Víkurfréttir - 12.05.2005, Blaðsíða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
At or ku sömu hjón in Anna Lea og Brói fara bráðlega af stað með
staf göngu nám skeið. Nám-
skeiðið sjálft hefst þriðjudag-
inn 17. maí og er um sex kvölda
nám skeið að ræða sem fer
fram á hálfum mánuði. Kennt
verður á mánudögum, mið-
vikudögum og fimmtudögum.
Mæting er kl. 18:30 í stúkuna
við knattspyrnuvöllinn í Kefla-
vík. Skráning á námskeiðið
fer fram í síma: 421 4315, 899
8020, 891 8099 eða í tölvupósti:
lea@fss.is
Staf ganga er ganga þar sem
gengið er með sérhannaða stafi
og hentar flestum sem geta
gengið. Stafgöngu er hægt að
stunda hvar sem er og hvenær
sem er óháð veðri, aldri, kyni
eða líkamlegu ástandi.
Söguleg þróun
stafgöngunnar
Árið 1997 var farið að markaðs-
setja stafgöngu fyrir almenning
í Finnlandi. Áður höfðu skíða-
göngumenn í Finnlandi notað
stafgöngu á sumrin til þess að
halda líkamanum í formi. Svíð-
jóð, Noregur, Sviss, Austurríki
og Þýskaland ásamt Íslandi eru
þjóðir sem hafa fyrstar allra
tileinkað sér þessa íþrótt. Nú
er talið að um að ein milljón
manna í heiminum stundi staf-
göngu a.m.k. einu sinni í viku.
Hér á Íslandi hóf tilraunahópur
Kvennahlaups ÍSÍ stafgöngu í
júní 2003 og vakti verðskuldaða
athygli á göngu sinni. Í framhald-
inu hefur ÍSÍ staðið að menntun
stafgönguleiðbeinenda sem eru
í því að kynna stafgönguna og
halda námskeið fyrir almenning.
Nýlega gaf ÍSÍ út fræðslubæk-
linginn, Stafganga góð leið til
heilsubótar og er hann ókeypis
og verður öllum aðgengilegur.
Áhrif Stafgöngu
á líkamann
Í stafgöngu brennum við 20%
meira en í venjulegri göngu-
þjálfun. Hjartsláttur per/slag á
mínútu hækkar og við aukum
loftháðaþjálfun og vöðvaþol.
Við styrkjum vöðva í efri búk
40% meira en í venjulegri göngu
og drögum úr spennu og vöðva-
bólgu í hálsi og herðum. Staf-
gangan eykur liðleika og eykur
jafnvægi. Bætir skap og andlega
heilsu, dregur úr þunglyndi og
þreytu. Stafganga er góð leið í
endurhæfingu eftir meiðsli eða
sjúkdóma í samráði við fagaðila.
Sport
Stafgöngunámskeið
Önnu Leu og Bróa
8 Allir út að ganga:
Nína Ósk Kristinsdóttir, knattspyrnukona frá Sand gerði fór ham-
förum er Íslandsmeistararnir
Valsstúlkur unnu sögulegan
stórsigur á bikarmeisturum
ÍBV, 10-0 í Meistarakeppni KSÍ
á þriðjudag.
Nína, sem hefur fest sig í sessi
sem einn skæðasti framherji
landsins, skoraði 4 mörk í yf-
irhalningunni, öll í síðari hálf-
leik, og er ljóst að hún er í góðu
formi fyrir leiktíðina í úrvals-
deild, sem og stöllur hennar í
hinu geysisterka Valsliði.
Valsstúlkur tryggðu sér á dög-
unum Deildarbikarmeistaratitil-
inn með 6-1 sigri á KR, en þar
skoraði Nína 3 mörk.
Samkvæmt spá sem sett var fram á kynningar-f u n d i K S Í í v i k u n n i
munu Grindvíkingar falla úr
Landsbankadeildinni í sumar.
Var Grindvíkingum spáð tí-
unda og jafnframt síðasta sæti
í deildinni. Spáin er sett fram af
fyrirliðum og forráðamönnum
félaga í efstu deild knattspyrn-
unnar á Íslandi.
FH-ingar verja Íslandsmeistara-
titil sinn í ár samkvæmt spánni
og það gera sömuleiðis Vals-
stúlkur. Kvennaliði Keflavíkur er
spáð fimmta sæti deildarinnar
en karlaliðinu er spáð því sjötta.
Píluliðið Hamrar frá Reykjanesbæ tryggðu sér Íslandsmeistaratitil-
inn í liðakeppni með því að leggja Pílukastfélag Grindavíkur, 7-4, í
hreinum úrslitaleik á þriðjudagskvöld. Liðin höfðu fyrir það unnið sitt
hvorn leikinn, en Hamrarnir voru sterkari í úrslitaleiknum. Hamrar eru
þeir Ævar Már, Jón Ingi, Magnús, Jóhann Bjarki, Örn Benedikt, Óli og
Anton Bogason, liðsstjóri.
Íslandsmeistarar í pílukasti
Herrakvöld
UMFN á morgun
Herrakvöld körfu-knattleiksdeildar U M F N v e r ð u r
haldið í Stapa á morgun,
föstu dag. Fjör ið verð ur
með hefð bundnu sniði
þar sem boðið verður upp
á glæsilegt steikarveislu-
borð í umsjón Haraldar
Helgasonar. Þá mun fund-
arstjóri kynna ræðumann
kvöldins til leiks og að því
loknu verður gestum frjálst
að stíga í pontu og láta ljós
sitt skína.
Þá verður boðið upp á fjöl-
breytt skemmtiatriði auk
þess sem uppboð og happ-
drætti verður haldið þar sem
ýmsir munir eru í boði.
Áhugasamir eru beðnir um
að tryggja sér miða sem fyrst
því búist er við fjölmenni.
Aðgangseyrir er aðeins 3500
kr. Miðapantanir eru í síma
eft ir kl. 17 hjá Haf steini
í 421-5421 (691-7337),
Valþóri í 421-6058 (697-
9797), Halldóru í 421-6058
(696-5520), Kristjáni í 421-
1506 (893-4096) og Árna
Brynjólfi í síma 421-7223
(862-0364).
Nína Ósk með
stórleik í stórsigri
Grindvíkingar falla
samkvæmt spánni
8 Landsbankadeildin í knattspyrnu
Barna- og unglinga-ráð körfuknattleiks-deildar Keflavíkur
heldur sína árlegu uppskeru-
hátíð í Heiðarskóla sunnu-
daginn 22. maí.
Þar verða afhentar viður-
kenningar fyrir afrek vetrar-
ins auk þes sem boðið verður
upp á skemmtiatriði.
Dagskráin verður auglýst
nánar síðar.
Júdófólk úr Vogum fór al-deilis ekki tómhent heim frá Norðurlandamótinu
sem var haldið í Laugardals-
höll um síð ustu helgi. Þau
Katrín Ösp Magn ús dótt ir
og Guðmundur Gunnarsson
unnu bæði til bronsverðlauna í
sínum flokkum, Katrín í -63 kg
flokki og Guðmundur í þunga-
vikt. Veturinn hjá Þrótturum
hefur verið gjöfull og gefur góð
fyrirheit fyrir næstu vertíð.
Tvö brons í
Voga á Norður-
landamóti
Uppskeru-
hátíð hjá
Keflavíkur-
krökkum
Katrín Ösp leggur andstæðing sinn á glæsilegu Ipponi.