Víkurfréttir - 12.05.2005, Blaðsíða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Landsbanki Íslands bauð til móttöku í útibúi sínu að Hafnargötu 57 í Kefla-
vík nú síðdegis en húsnæðið
þar er nú orðið hið glæsilegasta
eftir gagngera endurnýjun. Af
því tilefni undirritaði Lands-
bank inn og Þroska hjálp á
Suðurnesjum samkomulag
um stofn un Styrkt ar sjóðs
Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Sjóðurinn er stofnaður fyrir
tilstuðlan Landsbankans sem
varðveitir sjóðinn og skipar
formann sjóðsstjórnar. Útibú
bankans á Suðurnesjum leggja
sjóðnum til alls kr 3.000.000
sem greið ast út á næstu 4
árum. Björgólfur Guðmunds-
son, for mað ur banka ráðs
Lands bank ans og Frið geir
Magni Baldursson útibússtjóri
í Keflavík undirrituðu samn-
inginn fyrir hönd bankans og
Theódór Guðbergsson og Hall-
dór Leví Björnsson fyrir hönd
Þroskahjálpar.
Endurbætur í samræmi
við breyttar þarfir
Allar endurbætur á útibúi
Landsbankans í Keflavík eru í
samræmi við breyttar þjónustu-
þarfir viðskiptavina bankans.
Starfsstöðvar þjónustufulltrúa
hafa verið bættar. Sett hefur
verið upp nýtt fundarherbergi,
búið fullkomnum búnaði til
slíkrar aðstöðu og vélbúnaður
útibúsins hefur verið endurnýj-
aður. Settur hefur verið upp
flatur veggskjár sem ætlaður
er til að miðla upplýsingaefni
til viðskiptavina og á næstunni
verður sett upp í afgreiðslusal
nettengd tölva til frjálsra afnota
fyrir viðskiptavini bankans, en
slíkt auðveldar mjög viðskipti í
Einkabanka Landsbankans án
biðraða og kostnaðar.
Þjónustan hef ur ver ið efld
verulega og aðlöguð að nútíma-
bankastarfsemi. Þjónustufull-
trúum hefur verið fjölgað og
söluráðgjafi hefur fasta starf-
sstöð í útibúinu. Auk fyrirtækja-
sérfræðings þá hefur verið ráð-
inn einstaklingssérfræðingur í
fullt starf sem mun sinna mark-
aðsmálum og ráðgjöf hvers kyns
vegna einstaklingsviðskipta.
Áhersla er lögð á vandaða en
um leið skilvirka þjónustu, þar
sem þarfir viðskiptamannsins
eru í fyrirrúmi. Landsbankinn
lítur á bankaviðskipti sem lang-
tímasamband sem þarf að rækta
vel í gagnkvæmu trausti. Breyt-
ingarnar í útibúinu hafa tekist
vel í alla staði og útibúið er
skipað afar hæfu starfsfólki sem
verður ávallt grunnurinn að
góðu bankaútibúi. Stöðugildum
útibúsins hefur fjölgað um 4
og er þá meðtalin afgreiðslan
í Gömlu flugstöð. Þá er ótalin
afgreiðsla útibúsins í Sandgerði
með tæp 3 stöðugildi, en einnig
þar verður fjölgun á næstunni.
Svo gagnger breyting og end-
urnýjun á raunar allri innri
starfsemi útibúsins skilar sér
fljótt og örugglega. Þetta birtist
m.a. í aukinni starfsánægju og
fleiri mælanlegum stærðum úr
rekstri. Þannig hafa t.d. útlán
aukist á annan milljarð króna
frá áramótum svo eitthvað sé
nefnt, en útlán útibúsins í Kefla-
vík eru í dag all nokkuð hærri
en innlán. Þessu var öfugt farið
um síðustu áramót.
Meðbyr á Suðurnesjum
Útibú Landsbankans í Keflavík
finnur mikinn og góðan meðbyr
hér á Suðurnesjum og raunar
alls staðar þar sem útibúið á
viðskipti sem nær langt út fyrir
svæðið í mörgum tilvikum.
Útibúið er mjög vel í stakk búið
að þjóna bæði einstaklingum
og fyrirtækjum, stórum sem
smáum. Útibúið hef ur um
árabil átt farsæl viðskipti við
nokkra stóra og öfluga rekstr-
araðila en eðlilega speglast við-
skiptamannahópurinn í takti
við umhverfi sitt. Með öflugum
fyrirtækjaviðskiptum útibúsins
hafa viðskipti við nokkur milli-
stór fyrirtæki eflst að undan-
förnu og ný verið að bætast við
enda útibúið vel í stakk búið til
slíkra viðskipta.
Landsbankinn vill færa iðn-
aðarmönnum en þó ekki síst
við skipta mönn um þakk ir
fyrir þolinmæðina og skilning-
innn meðan á breytingunum
stóð, án þess að nokkuð væri
slakað á starfseminni á sama
tíma. Það tók stundum á sig
sérstakar myndir en blessaðist
með góðum vilja allra er málið
snerti.
Í tilefni þessara tímamóta var
undirrituð samstarfsyfirlýsing
milli Landsbanka Íslands hf,
útibúanna á Suðurnesjum, og
Þroskahjálpar á Suðurnesjum
um stofn un Styrkt ar sjóðs
Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Útibússtjóri Landsbankans í
Keflavík er Friðgeir Magni Bald-
ursson.
8 Landsbankinn bauð til veislu í útibúinu í Keflavík:stuttar
F R É T T I R
Landsbankinn og Þroskahjálp á
Suðurnesjum stofna styrktarsjóð
Nú er búið að reisa útsýnishús við tjörn-ina í Sandgerði sem
er hugsað fyrir fólk sem
hefur áhuga á að virða fyrir
sér fuglalífið við tjörnina í
ró og næði. Húsið hefur ekki
verið formlega opnað en þar
verður komið fyrir myndum
af fuglum sem halda til á
tjörninni og upplýsingum
um fuglana.
Að sögn Reynis Sveinssonar,
forstöðumanns Fræðaset-
ursins í Sandgerði er húsið
og göngustígur að því byggt
fyrir styrk til Fræðasetursins
og með stuðningi Sandgerð-
isbæjar.
Fuglaskoð-
unarhús við
Sandgerðis-
tjörnina
Fuglaskoðunarhúsið við tjörn-
ina í Sandgerði verður opnað
von bráðar og þá verður hægt
að skoða fuglalífið þaðan og
fræðast um fuglana.
Þriðja árið í röð verður sett upp handverks-sýning í íþróttahús-
inu í Keflavík, helgina 21.-
22. maí en um 2000 manns
sóttu sýn ing una í fyrra.
Kjörið tækifæri til að setja
upp borð og bjóða verk sín
til sölu.
Enn eru nokkur borð á sýn-
ingunni laus og þeir sem vilja
taka þátt geta hringt í síma
8608585 eða skráð sig með
með að senda tölvupóst á net-
fangið handverk@reykjaens-
baer.is.
Sýna handverk
í Keflavík
Björgólfur Guðmundsson (t.h.), formaður bankaráðs Landsbank-
ans og Friðgeir Magni Baldursson útibússtjóri í Keflavík .
Ungir tónlistarmenn léku nokkur lög fyrir gesti í hófi
Landsbankans sl. föstudag.
Fjölmennt var í hófi bankans.
Landsbankinn og Þroskahjálp á Suðurnesjum gerðu tímamóta samkomulag um styrktarsjóð.