pottinum
Viðhaldsdeild
Varnarliðsins
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
: Þ
O
RG
IL
S
JÓ
N
SS
O
N
Unglingaflokkur Njarðvíkur
tryggði sér Íslandsmeistaratitil-
inn í körfuknattleik eftir sigur á
KR í úrslitaleik, 63-61.
Njarðvíkingar voru lengst af
með frum kvæð ið en mik il
spenna var undir lokin þegar
KR hafði tækifæri til að jafna
eða komast yfir á síðustu sek-
úndunum.
Kristján Sigurðsson var stiga-
hæstur Njarðvíkinga með 18
stig, en Guðmundur Jónsson
kom næstur með 14 stig auk
þess sem hann lék góða vörn
á Brynjar Björnsson, einn öfl-
ugusta mann KR.
Þá er vert að geta framlags Egils
Jónassonar, þó hann héldi sig til
hlés í sókninni átti hann stórleik
í vörn og varði 8 skot.
Þetta er annar yngriflokka tit-
ill UMFN á stuttum tíma, en
10. flokkur varð Íslandsmeistari
um síðustu helgi. Reyndar voru
nokkrir úr því liði í leikmanna-
hópnum um helgina.
Unglingaflokkur UMFN
Íslandsmeistari
Lokahóf körfuknattleiksdeildar
UMFG var haldið með pompi
og prakt í Festi á laugardags-
kvöldið. Páll Axel Vilbergsson og
Erla Reynisdóttir voru valin bestu
leikmenn. Efnilegustu leikmenn
voru Berglind Anna Magnús-
dóttir og Þorleifur Ólafsson og
mestu framfarir hlutu Jovana
Stefánsdóttir og Björn Steinar
Brynjólfsson.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar og
Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð(MÍT) hafa ákveðið
að heiðra meistara Keflavíkur
og UMFN í körfubolta fyrir frá-
bæran árangur á síðustu miss-
erum í kvöld 20. apríl klukkan
18:00 í Duushúsum, Duusgötu
2.
Keflavík varð Ís landsmeist-
ari í karla- og kvennaflokki í
körfuknattleik árið 2005, þriðja
árið í röð. UMFN urðu bikar-
meistarar á árinu og 10. flokkur
drengja hefur náð frábærum ár-
angri í nær óslitinni sigurgöngu.
Að auki tók metfjöldi eða 850
krakkar þátt í árlegu Samkaups-
móti í Reykjanesbæ og var skipu-
lagning öll til fyrirmyndar. Að
auki fá viðurkenningar unglinga-
ráð körfuknattleiksdeilda Kefla-
víkur og UMFN og 10. flokkur
UMFN.
Körfuboltahátíð
í Duushúsum
í kvöld
Magnús Þór Gunnarsson og Birna
Valgarðsdóttir voru kjörin bestu
leikmenn Keflavíkur veturinn
04/05 á lokahófi körfuknattleiks-
deildarinnar á föstudag.
Þá voru Sverrir Þór Sverrisson
og Anna María Sveinsdóttir
valin bestu varnarmennirnir, og í
flokknum „Mestu framfarir” voru
þau Jón Norðdal Hafsteinsson
og Bryndís Guðmundsdóttir fyrir
valinu.
Maggi og Birna best
hjá Keflavík
Páll og Erla
best hjá UMFG